Framkvæmdastjóri Procar ákærður af héraðssaksóknara

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru á hendur Haraldi Sveini Gunn­ars­syni, sem var fram­kvæmda­stjóri og meiri­hluta­eig­andi bíla­leig­unnar Procar, fyrir skjala­fals. Árið 2019 var greint frá því í Kveik á RÚV að bíla­leigan hefði árum saman stundað það að skrúfa til baka kíló­metra­stöðu not­aðra bíla­leigu­bíla áður en þeir voru seldir.

Haraldur Sveinn Gunn­ars­son, sem var fram­kvæmda­stjóri, stjórn­ar­for­maður og meiri­hluta­eig­andi bíla­leig­unnar Procar, hefur verið ákærður af hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir að hafa á árunum 2014-2018 hlut­ast til um sölu á sam­tals 134 bif­reiðum með fals­aðri kíló­metra­stöðu. Haraldur er ákærður fyrir skjala­fals, en til vara fyrir fjár­svik.

Í ákærunni kemur fram að Haraldur seg­ist hafa fengið mann sem heitir Pawel til þess að falsa með raf­rænum hætti stöðu á kíló­metra­mæla í akst­urs­tölvum bif­reið­anna, þannig að kíló­metra­mæl­arnir þeirra sýndu færri ekna kíló­metra en raunin var. Málið var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun.

Í yfir­lýs­ingu sem Procar sendi frá sér í kjöl­far þess að ljóstrað var upp um málið í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik á RÚV árið 2019 kom fram að þetta hefði verið gert til þess að gera bíl­ana auð­selj­an­legri.

Fyrst um sinn héldu for­svars­menn bíla­leig­unnar því fram í yfir­lýs­ingu að fyr­ir­tækið hefði hætt að fikta í kíló­metra­stöðu bíla árið 2015 og að málið varð­aði ein­ungis bif­reiðar sem seldar hefðu verið á árunum 2013-2016, en síðar var sagt frá því að það stæð­ist ekki, heldur hefðu bílar með rangri kíló­metra­stöðu verið seldir frá fyr­ir­tæk­inu árin 2017 og 2018.

Haraldur Sveinn er einn ákærður í mál­inu, en bróðir hans, Gunnar Björn Gunn­ars­son, sem einnig var í for­svari fyrir rekstur bíla­leig­unnar á þessum tíma, sætir ekki ákæru í mál­inu.

Búið að greiða bætur vegna 116 bíla

Í ákæru­skjal­inu frá hér­aðs­sak­sókn­ara segir að í ágúst í fyrra hafi verið búið að greiða bætur að and­virði 13,3 millj­óna króna til alls 116 aðila, en í kjöl­far þess að greint var frá mál­inu í umfjöll­unum Kveiks á RÚV ákvað Procar að bjóða þeim sem keypt höfðu bíla af fyr­ir­tæk­inu bætur. Ekki var búið að gera upp bætur vegna sam­tals 18 bif­reiða. 

Alls gera sex ein­stak­lingar skaða­bóta­kröfur í mál­inu, sem sam­tals nema rúm­lega 4,1 milljón króna. Sá sem gerir hæsta kröfu krefur Harald um rúm­lega 1,1 milljón, auk drátt­ar­vaxta frá árinu 2018.

Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og hefur verið til rann­sóknar hjá hér­aðs­sókn­ara allt frá árinu 2019. Bíla­leig­unni var vikið úr Samtökum ferða­þjón­ust­unnar í kjöl­far þess að málið kom upp. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár