Fjölmiðlastyrkjum hefur verið úthlutað

Þrjú stærstu útgáfu­fé­lög lands­ins skipta með sér rúm­lega 250 millj­ónum af þeim 400 millj­ónum sem ákveðið hefur verið að veita í sér­stakan rekstr­ar­stuð­ing við fjöl­miðla vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

23 fjölmiðlaveitur uppfylltu þau skilyrði sem þurfti til að fá sérstakan rekstrarstuðning.
23 fjöl­miðla­veitur upp­fylltu þau skil­yrði sem þurfti til að fá sér­stakan rekstr­ar­stuðn­ing. Mynd: Samsett

Árvakur, Sýn og Torg, þrjú stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, skipta með sér rúmum 250 millj­ónum af sér­stökum 400 millj­óna króna rekstr­ar­stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla, til að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Eitt hund­rað milljón króna þak var sett á stuðn­ing við hvert fjöl­miðla­fyr­ir­tæki. Árvakur fær sam­kvæmt úthlut­un­inni 99,9 millj­ónir, Sýn 91,1 milljón og Torg 64,7 millj­ónir. Tuttugu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki til við­bótar skipta svo þeim 150 millj­ónum sem eftir eru af stuðn­ings­upp­hæð­inni á milli sín.

Birtíngur útgáfu­fé­lag, sem gefur út Mannlíf, fær 24,5 millj­ónir, Myllu­setur, sem gefur m.a. út Við­skipta­blaðið og Fiski­fréttir, fær 20 millj­ónir, útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar fær tæpar 17,8 millj­ónir, N4 fær 13,5 millj­ónir og útgáfu­fé­lag Kjarnans fær tæpar 9,3 millj­ónir króna.

Bænda­sam­tök Íslands, sem gefa út Bænda­blaðið, fá einnig tæpa 9,3 millj­ónir króna og næst á lista eru svo hér­að­frétta­miðl­arnir Vík­ur­fréttir og Skessu­horn, sem fá vel á átt­undu milljón í stuðn­ing. MD Reykja­vík, sem gefur út tíma­ritið Iceland Review, fær 5,9 millj­ónir króna og Útvarp Saga fær 5,2 millj­ónir. Aðrir miðlar fá minna.

Alþingi sam­þykkti sl. vor að verja 400 millj­ónum kr. til verk­efn­is­ins og fól ráð­herra að setja reglu­gerð um úthlut­un­ina. Í henni var til­greint að við ákvörðun um fjár­hæð stuðn­ings yrði litið til trygg­inga­gjalds vegna launa­greiðslna til blaða- og frétta­manna, mynda­töku­manna, ljós­mynd­ara, rit­stjóra og aðstoð­ar­rit­stjóra á árinu 2019 vegna miðl­unar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá verði tekið mið af beinum verk­taka­greiðslum til sam­bæri­legra aðila, útgáfu­tíðni mið­ils­ins og fjöl­breyti­leika. Upp­lýs­ing­arnar skulu stað­festar af end­ur­skoð­anda.

Í reglu­gerð ráð­herra frá 3. júlí 2020 var fjöl­miðla­nefnd falin umsýsla máls­ins. Nefndin aug­lýsti eftir umsóknum 10. júlí sl. og umsókn­ar­frestur rann út 7. ágúst. Alls bár­ust 26 umsóknir um sér­stakan rekstr­ar­stuðn­ing, þar af 25 frá fjöl­miðla­veitum og ein frá félagi sem ekki telst fjöl­miðla­veita í skiln­ingi laga um fjöl­miðla. Alls upp­fylltu 23 umsóknir frá fjöl­miðla­veitum skil­yrði reglu­gerðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár