Mikið fagnaðarefni að „nýfasistinn og hrottinn Donald Trump“ láti af embætti

Þing­flokks­for­maður Pírata fagnar brott­hvarfi Donalds Trump úr emb­ætti Banda­ríkja­for­seta og bendir á að upp­gangur nýfas­isma geti átt sér stað ef við gleymum því að það sé mögu­legt.

Helgi Hrafn Gunnarsson
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Ef við ætlum að verj­ast upp­gangi nýfas­ism­ans, hvort sem það er til skemmri tíma eða lengri, þá verðum við að hafa hug­föst þau lýð­ræð­is­legu gildi sem byggja á opinni, lýð­ræð­is­legri og upp­lýstri umræðu. Við megum ekki gleyma mik­il­vægi þess og við megum ekki láta eins og það ger­ist af sjálfu sér. Við eigum þegar við erum orðin full­orðin að geta gert grein­ar­mun á stað­reyndum og þvætt­ingi. Staðan er sú að í hinum svo­kall­aða vest­ræna heimi er það ekki svo skýrt.“

Þetta sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­flokks­for­maður Pírata, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag og vék hann að brott­hvarfi Banda­ríkja­for­seta úr emb­ætti í þessu sam­hengi.

„Í dag lætur af störfum nýfas­ist­inn og hrott­inn Donald Trump sem for­seti Banda­ríkj­anna. Það er mikið fagn­að­ar­efni og þarf þá ekk­ert að styðja and­stæð­inga hans neitt sér­stak­lega mikið til þess að fagna því. Og þegar litið er til þess hvernig hann komst til valda þá er eitt alveg sér­stak­lega áber­andi; og það er virð­ing­ar­leysi fyrir stað­reyndum, fyrir sann­leik­anum, fyrir því að það er munur á því hvað sé satt og hvað sé ósatt. Stað­reyndir eru ekki við­horf, skoð­anir eru ekki rök í eðli sínu.“

Blessunarlega laus við mjög sýnilegan uppgang nýfasisma á Íslandi

Benti þing­mað­ur­inn á að Íslend­ingar hefðu verið bless­un­ar­lega lausir við mjög sýni­legan upp­gang nýfas­isma að und­an­förnu og sagði hann að margt kæmi þar til.

„Hins vegar þegar litið er vestan hafs eða til Evrópu þá sést upp­gang­ur­inn nýfas­ism­ans mjög skýrt. Vandinn ver­andi sá að við erum orðin svo vön því að búa í frjáls­lyndum lýð­ræð­is­sam­fé­lögum – hér á þessu svæði og í nágranna­löndum okkar – að okkur dettur ein­hvern veg­inn ekki til hugar að þetta geti verið raunin. Að ein­hver voða­verk eins og þau sem voru framin á sein­ustu öld og eru hvað fræg­ust og alræmd­ust að þau geti verið framin aftur,“ sagði Helgi Hrafn og bætti því að það gæti þó gerst ef „við gleymum því að það sé mögu­legt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár