Þórólfur telur „fyllstu ástæðu til að hafa áhyggjur“ af þróuninni

„Það er klárt að virknin á bólu­efn­unum er ekki eins góð og maður hafði von­ast til,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. 23 hafa greinst inn­an­lands á tveimur vikum. Sautján þeirra voru full­bólu­settir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Ástæðan fyrir því að við köllum til þessa fundar er sú að við erum að hefja nýjan kafla í bar­átt­unni við COVID-19,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir er hann hóf yfir­ferð sína á stöðu far­ald­urs­ins hér á landi á upp­lýs­inga­fundi í dag. Áður hafði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn boðið áhorf­endur vel­komna á fund­inn með ein­kenn­is­orðum sínum: „Góðan og bless­aðan dag­inn.“ Þó að fæstir hafi lík­lega verið búnir að gleyma því hvernig Víðir heilsar á upp­lýs­inga­fundum almanna­varna og land­læknis er lík­legt að fæstir hafi búist við að heyra vina­lega kveðju hans aftur í bráð. Á slag­inu 11.03. Í beinni útsend­ingu. Mikill meiri­hluti lands­manna er full­bólu­settur. Það er hásumar. Fólk er á ferð og flugi. Inn­an­lands sem erlendis. Ekki hefur þótt til­efni til að halda upp­lýs­inga­fund í 49 daga eða frá því í lok maí.

En staðan er breytt. Enn einu sinni eru þeir mættir á skjá­inn, Þórólfur og Víðir. Að brýna fyrir fólki að gæta að sér. Jafnvel þótt það sé bólu­sett. Óvissa ríkir. Og þá er blásið til upp­lýs­inga­fundar.

[adspot]

„Við höfum hafið nýja kafla áður,“ sagði Þórólfur og að við­eig­andi væri að á þessum tíma­punkti, þegar 17 manns hafa greinst inn­an­lands á þremur sól­ar­hringum, að leggja mat á stöðu far­ald­urs­ins og lík­lega þróun hans næstu vikur. „Og hvort ástæða sé til ein­hverra aðgerða í ljósi upp­lýs­inga um fjölgun COVID-til­fella.“

Tíu greindust með veiruna inn­an­lands í gær, fimm voru utan sótt­kvíar. Allt var fólkið bólu­sett. Því hafa sam­tals sautján greinst hér á landi á þremur sól­ar­hringum og mik­ill meiri­hluti bólu­settur.

Frá afléttingum til mögulega reglna ná ný

Þórólfur rifj­aði upp að fyrir tæpum mán­uði, eða þann 27, júní, var ákveðið að aflétta öllum tak­mörk­unum inn­an­lands. Slíkar opin­berar aðgerðir höfðu þá staðið óslitið frá því 13. mars í fyrra.

Fyrsta júlí var svo aflétt ýmsum tak­mörk­unum á landa­mærum og hætt að skima þá sem voru með vott­orð um bólu­setn­ingu og fyrri sýk­ingar sem og börn. Skimun á landa­mærum, með einum eða öðrum hætti, hafði þá staðið frá því 15. júní í fyrra.

„For­sendur fyrir þessum til­slök­unum voru einkum þær að mjög fá til­felli voru að grein­ast inn­an­lands þrátt fyrir til­slak­anir,“ sagði Þórólfur. Einnig hafði gengið mjög vel að bólu­setja þjóð­ina og um síð­ustu mán­aða­mót hafði rúm­lega helm­ingur hennar verið full­bólu­settur. Reynslan hafði líka sýnt að smit hjá full­bólu­settum far­þegum var mjög lítið eða í kringum 0,03 pró­sent.

Einnig nefndi Þórólfur að nið­ur­stöður erlendra rann­sókna hefðu sýnt að bólu­setn­ing veitti um 50-60 pró­sent vörn gegn smiti af delta-afbrigð­inu og um 90 pró­sent gegn sjúkra­húsinn­lögnum.

„Þannig var hægt að færa rök fyrir aflétt­ingum. Að þær væru öruggar og tíma­bært að láta reyna á þetta svo­kall­aða hjarð­ó­næmi vegna bólu­setn­inga,“ sagði Þórólfur.

23 greinst innanlands á tveimur vikum

„En hvernig hefur svo gengið?“ spurði Þórólfur.

Ef skoðuð er þróun síð­ustu daga þá hafi tals­verð aukn­ing orðið í smitum inn­an­lands sem í flestum til­vikum megi rekja til smita á landa­mær­unum eða til skemmti­staða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Frá 1. júlí hafa 23 greinst inn­an­lands. Tíu voru í sótt­kví við grein­ingu, sautján full­bólu­settir og þrír óbólu­settir. Flest þess­ara smita eru af völdum delta-afbrigð­is­ins. Hinir smit­uðu eru á aldr­inum 20-50 ára. Þeir hafa að sögn Þórólfs verið með hefð­bundin COVID-ein­kenni, til­tölu­lega væg. Enginn hefur þurft á spít­ala­inn­lögn að halda.

Frá 1. júlí, eða á tveimur vikum, hafa 40 manns greinst á landa­mær­unum. Flest smit­anna eru af delta-afbrigð­inu, „sem þarf ekki að koma á óvart þar sem það er í miklum vexti erlendis.“

[adspot]

Þórólfur fór svo yfir sitt mat á stöð­unni.

„Við sjáum að smit eru að koma yfir landa­mærin með ferða­mönnum, einkum bólu­settum. Við sjáum að smit með fólki sem er að koma virð­ist einkum dreifast inn­an­lands frá þeim sem eru hér með tengsla­net, Íslend­ingum. Flest inn­an­lands­mitin eru hjá full­bólu­settum ein­stak­lingum. Ég tel fyllstu ástæðu til að hafa áhyggjur af þeirri þróun sem við erum að sjá. Þó að ég sé ekki með til­lögur til ráð­herra um hertar aðgerðir inn­an­lands nú gæti sú staða komið upp fljót­lega fari ástandið versn­andi.“

Ef grípa þurfi til aðgerða sagði Þórólfur að það yrðu þær sem við hefðum þegar góða reynslu af í far­aldr­inum hingað til.

„Að sjálf­sögðu bindum við vonir við að bólu­setn­ing muni skapa við­spyrnu gegn útbreiddum far­aldri,“ sagði hann og minnti á að um 70 pró­sent þjóð­ar­innar væri nú full­bólu­sett. Hins vegar væri áfram full ástæða til þess að hvetja alla til að við­hafa ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir til að hamla frek­ari útbreiðslu.

Góð en viðsjárverð staða

Þá er það einnig til skoð­unar, „hjá mér alla vega“ að kanna leiðir til þess að lág­marka hætt­una á því að veiran ber­ist yfir landa­mærin. Leiðir sem ekki yrðu of íþyngj­andi. Hann nefndi sem dæmi að krefja alla sem hingað koma, líka bólu­setta, að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi. Einnig væri hægt að hefja aftur skimun fólks frá ákveðnum áhættu­löndum. Hins vegar væri hér ekki til staðar bol­magn til að skima alla sem hingað koma. Til þess er fjöldi ferða­manna of mik­ill.

„Þannig að þannig met ég stöðu okkar í heims­far­aldri, góða en við­sjár­verða,“ sagði Þórólfur og minnti enn og aftur á að „bar­átt­unni við COVID-19 er hvergi nærri lokið“. Veiran er enn útbreidd víða um heim. „Við þurfum að gæta vel að okkur og vera til­búin til að grípa til sótt­varna­að­gerða.“

Enn ætti eftir að koma í ljós hvort að hin útbreidda bólu­setn­ing hér á landi nái að vernda flesta og einkum við­kvæma, eins og von­ast sé til. „Það mun fram­tíðin bara skera úr um á næstu vikum og mán­uðum.“

Á meðan bólu­setn­ingar eru ekki útbreidd­ari í heim­inum en raun ber vitni megi áfram búast við nýjum afbrigðum veirunnar. Því þurfi fólk að lifa með sótt­varna­að­gerðum næstu mán­uði og hugs­an­lega lengur, „kannski í ár, ég veit það það ekki. Þetta er hvergi nærri búið þótt margir virð­ist líta svo á“.

Lítil áhætta og þó

Spurður hvort staðan sem upp er komin komi á óvart benti Þórólfur á að eng­inn hefði reynsl­una til að styðj­ast við, á því hver áhættan sé í mjög bólu­settu sam­fé­lagi. Aðeins við Íslend­ingar hefðum nú hana. „Áhættan er í pró­sentum mjög lág en það þarf ekki nema nokkra ein­stak­linga til að setja þetta af stað.“

Hann sagði að það sem hann væri hræddastur um „er að ef veiran verður mjög útbreidd og bólu­setn­ing ætlar ekki að halda mjög vel getur hún borist inn í við­kvæma hópa sem hafa jafn­vel svarað bólu­setn­ingu ver en aðrir eða illa.“

En fyrst tíðnin á sjúkra­húsinn­lögnum er lág, hvers vegna er ekki hægt að leyfa far­aldr­inum að eiga sinn gang, var spurt.

„Ég minni á það að þetta er nákvæm­lega sama umræðan og við áttum þegar þriðja bylgjan byrj­aði,“ sagði Þórólfur. Þá hafi aðgerðir verið gagn­rýndar þar sem veiran væri væg­ari og sjúkra­húsinn­lagnir ekki algengar. „Svo skall þetta yfir okkur einn, tveir og þrír.“ Ekki væri ástæða til að bíða þar til alvar­leg veik­indi fara að koma upp. „Það er það sem ég er að benda á.“

Virknin ekki eins góð og hann vonaði

Þórólfur sagði „klárt að virknin á bólu­efn­unum væri ekki eins góð og maður hefði von­ast til. Við erum að sjá það ger­ast að bólu­efni kemur ekki í veg fyrir smit þótt það komi í veg fyrir alvar­legar afleið­ingar. Við erum að upp­götva þetta jafn­óðum og ný vit­neskja kemur fram.“

Hann sagð­ist vel gera sér grein fyrir að það væri ekki „stemn­ing“ fyrir hert­ari aðgerðum í sam­fé­lag­inu. Það væri hins vegar ekki sitt hlut­verk að spá endi­lega í „stemn­ing­una“ heldur að hafa áhyggjur. Rétt væri að hans mati að staldra við.

Hann sagð­ist ekki vera að hvetja alla til að sitja heima. Engar reglur væru í gildi í sam­bandi við fjölda­tak­mark­anir. En fólk ætti að hugsa fyrir sig sjálft. Hvort það væri skyn­sam­legt að fara í mikið fjöl­menni eða á partí­staði niður í bæ. „Það er þetta sem ég er að reyna að brýna fyrir fólki. Og fólk á alveg að geta gert þetta án þess að það komi lög og reglur frá stjórn­völdum.“

Spurður hvort of hratt hafi verið farið í aflétt­ingar síð­ustu vikur sagði hann alltaf hægt að vera vitur eftir á. Það sé hins vegar hans mat að miðað við stöð­una þá hafi það verið skyn­sam­legt. „Ég hefði viljað sjá okkur geta haft betri stjórn á landa­mær­unum. Að við hefðum geta haldið áfram að skima eins og við gerðum. Það var ekki hægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár