Þýska þingið samþykkir neyðarlánaveitingu til Grikklands með miklum meirihluta

Þýska þingið sam­þykkti nú í morgun þriðju neyð­ar­lána­veit­ing­una til Grikk­lands með yfir­gnæf­andi meiri­hluta. 454 þing­menn greiddu atkvæði með sam­komu­lag­inu en 113 gegn því. Átján sátu hjá.

Samþykkt þýska þings­ins er stór áfangi fyrir sam­komu­lagið og veit­ingu neyð­ar­lána til Grikk­lands. Í gær sam­þykktu þjóð­þing Spánar og Eist­lands sam­komu­lagið og búist er við því að hol­lenska þingið sam­þykki í dag. Sam­komu­lagið gerir ráð fyrir því að fyrsta greiðslan til Grikkja ber­ist í þess­ari viku svo þeir geti greitt afborgun af láni til Seðla­banka Evrópu á morgun.

Und­an­farna daga hefur mikið verið rætt um að Angela Merkel kansl­ari hafi ótt­ast upp­reisn í stjórn­ar­lið­inu vegna máls­ins og að það myndi reyn­ast henni erfitt að fá meiri­hlut­ann til að sam­þykkja sam­komu­lagið. Í annarri atkvæða­greiðslu tengdri Grikk­landi fyrr í sumar greiddu 60 þing­menn meiri­hlut­ans atkvæði gegn sam­komu­lagi og því hafði verið velt upp af fjöl­miðlum að enn fleiri þing­menn myndu gera það nú. Svo reynd­ist ekki vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár