Háskólanemar kalla eftir aðstoð

Rúmlega þriðj­ungur háskóla­nema á Íslandi mælist með miðl­ungs eða alvar­leg ein­kenni þung­lyndis. Háskóli Íslands bregst við kalli nem­enda.

Mikið hefur verið rætt um geð­heil­brigð­is­mál á und­an­förnum miss­erum. Fólk sem glímt hefur við and­leg veik­indi, aðstand­endur, félaga­sam­tök og fleiri hafa tekið þátt í þeirri umræðu og hefur ný rík­is­stjórn lofað því að geð­heil­brigð­is­mál muni hafa for­gang. Háskóli Íslands hefur brugð­ist við kalli nem­enda um aukna geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. Í febr­úar hófst hóp­nám­skeið í hug­rænni atferl­is­með­ferð sem hefur verið gagn­reynt og á að hjálpa nem­endum sem glíma við kvíða og þung­lyndi.

Sálfræðiþjónusta þarf að vera til staðar innan skólans

Rúmlega þriðj­ungur háskóla­nema á Íslandi mælist með miðl­ungs eða alvar­leg ein­kenni þung­lyndis. Um 20% nem­enda mælist einnig með kvíða­ein­kenni en oft er talað um að kvíði og þung­lyndi hald­ist í hendur.

Þetta sýnir rann­sókn sem gerð var í Háskóla Íslands, Háskól­anum á Akureyri og Háskól­anum í Reykja­vík í lok síð­asta árs. Rann­sókn­ina fram­kvæmdu þau Andri Hauk­steinn Oddsson og Halldóra Björg Rafns­dóttir, sál­fræð­ingar.

Samkvæmt þessu eru rúm­lega 4133 nem­endur Háskóla Íslands þung­lyndir. Ýmsar hug­myndir hafa flogið á milli manna um af hverju þetta sé svona en orsak­irnar hafa ekki verið rann­sak­aðar sér­stak­lega. Nið­ur­stöður þess­arar rann­sóknar eru hins vegar svip­aðar erlendum rann­sóknum, segir Halldóra Björg en hún og Andri Hauk­steinn ræddu nið­ur­stöð­urnar í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í jan­úar. Andri Hauk­steinn sagði í því við­tali að oft væri litið til háskóla­nema sem for­rétt­inda­hóps í sam­fé­lag­inu en umhverfi þeirra sé engu að síður mjög krefj­andi. Halldóra Björg sagði einnig að margir nem­endur geri sér ekki grein fyrir ein­kennum geð­rask­ana og leiti sér því síður aðstoðar. Hún sagði það nauð­syn­legt að sál­fræði­þjón­usta standi nem­endum til boða innan skól­ans.

Nemendur hafa kallað eftir breytingum

Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands hefur sett geð­heil­brigð­is­mál í for­gang und­an­farin miss­eri og barist fyrir því að sál­fræði­þjón­usta verði aukin við skól­ann. Elísabet Brynjars­dóttir, for­maður Stúd­enta­ráðs, skrif­aði pistil, sem birt­ist á Vísi í apríl á síð­asta ári þar sem hún ræddi meðal ann­ars um mik­il­vægi fræðslu á geð­heil­brigði fyrir nem­endur og að fræðsla geti aukið líkur á að fólk leiti sér aðstoðar. „En hvað ger­ist svo þegar að unga fólkið leitar sér aðstoðar? Aðgengi að sál­fræði­þjón­ustu við Háskóla Íslands er veru­lega skert. Við Háskóla Íslands starfar einn sál­fræð­ingur í hálfu stöðu­gildi. Hálft stöðu­gildi sál­fræð­ings fyrir tæp­lega 12.500 manns. Til sam­an­burðar má nefna að við­mið sam­taka banda­rískra skóla­sál­fræð­inga (NASP) gera ráð fyrir heilu stöðu­gildi sál­fræð­ings fyrir hverja 1.000 nem­endur,” sagði Elísabet.

Staðalímynd um hinn fátæka námsmann skaðleg

Elísabet sagði einnig í erindi, sem hún hélt á Háskóla­torgi í mars, að það væri skað­legt að staðalí­myndum um fátæka náms­menn væri ennþá haldið á lofti. Hún sagði það ekki eðli­legt að nem­endur sem séu í krefj­andi námi nái ekki endum saman, eigi ekki kost á raun­hæfu hús­næði eða geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. „Nýverið fór ég einmitt sjálf til sál­fræð­ings. Tíminn kost­aði 14.000 krónur. Þannig ef ég ætla að halda áfram að fara til sál­fræð­ings og ljúka þeirri með­ferð, verður það lík­lega í kringum 150.000 krónur. Þetta er auð­velt reikn­ings­dæmi. 150.000 krónur fyrir ein­stak­ling á Lín er frekar stór pakki,“ sagði Elísabet í erindi sínu.

Þrír af hverjum fjórum finna fyrir streitu

Könnun sem gerð var á meðal nem­enda á Heil­brigð­is­vís­inda­sviði gefur til kynna að þrír af hverjum fjórum nem­endum finni fyrir streitu. Elísabet Brynjars­dóttir, for­maður Stúd­enta­ráðs er einnig for­maður sviðs­ráðs Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs. „Það sem við tökum svona helst út úr þess­ari könnun er að 110 ein­stak­lingar af 809 höfðu þurft að seinka sér eða taka hlé á námi vegna álags og aðeins 85 ein­stak­lingar af 809, sem eru um 10%, vita hvaða úrræði eru í boði við Háskóla Íslands. 22% sem svör­uðu könn­un­inni voru með greinda geð­röskun og sömu­leiðis höfðu um 78% haft ein­beit­ing­ar­leysi eða átt erfitt með minni síð­ustu tvær vikur,” sagði Elísabet í sam­tali við Student.is í jan­úar, þegar hún kynnti nið­ur­stöður könn­un­ar­innar fyrir Stúd­enta­ráði.

Breskir háskólanemar einnig í vandræðum

Geð­heil­brigði háskóla­nema hefur líka verið rann­sakað í Bret­landi. Háskóla­nemar þar hafa einnig fundið fyrir kvíða- og þung­lynd­is­ein­kennum. Í grein sem birt­ist á vef­síðu The Guardian kemur fram að níu af hverjum tíu háskóla­nemum í Bret­landi eiga erfitt með að aðlag­ast háskólaum­hverf­inu. Flestir segj­ast eiga erfitt með að aðlag­ast auknum kröfum í nám­inu en margir upp­lifa einnig ein­angrun, fjár­hags­erf­ið­leika og erf­ið­leika við að búa á eigin vegum. Jon Wakeford, höf­undur grein­ar­innar, segir að nú sé tími til kom­inn að háskólar setji geð­heil­brigð­is­mál nem­enda sinna í for­gang.

Andlegri líðan ungs fólks á Íslandi hefur farið hrakandi

Und­an­farin ár hefur emb­ætti land­læknis rann­sakað and­lega heilsu þjóð­ar­innar og kemur þar í ljós að henni virð­ist fara hrak­andi ár frá ári. Ungt fólk er þar meira áber­andi en aðrir ald­urs­hópar og virð­ist and­legri líðan þeirra hraka mest. Í fréttum Stöðvar 2 þann 15. mars kom fram að sífellt fleira ungt fólk upp­lifi ein­mana­leika og óham­ingju. Sigrún Dan­í­els­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Land­lækni, sagði þar sam­fé­lags­miðla geta haft eitt­hvað um þetta að segja. Þar sé mikið af efni sem búi til óraun­hæfar vænt­ingar hjá ungu fólki. Með því að bera sig saman við aðra á sam­fé­lags­miðlum sem manni finnst hafa það betra en maður sjálfur þá sé auð­velt að verða meira ein­mana eða ein­angr­aður.

Um helmingur íslenskra ungmenna hugsað um að enda líf sitt

Á Íslandi taka 11 til 13 af hverjum hund­rað þús­und íbúum líf sitt á hverju ári. Árið 1991 var fyrst farið að skrá tíðni sjálfs­víga hér á landi en hún hefur lítið breyst síðan þá. Í tveimur rann­sóknum sem fram­kvæmdar voru í upp­hafi þess­arar aldar kemur í ljós að um helm­ingur íslenskra ung­menna á aldr­inum 16-25 ára hefur haft sjálfs­vígs­hug­leið­ingar. Af þessum hópi hafði einn af hverjum tíu gert eitt­hvað til þess að skaða sig. Þetta sagði Eng­il­bert Sig­urðs­son, yfir­læknir á geðsviði Land­spít­ala, í sam­tali við Arnhildi Hálf­dán­ar­dóttur á Frétta­stofu RÚV í sept­em­ber.

Tæp 40% nemenda eru 19-25 ára

Miðað við 20. febr­úar 2018 er heild­ar­fjöldi nem­enda í Háskóla Íslands 12.526. Af þessum fjölda eru tæp 40% á aldr­inum 19-25 ára, eða 4.637 nem­endur. 3.074 nem­endur eru á aldr­inum 26-30 eða 25%.

Vilja auka þjónustuna

Stjórn­endur Háskóla Íslands hafa heyrt köll nem­enda und­an­farin miss­eri og hafa ákveðið að bregð­ast við. Í febr­úar hófst hóp­nám­skeið í hug­rænni atferl­is­með­ferð við skól­ann, nem­endum að kostn­að­ar­lausu. Um er að ræða sex vikna langt nám­skeið, einu sinni í viku, tvær klukku­stundir í senn.

„Við erum að bregð­ast við stúd­entum og Stúd­enta­ráði sem hafa kallað eftir þessu í svo­lít­inn tíma,“ segir Róbert H. Har­alds­son, Svið­stjóri kennslu­mála. Róbert segir Stúd­enta­ráð hafa sett geð­heil­brigð­is­mál á odd­inn und­an­farin miss­eri en einnig sé horft til biðlista sem hafi mynd­ast hjá sál­fræð­ingum á vegum sál­fræði­deild­ar­innar og hjá náms- og starfs­ráð­gjöf.

Aðspurður út í rann­sókn Halldóru Bjargar og Andra Hauk­steins, þar sem kom í ljós að um þriðj­ungur háskóla­nema sé þung­lyndur, seg­ist Róbert hafa tekið eftir umræð­unni í sam­fé­lag­inu um geð­heil­brigð­is­mál ungs fólks en að háskól­inn sé ekki ein­ungis að bregð­ast við nið­ur­stöðum þeirrar rann­sóknar heldur helst því sem nem­endur hafa verið að kalla eftir und­an­farið. „Við vildum sjá hvernig nem­endur myndu bregð­ast við og það virð­ast vera mjög góð við­brögð enn sem komið er og kannski kemur jafn­vel enn þá meira,” segir Róbert. Fyr­ir­myndin að nám­skeið­inu sem boðið verður upp á sé úrræði sem hafi verið þróað og reynt á Land­spít­al­anum og heilsu­gæsl­unni.

Róbert segir mark­miðið að geta séð strax hvernig reyn­ist að bjóða nem­endum upp á nám­skeið af þessu tagi og meta í kjöl­farið hvernig hægt sé að bæta þjón­ust­una enn frekar í haust. „Þetta er sem sagt aðeins stærra en þegar fólk er kannski 8-12 manns saman í hóp. Það er verið að ná til stærri hóps með gagn­reyndri aðferð þar sem fólk fær kennslu­efni og þetta er leitt af mjög færum sál­fræð­ingum,“ segir Róbert.

Námskeiðið fer vel af stað

Fjóla Katrín Steins­dóttir og Eva Rós Gunn­ars­dóttir, sál­fræð­ingar á Lands­spít­al­anum hafa umsjón með nám­skeið­inu. Fjóla Katrín segir það byrja vel. „Það eru um 20 nem­endur á nám­skeið­inu hjá okkur. Við erum búin með tvö skipti og það eru fjögur eftir. En þetta fer vel af stað,“ segir Fjóla.

Aðeins 10% þekkja úrræðin

Róbert segir það von­brigði að svo fáir nem­endur séu með­vit­aðir um þau úrræði sem í boði eru við skól­ann. „Það er óheppi­legt ef svo er. Ég vona að við höfum verið að kynna þetta betur. Því það er rétt, við erum nátt­úru­lega með ýmis­legt í gangi. Við erum með náms­ráð­gjöf þar sem er sál­fræð­ingur í 50% starfi. Við erum með sál­fræði­ráð­gjöf í gegnum sál­fræði­deild­ina. En ég var nú að vona að það væru fleiri sem þekktu úrræðin en 10%,” segir Róbert. Hann segir mik­il­vægt að átta sig á hversu víð­feðmur vand­inn er svo hægt sé að ein­beita sér að því að leysa hann. „Og við gerum það að ein­hverju leyti til dæmis með því að sjá hvort það séu langir biðlistar í úrræðin sem við bjóðum upp á. Ég hef nú séð þetta svo­lítið þannig að þetta sé ekki bara spurn­ing um eitt­hvað eitt útspil. Það sem við byrjum á núna er að fá þessa reyndu sál­fræð­inga til að bjóða upp á þetta úrræði. Það hefur verið reynt annar staðar. Það skilar árangri. Það að vísu þarf að skima fyrir það því það gagn­ast ekki öllum. Það eru vanda­mál sem nem­endur hafa sem þarf að fást við í einka­með­ferð eða í minni hópum”.

„Við teljum að það sé líka þörf á að styrkja sál­fræði­ráð­gjöf við skól­ann. Það er í far­vatn­inu. Að styrkja það starf, sem er gott, en það þarf bara að bæta við það.” Róbert segir að það þurfi einnig að skoða námsum­hverfi nem­enda. „Þetta er nátt­úru­lega líka spurn­ing um hús­næði, náms­lán, álag. Það er margt sem kemur inn í þetta.“

Úrræði sem á að hjálpa nemendum

Róbert bendir einnig á að þetta nýja nám­skeið sé nokkuð stórt verk­efni. „Þetta er hóp­með­ferð­ar­úr­ræði, það er ekki bara eitt­hvað pínu­lítið verið að segja frá heldur er þetta hug­ræn atferl­is­með­ferð, gagn­reynd. Þetta eru 6 vikur þar sem þú færð gögn og náms­efni og ef nem­endur koma þannig út úr skimun­inni að þetta sé úrræði sem geti gagn­ast þeim þá á þetta að hjálpa þeim. Þetta á að vera úrræði sem hjálpar tölu­vert. Þetta er eitt­hvað sem hefur verið prófað,“ segir Róbert að lokum.

Höfundur er nemi í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár