Fréttablaðið og Morgunblaðið standa nánast í stað, lestur DV dalar áfram

Lestur Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins stendur nán­ast í stað milli mán­aða en lestur DV heldur áfram að dala lít­il­lega. Lestur Frétta­tím­ans og Við­skipta­blaðs­ins tekur hins vegar skarpan kipp upp á við.

Þetta kemur fram í nýrri prent­miðla­könnun Gallup sem kannar lestur á helstu prent­miðlum lands­ins. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar voru birtar í dag.

Fréttablaðið tapar áfram yngri lesendum


Frétta­blaðið er sem fyrr lang­mest lesna dag­blað lands­ins, en því er dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unnar. Lestur blaðs­ins eykst lít­il­lega á milli mán­aða, eða um 0,16 pró­sent. Alls lesa 51,5 pró­sent lands­manna blaðið, sam­kvæmt könn­un­inni. Þetta er í fyrsta sinn í sjö mán­uði sem lestur á blað­inu minnkar ekki á milli mán­aða.

Lestur Frétta­blaðs­ins hefur fallið hratt und­an­farin ár og blaðið hefur alls tapað um 20 pró­sent les­enda sinna á síð­ustu fimm árum. Upplag blaðs­ins hefur á móti dreg­ist saman á tíma­bil­inu og skýrir það að hluta til minni lestur. Lest­ur­inn hefur minnkað sér­stak­lega mikið und­an­farna mán­uði, en frá því í júlí 2014 hefur hann dreg­ist saman um 8,5 pró­sent.

Frétta­blaðið heldur líka áfram að tapa yngri les­endum. Í ald­urs­hópnum 18-49 ára fækk­aði les­endum blaðs­ins um 2,8 pró­sent í mars­mán­uði. Frá því í júlí 2014, fyrir níu mán­uðum síðan, hefur lest­ur­inn í þessum ald­urs­hópi dreg­ist saman um 18 pró­sent.



DV aldrei mælst með minni lestur


Eini stóri prent­mið­ill­inn sem missir heild­ar­lestur milli kann­ana er DV. Lestur blaðs­ins er nú 8,4 pró­sent og hefur aldrei mælst minni hjá Gallup frá því að DV kom aftur inn í mæl­ingar fyr­ir­tæk­is­ins í byrjun árs 2010 eftir eig­enda­skipti. Þegar best gekk hjá nýja DV, í maí 2011, mæld­ist lest­ur­inn 14,15 pró­sent. Það er þó jákvætt fyrir DV að lestur blaðs­ins í ald­urs­hópnum 18-49 ára tekur smá kipp upp á við, þótt lest­ur­inn sé enn afar lít­ill í þessum ald­urs­hópi. Hann fer úr 5,3 pró­sentum í 6,6 pró­sent á milli mæl­inga sem er aukn­ing upp á tæp 20 pró­sent milli mán­aða. Ugglaust spilar þar inn í áskrift­ar­til­boð þar sem nýjum áskrif­endum býðst að fá iPad með áskrift að DV og dv.is.

Yngri lesendum Morgunblaðsins fjölgar


Lesendum Morg­un­blaðs­ins, stærsta áskrift­ar­blaðs lands­ins, hefur fækkað mikið und­an­farin ár. Árið 2009 lásu 43 pró­sent lands­manna blaðið en lestur þess í dag er 28,7 pró­sent. Lest­ur­inn fór í fyrsta sinn í ára­tugi undir 30 pró­sent snemma árs í fyrra. Annað vanda­mál sem Morg­un­blaðið hefur verið að glíma við er ald­ur­sam­setn­ing les­enda. Lesendur blaðs­ins virð­ast flestir vera í eldri kant­inum. Í nóv­em­ber 2014 var hlut­fall þeirra sem eru á aldr­inum 18-49 ára komið niður í 19,05 pró­sent. Síðan þá hefur það hækkað mán­uði frá mán­uði og er nú 21,58 pró­sent.

Viðskiptablaðið og Fréttatíminn sigurvegarar síðasta mánaðar


Sig­ur­veg­arar nýj­ustu prent­miðla­könn­un­ar­innar eru Við­skipta­blaðið (bætir við sig 15,4 pró­sentum milli mán­aða) og Frétta­tím­inn (bætir við sig sjö pró­sentum milli mán­aða). Alls segj­ast nú 11,64 pró­sent lands­manna lesa Við­skipta­blaðið en 40,57 pró­sent Frétta­tím­ann.

Ljóst er að aukn­ing Við­skipta­blaðs­ins er mest hjá ungu fólki, þar sem lest­ur­inn jókst um tæp 17 pró­sent á milli mán­aða. Sömu sögu er að segja af Frétta­tím­anum þar sem lest­ur­inn hjá ald­urs­hópnum 18-49 ára jókst um 10,2 pró­sent á milli mán­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár