Skruddurnar skella á Trump

Afhjúp­anir í nýrri bók Bob Woodward hafa vakið mikla athygli, en þar játar Donald Trump að hafa gert minna úr kór­ónu­veirunni opin­ber­lega en efni stóðu til. Bók Woodward kemur út í næstu viku og gæti reynst for­set­anum þung á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar.

Donald Trump með bíblíu í hönd í Washington í sumar. Hann kann sennilega betur við þá bók en ýmsar aðrar sem nýkomnar eru út eða væntanlegar.
Donald Trump með bíblíu í hönd í Washington í sumar. Hann kann senni­lega betur við þá bók en ýmsar aðrar sem nýkomnar eru út eða vænt­an­legar. Mynd: Twitter

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti vissi strax í upp­hafi febr­ú­ar­mán­aðar að kór­ónu­veiran gæti valdið miklu mann­tjóni í Banda­ríkj­unum og að hún smit­að­ist manna á milli í and­rúms­loft­inu. Þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi hans var búinn að segja honum, þegar í lok jan­úar, að veiran yrði það erf­ið­asta sem hann þyrfti að takast á við í for­seta­tíð sinni.

En Trump ákvað að yfir­lögðu ráði að gera lítið úr hættum veirunnar opin­ber­lega, að eigin sögn til þess að valda ekki skelf­ingu í sam­fé­lag­inu. Anthony Fauci telur hann ein­ungis hugsa um end­ur­kjör. For­set­inn gerði ítrekað lítið úr veiruógn­inni, en hafði þó sagt við blaða­mann­inn Bob Woodward að veiran væri „ban­vænt dót“, mun hættu­legri en flensan og „svo smit­andi, að þú myndir ekki trúa því.“

Þetta er á meðal ýmissa afhjúpana í nýrri bók Woodward, Rage, sem er vænt­an­leg í almenna sölu í næstu viku. Fyrstu fréttir af inni­haldi bók­ar­innar fóru að birt­ast í banda­rískum fjöl­miðlum í gær og þeim á for­set­inn erfitt með að verj­ast, þar sem hann sjálfur tók þá ákvörðun að veita Woodward leyfi til að hljóð­rita alls 18 einka­við­töl, sem bókin byggir á auk ann­ars. Þá er erfitt að segja að um fals­fréttir sér að ræða.

Bob Woodward er þraut­reyndur blaða­maður Washington Post og þekkt­astur fyrir þátt sinn í að afhjúpa Watergate-skandal­inn sem leiddi til afsagnar Richard Nixon. Hann gaf út aðra bók um emb­ætt­is­störf Trumps árið 2018 sem bar tit­il­inn Fear.

Ýmsir hafa spurt sig að því af hverju Trump ákvað að veita Woodward svona náinn aðgang að sér. New York Times hefur eftir heim­ild­ar­mönnum í Hvíta hús­inu að Trump hafi verið að von­ast til þess að bók Woodward yrði sér jákvæð. Hann hafi talið að það myndi koma betur út fyrir sig að taka þátt í bók­ar­skrifum Woodwards en að neita Woodward um við­töl, eins og hann gerði fyrir útgáfu Fear. Hann hélt að hann gæti heillað Woodward.

Miðað við það sem birst hefur úr bók­inni í banda­rískum miðlum virð­ist þó allt annað en fögur mynd vera dregin upp af for­set­anum, sem berst nú fyrir end­ur­kjöri og hefur á bratt­ann að sækja sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum.

[adspot]

Bók Woodward er ekki sú eina um Trump sem er í umræð­unni þessa dag­ana. Ótrúlegt magn bóka um for­set­ann hefur komið út vest­an­hafs frá því að hann tók við emb­ætti, alls yfir 1.200 titlar. Nokkrar eru nýkomnar og þó nokkrar til við­bótar eru vænt­an­legar. Kjarninn tók saman nokkrar þeirra.

Mary L. Trump - Too Much and Never Enough

Frænka for­set­ans, sem er sál­fræð­ingur að mennt, gaf út bók um Donald frænda í sumar, sem bar honum ekki vel sög­una. Hún sagði hann meðal ann­ars hafa fengið ást­laust upp­eldi og það væri því engin furða að hann væri sá maður sem hann er í dag.

Hún sagði for­set­ann vera sósíópata sem væri ábyrgur fyrir „fjöldamorði“, með því að hafa mætt útbreiðslu kór­ónu­veirunnar með kæru­leys­is­fasi.

John Bolton - The Room Where it Happened: A White House Memoir

Í júní gaf fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjaf­inn út bók þar sem hann lýsti Trump sem ein­stak­lega ein­földum manni. Hvíta húsið reyndi að stöðva útgáfu bók­ar­innar á grund­velli þess að þar væru trún­að­ar­upp­lýs­ingar, en á meðal þess sem kom fram var að Trump hefði beðið Xi Jinping for­seta Kína um að hjálpa sér að ná end­ur­kjöri á G20 fund­inum í Japan í fyrra.

Einnig sagði Bolton frá því að Trump hefði verið mjög nálægt því að draga Banda­ríkin út úr Atl­ants­hafs­banda­lag­inu árið 2018, svo eitt­hvað sé nefnt, sökum þess að hann var óánægður með að Banda­ríkin væru að borga of mikið í sam­an­burði við hern­að­ar­út­gjöld banda­manna.

Brian Stelter - Donald Trump, Fox News, and the Dangerous Distortion of Truth

Frétta­maður CNN rekur meðal ann­ars í bók sinni, sem kom út í ágúst, hvernig Fox News átti þátt í því að stuðla að upp­lýs­inga­óreiðu um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

Í bók­inni segir hann að frá sam­bandi for­set­ans við Fox News og hvernig frétta­stöðin, sem er sú sem mest áhorf hefur í Banda­ríkj­unum, fer frjáls­lega með stað­reyndir og leikur „lyk­il­hlut­verk í stríð­inu gegn sann­leik­anum,“ eins og höf­und­ur­inn orðar það í við­tali við New York Times.

Michael Cohen - Disloyal: A Memoir

Fyrr­ver­andi lög­maður Trumps, sem afplánar nú fang­els­is­dóm, rit­aði bók sem kom út á þriðju­dag. Þar segir Cohen að for­set­inn sé svik­ari, lyg­ari, óþokki og ras­isti, svo eitt­hvað sé nefnt. Á meðal þess sem fjöl­miðlar hafa fjallað um úr bók­inni eru meint ummæli Trumps þess efnis að hann muni aldrei ná til Banda­ríkja­manna af rómönsku bergi brotnu, né blökku­manna. Báðir kjós­enda­hópar séu „of heimskir til að kjósa Trump.“

Cohen sjálfur er reyndar sjálfur dæmdur lyg­ari og svik­ari og Hvíta húsið hefur brugð­ist við útgáfu bók­ar­innar með því að segja að það komi ekki á óvart að maður með þá fer­il­skrá reyni að hagn­ast á að gefa út lyga­sögur um for­set­ann.

Michael S. Schmidt - Donald Trump v. The United States: Inside The Struggle To Stop a President

Rann­sókn­ar­blaða­maður New York Times skrif­aði bók um fjögur ár Trumps í emb­ætti, sem kom út 1. sept­em­ber. Í henni segir hann meðal ann­ars að per­sónu­leg tengsl for­set­ans við rúss­nesk yfir­völd hafi ekki verið rann­sökuð í þaula, þrátt fyrir allar rann­sóknir und­an­far­inna ára.

Bókin byggir m.a. á við­tölum við James B. Comey, sem stýrði alrík­is­lög­regl­unni FBI og Donald McGahn, fyrr­ver­andi lög­manni Hvíta húss­ins. Samkvæmt frá­sögnum þeirra, sem tæpt er á í bóka­dómi Washington Post, reyndu þeir að koma böndum á for­set­ann er þeir störf­uðu við hlið hans og hlutu bágt fyrir.

Núna, segir Schmidt í bók­inni, eru fáir eftir á æðstu stöðum í Banda­ríkja­stjórn sem eru þess megn­ugir að veita for­set­anum mót­stöðu og segir hann dóms­mála­ráð­herr­ann Bill Barr sér­stak­lega hlið­hollan for­set­anum.

Rick Gates - Wicked Game

Fyrr­ver­andi starfs­maður fram­boðs for­set­ans árið 2016, sem gerð­ist svo lyk­il­vitni í Mueller-rann­sókn­inni, ætlar að gefa út bók í októ­ber.

Lítið hefur heyrst um hvað í henni verður, en lík­legt er að hún muni vekja athygli. Gates seg­ist sjálfur ætla að varpa nýju ljósi á Mueller-rann­sókn­ina, en á kápu bók­ar­innar segir að þetta sé saga inn­herja um það hvernig Trump vann, Mueller mislukk­að­ist og Banda­ríkin töp­uðu.

Seljast betur ef Trump er ekki hrifinn af þeim

Þetta er ekki tæm­andi listi yfir þær bækur um for­set­ann sem eru nýlega komnar eða vænt­an­legar, en lík­legt er að þessar vekji einna mesta athygli núna á næst­unni. Bækur um Trump hafa margar hverjar selst vel, sér­stak­lega þær sem for­set­inn er óánægður með.

Má þar nefna bækur á borð við Fire and Fury eftir Michael Wolff og Unhinged eftir Omarosu Man­igault, sem báðar komu út árið 2018, auk fyrri bókar Woodward. Einnig má nefna A Very Stable Genius eftir Philip Rucker og Carol Leonnig, blaða­menn Washington Post, sem kom út í upp­hafi þessa árs og A Warning, bók eftir óþekktan höf­und sem lýst er sem hátt­settum emb­ætt­is­manni í Trump-stjórn­inni, sem kom út seint árið 2019.

Eins og einn útgef­andi sagði við New York Times í nýlegri umfjöllun, þá „bið­uru þess að Trump hati bók­ina þína, og þú biður þess að hann tísti um hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár