Tæp 60% myndu greiða atkvæði gegn aðild að ESB

59,1% Íslend­inga myndu kjósa gegn aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu ef kosið yrði í dag. 40,9 pró­sent myndu kjósa með aðild. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir sam­tökin Já Ísland.

Meirihluti fólks 35 til 44 myndi greiða atkvæði með aðild

Ekki er mark­tækur munur á svörum karla og kvenna þegar kemur að því hvernig fólk myndi greiða atkvæði ef gengið yrði til atkvæða um aðild að ESB í dag. Hins vegar er mark­tækur munur á svörum fólks eftir aldri, búsetu, tekjum og menntun.

Minnsti stuðn­ing­ur­inn við aðild er í yngsta og elsta ald­urs­hópnum, ann­ars vegar 18 til 24 ára og hins vegar 55 ára og eldri. Í báðum hópum myndu í kringum 35% greiða atkvæði með aðild í dag en um 65% greiða atkvæði gegn. Mestur stuðn­ingur við aðild mælist í ald­urs­hópnum 35 til 44 ára, þar sem 52% myndu greiða atkvæði með aðild. 49% fólks á aldr­inum 25 til 34 myndu greiða atkvæði með aðild, en 51 pró­sent gegn.

Nánast jafnt í Reykjavík en mikil andstaða á landsbyggðinni

Hjá fólki sem er búsett í Reykja­vík eru hlut­föll þeirra sem myndu greiða atkvæði með og gegn aðild í dag nán­ast hní­f­jöfn. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur myndu 44% greiða atkvæði með aðild, en í öðrum sveit­ar­fé­lögum myndu 30% greiða atkvæði með aðild. Í þeim hópi er líka lang­mesta and­staðan við aðild, þar sem helm­ingur svar­enda seg­ist örugg­lega kjósa gegn aðild að ESB.

Mest andstaða hjá tekjulágum og mestur stuðningur hjá tekjuhæstu

Þegar afstaðan er skoðuð út frá fjöl­skyldu­tekjum kemur í ljós að mjög mikil and­staða mælist við ESB-aðild hjá þeim sem hafa tekjur undir 250 þús­undum. Þar segj­ast 86% myndu kjósa gegn aðild í dag. Hjá þeim sem hafa tekjur frá 250 til 399 þús­undum er hlut­fallið 73%. Hlut­fallið verður aðeins jafn­ara hjá þeim sem hafa 400 til 549 þús­und krónur á mán­uði, 57% myndu kjósa á móti þar, 59% í hópnum 550 og 799 þús­und og 53% í hópnum 800 til 999 þús­und á mán­uði.

Meiri­hluti þeirra sem hafa milljón eða meira í fjöl­skyldu­tekjur á mán­uði myndi hins vegar greiða atkvæði með aðild, eða 53%. Það er eini tekju­hóp­ur­inn þar sem meiri­hluti er með aðild að ESB.

53% þeirra sem eru með háskóla­próf myndu segja já við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu ef gengið yrði til kosn­inga í dag. 36% þeirra sem hafa fram­halds­skóla­próf myndu segja já og 33% þeirra sem eru með grunn­skóla­próf.

Könnunin var gerð dag­ana 14. til 25. jan­úar 2016 og var úrtakið 1440 manns, þar sem 888 svör­uðu. 718 manns tóku afstöðu til þess­arar spurn­ingar, og eru vik­mörk á bil­inu 2,7 til 3,6 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár