Verstu mistök Obama voru í Líbíu

Stríðið í Sýrlandi, Írak, Afganistan og í Líbýa má rekja til margra ólíkra þátta, sem erfitt er að greina til fulls. Barack Obama segir að Banda­ríkin og banda­lags­þjóðir hafi gert mikil mis­tök eftir hern­að­ar­að­gerðir í Líbýu 2011.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, lét hafa eftir sér í við­tali í apríl að mestu mis­tök sem hann bæri ábyrgð á, í for­seta­tíð hans, fælust í því að hafa ekki und­ir­búið og skipu­lagt hern­að­ar­að­gerðir betur í Líbíu, í kjöl­far þess að Gaddafí var steypt af stóli, árið 2011. „Við – banda­lags­þjóð­irnar sem stóðum fyrir nauð­syn­legum hern­að­ar­að­gerðum – vorum ekki nægi­lega til­búin fyrir dag­inn eftir Gaddafí,“ sagði Obama. Í kjöl­farið á því að Gaddafí var drep­inn, 20. októ­ber 2011, log­aði landið í átökum og póli­tískur glund­roði var algjör. Þetta var ekki aðeins við­kvæmt út frá því að stríð væri að brjót­ast út, sem gæti smit­ast út í nágranna­ríki, heldur einnig fyrir efn­hagas­legt og póli­tískt jafn­vægi á svæð­inu til lengri tíma.

Til ein­föld­unar, þá ótt­ast Obama að langan tíma til við­bótar – mörg ár – muni taka að koma efna­hags­legum innviðum Líbíu í samt lag

Frakkar og Bretar bera mikla ábyrgð

Hern­að­ar­að­gerð­irnar í land­inu, í kringum 20. októ­ber, voru fjöl­þjóð­legar en sér­sveitir franska og breska hers­ins báru ábyrgð á kort­lagn­ingu aðgerða í kjöl­far þess að Gaddafí var drep­inn.

Þær áttu að miða að því að lág­marka stjórn­leysið og koma í veg fyrir að öfga­hópar gætu var­an­lega skotið rótum. Aðgerð­irnar byggð­ust á til­lögu Obama, sem örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna sam­þykkti 17. mars 2011. Alþjóða­sam­fé­lagið ber því sam­eig­in­lega ábyrgð á þessum aðgerðum, þó Obama við­ur­kenni sjálfur að Banda­ríkin beri mikla for­ystu­á­byrgð í aðgerðum sem þessum. „Aðgerðin var nauð­syn­leg, til að bjarga manns­lífum, og það tókst, en það tókst ekki nægi­lega vel upp með fram­haldið,“ sagði Obama.

Faldir sjóðir og ófriður

Faldir sjóðir Gaddafí upp á millj­arða Banda­ríkja­dala, voru eitt helsta áhyggju­efnið. Þrátt fyrir að stór hluti þeirra hafi verið gerður upp­tækur með fryst­ingu á banka­reikn­ingum, meðal ann­ars í Sviss, London og Hong Kong, þá er talið að miklar fjár­hæðir hafi kom­ist undan til trún­að­ar­manna Gaddafí, og þaðan flætt til öfga­hópa, sem síðan hafa alið á ófriði og átökum, með mis­kunn­ar­lausu ofbeldi. Meðal ann­ars undir merkum íslamska rík­is­ins.

Glund­roði í Líbíu, sem býr yfir olíu­auð­lindum, hefur átt sinn þátt í að magna upp átökin í Sýrlandi og einnig grafa undan gangi efna­hags­mála á ákveðnum svæðum í Egypta­landi. Alsír, Túnis og Egypta­land eiga landa­mæri að Líbíu sem er stað­sett á áhrifa­miklu svæði, með til­liti til hern­að­ar­að­gerða. Þó aðeins 6,2 millj­ónir manna búi í Líbýu, þá var stjórn á aðgerðum í Líbíu talin lyk­ill­inn að því að skipu­leggja hern­að­ar­að­gerðir vel í nágranna­ríkjum, meðal ann­ars í Sýrlandi.

Viðvarandi átök

Við­var­andi átök hafa verið í Írak, Sýrlandi, Afganistan og einnig í Norður-Afríku, þar sem Líbía er með­talin. Í umfjöllun Foreign Policy, um aðgerðir í Líbíu, eftir að Gaddafí féll, segir að Banda­ríkja­her hafi frestað því að þjálfa upp sex til átta þús­und manna her­lið, árið 2014, skipað af heima­mönnum. Þetta hafi ekki verið talið nauð­syn­legt, en eftir því sem tím­inn leið þá hafði komið í ljós að þetta hafi verið mikil mis­tök. Staðan hefði hratt breyst til hins verra í fyrra, og mik­il­vægi þess að ná stjórn á til­teknum svæðum í land­inu, einkum nærri olíu­auð­lindum, flug­völlum og öðrum mik­il­vægum svæðum, hafi gert slæma stöðu hættu­lega og enn verri.

Þá hafi straumur flótta­fólks í gegnum Líbíu, og þaðan yfir Mið­jarð­ar­hafið, verið mik­ill alveg síðan borg­ar­styrj­öld í land­inu braust út í Arabíska vor­inu 2011. Þrátt fyrir allt, hafi ekki tek­ist að koma í veg fyrir að illa útbúnir bátar, með alltof marga inn­an­borðs, leggi upp í för yfir hafið, oft með þeim skelfi­legu afleið­ingum að far­þegar hafa drukknað, í þús­unda­tali yfir margra ára tíma­bil.

Þrátt fyrir að við­ur­kenna mis­tök í Líbíu, þá segir Obama að hern­að­ar­í­hlutun í land­inu hafi verið nauð­syn­leg, og gert mikið gagn. En eft­ir­fylgni í hern­aði er flókin og erfið í fram­kvæmd, eins og dæmin sanna úr sög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár