65 greinst með delta-afbrigðið hér á landi

Full­bólu­sett fólk getur smit­ast, smitað aðra og „full­bólu­sett fólk getur veikst alvar­lega,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. 65 manns hafa greinst með delta-afbrigðið hér á landi – og enn á eftir að rað­greina smit sem hafa greinst síð­ustu daga.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

65 manns höfðu greinst með delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar hér á landi þann 13. júlí. Rað­grein­ing á smitum síð­ustu daga stendur enn yfir og því gæti þessi tala verið hærri í raun. Fyrsta til­fellið af delta-afbrigð­inu greind­ist 13. jan­úar.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að af þessum 65 smitum hafi sextán verið svokölluð afleidd smit inn­an­lands, þ.e. fólk sem hefur smit­ast af afbrigð­inu á Íslandi, ekki erlendis. Að minnsta kosti þrettán ein­stak­lingar sem greinst hafa með delta-afbrigðið voru full­bólu­settir en Þórólfur segir áreið­an­legar upp­lýs­ingar frá öllum greindum ferða­mönnum um bólu­setn­ingar ekki liggja fyrir.

[adspot]

Hætt var að skima bólu­setta ferða­menn við kom­una til lands­ins þann 1. júlí. Þórólfur segir koma til greina af sinni hálfu að breyta því, fari delta-afbrigðið að grein­ast í enn meira mæli.

[links]Þórólfur sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að ljóst væri að veirusmitin væru farin að dreifa sér nokkuð víða. Hann benti enn­fremur á að full­bólu­settir gætu smit­ast, þeir gætu smitað aðra og jafn­vel veikst alvar­lega. Í ljósi þró­un­ar­innar síð­ustu daga, þar sem 24 inn­an­lands­smit hafa greinst á aðeins fjórum dögum, búist hann jafn­vel við að herða þurfi ráð­staf­anir á landa­mærum. Þá úti­lokar hann ekki að grípa þurfi einnig til þess að setja aftur á aðgerðir inn­an­lands, ger­ist staðan tví­sýnni. Hann sagði svo í við­tali við Vísi að hann væri með minn­is­blað til ráð­herra í smíðum þar sem hann mun leggja til breyt­ingar á aðgerðum á landa­mær­unum. For­gangs­at­riði væri að stöðva flutn­ing á veirunni inn í landið.

Rann­sóknir benda til að delta-afbrigðið sé um 60 pró­sent meira smit­andi en þau sem áður höfðu komið fram. Það upp­götv­að­ist fyrst á Indlandi og setti þar af stað í vor stærstu bylgju far­ald­urs­ins frá upp­hafi. Það hefur nú greinst í vel yfir hund­rað löndum og er orðið ráð­andi afbrigði veirunnar í mörgum löndum Evrópu, m.a. á Spáni þar sem spreng­ing hefur orðið í fjölda til­fella að und­an­förnu.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í gær, þeim fyrsta sem hald­inn hefur verið í 49 daga, sagði Þórólfur „klárt“ að virkni bólu­efn­anna væri ekki eins góð og hann hafði von­ast eftir. Mikill meiri­hluti þeirra sem greinst hefur með veiruna inn­an­lands síð­ustu daga hefur verið full­bólu­settur. Þórólfur tal­aði því um „nýjan kafla“ í bar­átt­unni við COVID-19. Á meðan bólu­setn­ingar væru ekki útbreidd­ari í heim­inum en raun ber vitni megi áfram búast við nýjum afbrigðum veirunnar. Því þurfi fólk að lifa með sótt­varna­að­gerðum næstu mán­uði og hugs­an­lega lengur, „kannski í ár, ég veit það það ekki. Þetta er hvergi nærri búið þótt margir virð­ist líta svo á“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár