Það er ekki að ástæðulausu að taílenskur matur er vinsæll um allan heim. Hann einkennist af samspili margra ólíkra bragðtegunda; sætu, súru, söltu, beisku og sterku í hárfínu jafnvægi, þegar vel er gert. Í Taílandi blandast saman aldagamlar matarhefðir og vestræn áhrif og úr verður bragð sem gerir taílenskan mat einstakan. Fullkomin taílensk máltíð inniheldur alla jafna súpu, nokkurs konar kryddaðan pottrétt og fisk eða grænmeti sem dýft er í bragðgóða sósu. Stundum er líka salat með. Eftirfarandi fimm hlutir eru alla jafna til í skápunum hjá öllum þeim sem elda taílenskt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir