Dior 999 Hér les Almar úr bók sinni með Dior 999-vara­lit til að lýsa sem best skyn­bragði orð­anna sem hann notar til að böggla mynd úr haus sínum yfir í haus les­anda. Mynd: Golli

„Þegar ég skrifa svona ástarbréf líður mér vel“

Almar Steinn Atlason, einnig þekktur sem Almar í kassanum, birtist þjóðinni þegar hann dvaldi í viku í glerkassa á vegum LhÍ, árið 2015. Um daginn hélt hann útgáfuhóf fyrir nýja bók í þremur bindum: Mold er bara mold. Þar, í Tjarnar­bíói, var Almar tengdur við þvaglegg og með næringu í æð – meðan hann las alla bókina sleitu­laust á 23 klukku­tímum.

Við að lesa aftan á bækurnar þrjár í verki Almars birtast baksíðu­textarnir eins og sitúasjónir frekar en formleg kynning. Raunar ber heildar­verkið bragð af bókverki – eða hvað segir Almar um það?

 „Minn bakgrunnur er nátt­úrlega í myndlist. Þannig að það er ekki skrýtið að maður svingi óvart yfir í þá fagur­fræði,“ segir hann og því næst að sitúasjónirnar aftan á bókunum séu glefsur inn í söguna: „... svona stillu­augnablik sem varða svolítið leið í gegnum í bókina. Og mér fannst að það væri betra að hafa þessar sitúasjónir aftan á heldur en lýsingar.

Stundum kannski er mínútu atriði eða sena betri gluggi inn í líf en samantekt á tuttugu árum.“

 En hvað segirðu um inni­haldið?

„Þetta eru allar stóru tilfinningarnar og stóru lýsingar­orðin. Þetta er í raun grunnurinn að sögunni. Ég hef aldrei kynnst manneskju sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár