Fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar segir flokkinn vanta bæði forystu og stefnu

Sam­fylk­ing­una vantar for­ystu og hún hefur verið bæði stefnu- og ákvarð­ana­fælin í mörg ár. Vegna for­ystu­leysis er mál­flutn­ingur hans óskýr og almennur og þar af leið­andi er stefna hans óskýr. Þetta skrifar Ólína Þor­varð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og núver­andi vara­þing­maður flokks­ins, á blogg sitt í dag. „Í stað stefnu­festu sem er for­senda trú­verð­ug­leika í stjórn­málum hafa full­trúar flokks­ins farið of almennum orðum um almenn gildi í hverju mál­inu af öðru frekar en að beita sér af þunga í málum sem varða almanna­hag,“ skrifar Ólína.

„Sam­fylk­ingin hefur ekki náð neinni fót­festu eftir síð­ustu kosn­ingar enda glímir hún við aug­ljósa for­ystu­kreppu sem birt­ist grímu­laust á síð­asta lands­þingi þegar for­mað­ur­inn hélt velli með eins atkvæðis mun. Fleira kemur þó til sem ekki verður kennt for­manni flokks­ins, a.m.k. ekki ein­göngu. Þá á ég við þá stefnu- og ákvarð­ana­fælni sem ein­kennt hefur Sam­fylk­ing­una mörg und­an­farin ár og birt­ist ann­ars vegar í óljósri orð­ræðu, hins vegar í enda­lausri stefnu­mót­un­ar­vinnu og end­ur­skoðun gilda og starfs­að­ferða sem lítið er gert með loks þegar vinnan er afstaðin.“

Viðbrögð Katrínar Júl­í­us­dóttur vara­for­manns, þar sem hún kall­aði eftir alls­herjar end­ur­skoðun starfs­hátta flokks­ins, sé af þessum toga. Flokk­ur­inn þurfi hins vegar ekki meiri stefnu­mót­un­ar­vinnu, heldur stefnu sem hann geti verið stoltur af. „Hættum að hræra í henni og förum nú að tala fyrir henni, beita henni og heim­færa á mál­efni líð­andi stundar. Til þess þurfum við for­ystu sem stendur undir nafni og sýnir mál­efna­festu, fólk sem hlustað er á og hikar ekki við að taka stöðu í ein­stökum málum, heldur gengur fram af áræði og hug­sjón. Góður vilji er ekki nóg.“

Ólína segir skoð­ana­kann­anir sýna að for­ystu­menn Sam­fylk­ing­ar­innar hafi ekki náð eyrum eða trún­aði almenn­ings, en það væri samt ein­földun að kenna ein­göngu um mál­flutn­ingi núver­andi for­ystu flokks­ins. „Sam­fylk­ingin gerði marg­vís­leg og afdrifa­rík mis­tök á síð­asta kjör­tíma­bili. Þjökuð af erf­iðri stjórn­ar­setu sem á sér enga líka í stjórn­mála­sögu okkar yfir­gaf hún, nauðug viljug, þau þrjú mál sem ítrekað höfðu verið skil­greind sem þau mál sem Sam­fylk­ingin bæri helst fyrir brjósti og myndi ljúka: Fisk­veiði­stjórn­un­ar­málið, stjórn­ar­skrár­málið og ESB-umsókn­ina.“

Hún segir árangur rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur við end­ur­reisn efna­hags­lífs­ins hafa verið bæði van­met­inn og van­þakk­aðan, en samt megi segja að „Sam­fylk­ingin hafi upp­skorið eins og til var sáð á loka­spretti síð­asta kjörtima­bils: Íslend­ingar kusu yfir sig flokk­ana sem komu þjóð­ar­skút­unni á hlið­ina í hrun­inu 2008, enda er fólk fljótt að gleyma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár