Brúðkaupseyjan

Íbúar dönsku smá­eyj­unnar Ærø þekkja lík­lega ekki íslenska mál­tækið „það dugir ekki að deyja ráða­laus“. Þeir hafa hins vegar ákveðið að deyja ekki ráða­lausir og óvenju­leg „atvinnu­grein“ skapar eyj­ar­skeggjum umtals­verðar tekjur, og atvinnu.

Danska smá­eyjan Ærø, sunnan við Fjón flokk­ast undir það sem Danir nefna „udkants­dan­mark“ sem mætti kannski á íslensku kalla jað­ar­svæði. Íbúarnir eru rúm­lega sex þús­und og lengst af voru land­bún­aður og útgerð smá­báta helsta lifi­brauðið. Smá­báta­út­gerðin hefur átt undir högg að sækja und­an­farin ár, atvinna dróst saman og margir, einkum ungt fólk, fluttu á brott.

Mörg jað­ar­svæði glíma við þennan vanda, litlu svæðin eiga erfitt með að bjóða upp á margs konar þjón­ustu sem þó þykir sjálf­sögð: skóla, heil­brigð­is­þjón­ustu, dægradvöl, umönnun aldr­aðra og margt fleira mætti nefna. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar stjórn­valda og ýmiss konar aðgerðir virð­ist erfitt að snúa tafl­inu við og íbúum hinna dreifðu byggða fækkar ár frá ári. Fátt virð­ist fá stöðvað tím­ans rás í þessum efnum.

Aðgöngumiðinn að Evrópusambandinu

Fátt hefur verið meira í fréttum mörg und­an­farin miss­eri en hinn stríði straumur fólks sem reynir að flýja stríð og ótryggt ástand í heima­löndum og leitar norður á bóg­inn, til landa Evr­ópu­sam­bands­ins. Óskin um betra og örugg­ara líf er drif­kraftur þessa fólks sem sér enga fram­tíð í heima­land­inu, þótt draumur flestra sé lík­lega að geta búið í sínu föð­ur­landi og þurfa hvergi að fara. En að setj­ast að, fá land­vist­ar­leyfi, í ein­hverju Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna er ekki sjálf­gefið.

Fjöldi þeirra sem óskar land­vist­ar­leyfis er meiri en mörg ESB löndin telja sig ráða við og mál­efni inn­flytj­enda eru víð­ast hvar hita­mál. Mörg ESB ríki hafa sett strangar reglur varð­andi land­vist­ar­leyfi og fara ekki leynt með að þeim sé ætlað að tak­marka fjölda þeirra sem „sleppa í gegnum nál­ar­augað“. En líkt og vatnið, sem ætíð finnur sér far­veg, leitar mann­fólkið leiða gegnum „nál­ar­augað.“

Gifting er aðgöngumiðinn

Innan ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins gilda þær reglur að ef kona eða maður frá landi utan ESB (t.d. Nígeríu) gift­ist manni eða konu frá einu aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins (t.d. Danmörku) fær sú, eða sá, með níger­íska vega­bréfið sjálf­krafa land­vist­ar­leyfi. Það leyfi gildir ekki bara í Danmörku, það gildir í öllum aðild­ar­ríkjum ESB.

Þær kröfur sem upp­fylla þarf til að fá hjóna­vígslu eru hins vegar mjög mis­mun­andi eftir ríkjum. Einna minnstar í Danmörku og þess vegna sækja margir þangað til að kom­ast gegnum „nál­ar­auga“ og til að láta pússa sig saman. Þótt hinar form­legu kröfur sé auð­velt að upp­fylla fylgir gift­ingu óhjá­kvæmi­lega ýmis­legt og það er þetta „ýmis­lega“ sem skapar atvinnu og tekjur.

Brúðkaupseyjan Ærø

Sveit­ar­stjórn­ar­menn á Ærø voru meðal þeirra fyrstu í Danmörku til að koma auga á að „brúð­kaups­brans­inn“ (eins og einn þeirra komst að orði í við­tali) væri tekju­lind. Sveit­ar­fé­lagið Ærø eyddi tals­verðu fé í að kynna eyj­una „brúð­kaups­eyj­una“, gerði meðal ann­ars sam­komu­lag við þýskar ferða­skrif­stofur sem aug­lýsa sér­stakar „gift­ing­ar­ferðir“ til Ærø. Ein slík heitir Speedwedding, sem verður að telj­ast lýsandi heiti fyrir starf­sem­ina.

For­stjór­inn sagði í við­tali við þýska Flens­borg­ar­blaðið að hjá Dönunum væri það ein­fald­lega svo ein­falt að gift­ast. „Í sumum löndum krefj­ast yfir­völd ýmiss konar vott­orða, t.d. fæð­ing­ar­vott­orðs, Danirnir vilja bara sjá vega­bréfið og þar stendur nátt­úr­lega fæð­ing­ar­dag­ur­inn og ártalið,“ sagði ferða­skrif­stofu­for­stjór­inn kank­vís á svip (að sögn blaðs­ins). Þegar hann var spurður hvort hann teldi að þau pör sem kaupa gift­ing­ar­ferð til Dan­merkur væru ást­fangin og stað­ráðin í að eyða ævinni saman sagð­ist for­stjór­inn barasta gera ráð fyrir því en ann­ars kæmi sér það ekki við.

Búhnykkur

Fyrir lítið sveit­ar­fé­lag eins og Ærø er það sann­kall­aður búhnykkur að svo margir skuli leggja leið sína þangað til að láta gefa sig saman. Í fyrra voru tæp­lega fimm þús­und pör gefin saman á Ærø. Flest pörin kaupa mál­tíðir og gist­ingu á eynni, það þarf í mörgum til­fellum að fara akandi til kirkj­unnar, það þarf að borga prest­inum, eða fóget­anum, gift­ing­ar­vott­orðið kostar sitt, það þarf vígslu­votta og svo fram­vegis.

Á síð­asta ári námu tekjur eyj­ar­skeggja vegna gift­ing­anna, var­lega áætlað; um það bil 30 millj­ónum króna (um það bil 500 millj­ónir íslenskar) og það munar um minna. Mörg sveit­ar­fé­lög í Danmörku líta Ærøbúana öfund­ar­augum og sum hafa lagt í tals­verðan aug­lýs­inga­kostnað til að ná athygli fólks í gift­ing­ar­hug­leið­ingum. Ærø hefur þar, að minnsta kosti enn sem komið er, afger­andi for­ystu.

Málamyndagiftingar

Í langri umfjöllun dag­blaðs­ins Berl­ingske var starfs­maður fógeta á Ærø spurður hvort reynt væri að ganga úr skugga um að hugur fylgdi máli hjá þeim pörum sem gefin væru saman. Starfs­mað­ur­inn sagð­ist ekki hafa neitt leyfi til að reyna að kanna slíkt, ef vega­bréfin sem fólk fram­vís­aði væru gild gæti hann ekki neitað að gifta. Svar prests sem blaða­menn Berl­ingske ræddu við var á sömu leið. Blaða­menn­irnir, sem dvöldu í nokkra daga á Ærø, töldu aug­ljóst að í sumum til­vikum, kannski mörgum, væru gift­ing­arnar svo­kall­aðar „mála­mynda­gift­ingar“ þar sem t.d. þýsk kona gift­ist manni frá Bangla­dess og fengi borgað fyrir.

Hjá dönsku lög­regl­unni fengu blaða­menn Berl­ingske stað­fest að lög­reglan hefði að und­an­förnu fengið margar ábend­ingar um að sumar þeirra hjóna­vígslna sem fram fara í Danmörku séu skipu­lagðar af ein­stak­lingum sem stunda man­sal. Hjá Evr­ópu­lög­regl­unni, Europol, kvað starfs­maður fastar að orði, þar á bæ hefðu menn vissu fyrir að glæpa­flokkar hefðu not­fært sér mála­mynda­gift­ingar, oft­ast í þeim til­gangi að neyða konur til vændis. Þegar þessi ummæli voru borin undir ferða­mála­full­trúa Ærø svar­aði hann því til að þótt prest eða fógeta grun­aði eitt­hvað mis­jafnt væri ekk­ert hægt að gera. „Við kærum okkur ekki um að leggja glæpa­mönnum lið en það er lög­gjafans að búa um hnút­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár