Kona úr bakvarðasveit Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða handtekin

Konan er grunuð um að hafa falsað skjöl um menntun og starfs­leyfi sín sem sjúkra­liði. Þá er hún grunuð um að hafa stolið eða reynt að stela lyfjum.

Bolungarvík
Bol­ung­ar­vík Mynd: hiticeland.com

Kona úr bak­varða­sveit Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða sem starfað hefur í vik­unni á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík var hand­tekin í morgun. Hún er grunuð um að hafa falsað skjöl um menntun og starfs­leyfi sín sem sjúkra­liði. Þá er hún grunuð um að hafa stolið eða reynt að stela lyfjum. Konan var færð í fanga­geymslur á Ísafirði þar sem tekið var strok­sýni vegna mögu­legs Covid-19 smits. Rannsókn máls­ins er á byrj­un­ar­stigi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða í dag.

Gylfir Ólafsson for­stjóri stofn­un­ar­innar segir í til­kynn­ing­unni að þetta sé auð­vitað hörmu­legt atvik. „Okkur fannst við vera að ná vopnum okkar en svo kemur þetta ofan í allt sem á undan er gengið. Skjölum um menntun og starfs­reynslu var safnað þegar bak­varða­sveitin var sett saman, en við höfum því miður ástæðu til að halda að hún hafi fram­vísað fölsuðum gögnum.“

Þá kemur fram í að ábend­ingar hafi borist í gær­kvöldi og í nótt um að ekki væri allt með felldu og hafi strax verið byrjað að grípa til aðgerða. Málið hafi verið til­kynnt til lög­reglu í morgun og konan hand­tekin í kjöl­farið.

Ekki sé úti­lokað að konan hafi verið útsett fyrir smiti af COVID-19 og því verði gripið til víð­tækra var­úð­ar­ráð­staf­ana, til dæmis hafi lög­reglu­menn í morgun verið í hlífð­ar­fötum. Unnið sé að því að tryggja að starf­semi hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins rask­ist ekki og að öruggt sé að aðrir með­limir í bak­varða­sveit starfi áfram. Bak­varða­sveit verður boðin áfalla­hjálp, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár