Forsætisráðherra Grikklands fundar með Pútín, degi fyrir 450 milljóna endurgreiðslu

Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, er nú kom­inn til Moskvu til við­ræðna við Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta. Grikkir, sem eiga nú í erf­iðum við­ræðum um fjár­mögnun rík­is­ins við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, hafa und­an­farið átt í vin­gjarn­legum sam­skiptum við Rússa. Leið­tog­arnir tveir funda nú.

Þessum sam­skiptum hefur verið illa tekið innan ESB, eins og Grikkir hafa búist við og jafn­vel ætl­ast til. Þeir hafa rætt um mögu­leg lán frá Rússum í stað áfram­hald­andi samn­inga við ESB og AGS, en sér­fræð­ingar hafa bent á að miðað við þau fjár­hags­vand­ræði sem Rússar eru sjálfir í yrðu lán frá þeim lík­lega mjög tak­mörkuð. Grískur emb­ætt­is­maður sem Guardian ræddi við í morgun segir að ekki verði óskað eftir fjár­hags­að­stoð frá Rússum á fund­inum í dag.

Meeting with Russian Pres­ident, @PutinRF_Eng ahead of this afternoon's press conference. #Greece pic.twitter.com/iLUizVPLp2

— Alexis Tsipras (@tsipras_eu) April 8, 2015

Fyrir ferð sína til Moskvu gagn­rýndi Tsipras meðal ann­ars efna­hags­þving­anir Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna gagn­vart Rúss­landi, en þeim hefur verið beitt vegna fram­ferðis Rússa í Úkraínu og inn­limunar Krím­skaga í Rússland. Leið­tog­arnir tveir munu lík­lega ræða stirð sam­skipti Rússa við ESB á fundi sínum.

Forseti Evr­ópu­þings­ins, Martin Schulz, hefur varað Tsipras og ráða­menn í Grikk­landi við því að brjóta gegn við­skipta­þving­unum ESB. „Grikkir krefj­ast sam­stöðu og njóta mik­illar sam­stöðu frá Evr­ópu­sam­band­inu. Við getum því beðið um sam­stöðu frá Grikkjum og að þessi sam­staða verði ekki rofin ein­hliða með því að þeir dragi sig út úr sam­eig­in­legum úrræðum,“ sagði hann við þýska blaðið Muenchner Merkur.

Eiga að borga 450 milljónir evra á morgun


Tíma­setn­ingin á ferða­lagi Tsipras er áhuga­verð, en Grikkir eiga að borga af láni frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum á morgun. Afborg­unin sem á að greiða á morgun nemur 450 millj­ónum evra, eða rúm­lega 66 millj­örðum íslenskra króna. Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, hefur lofað því að við þessa greiðslu verði staðið á réttum tíma. Hann fund­aði með Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóra AGS, í Washington fyrr í vik­unni. Hann sagði að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn væri til­bú­inn til þess að sýna Grikkjum skiln­ing og sveigj­an­leika.

Grikkir hafa ekki fengið fjár­magn frá ESB og AGS síðan í ágúst í fyrra. Tals­verðar líkur eru á því ef ekk­ert ger­ist að ríkið hætti að geta staðið í skilum um miðjan mán­uð­inn.

Á mánu­dag­inn greindu grísk stjórn­völd frá því að þau hefðu í fyrsta sinn reiknað út hversu mikið þau teldu að Þjóð­verjar skuld­uðu í stríðs­skaða­bætur vegna seinni heims­styrj­ald­ar­innar, og að sú upp­hæð nemi 448 millj­örðum evra. Þjóð­verjar hafa vísað þessu á bug og segja að málið hafi verið útkláð fyrir löngu síðan. Efna­hags­ráð­herr­ann Sigmar Gabriel sagði það heimsku­legt að tengja þessi tvö mál saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár