NPA veitir fólki tækifæri til að lifa sjálfstæðu og virku lífi

Frumvarp um þjón­ustu við fatlað fólk með miklar stuðn­ings­þarfir var sett fram á síð­asta þingi og í því er not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð lög­fest. Mikill vilji hefur verið fyrir því að afgreiða þann lið sem snýr að NPA fyrir kosn­ingar.

Lengi hefur verið beðið eftir að NPA verði sett í lög en þingmenn hafa sýnt áhuga að afgreiða þann lið nýs frumvarps fyrir næstu kosningar.
Lengi hefur verið beðið eftir að NPA verði sett í lög en þing­menn hafa sýnt áhuga að afgreiða þann lið nýs frum­varps fyrir næstu kosn­ingar.

NPA, eða not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð, er í stuttu máli þjón­ustu­form sem tryggir fötl­uðu fólki sjálf­stæði í eigin lífi. Aðstoð sem þeim er veitt er á þeirra eigin for­sendum, þ.e. fatlað fólk ræður því sjálft hvaða þjón­usta er veitt, hvernig þjón­ust­unni er háttað, hver veitir hana og hvenær hún er veitt.

Frumvarp Þor­steins Víglunds­sonar um þjón­ustu við fatlað fólk með miklar stuðn­ings­þarfir var sett fram á þingi í byrjun apríl síð­ast­liðnum en í því er NPA og fyr­ir­komu­lag þeirrar þjón­ustu sveit­ar­fé­laga lög­fest. Margir þing­menn hafa lýst yfir vilja til að afgreiða þann lið sem snýr að not­enda­stýrðri aðstoð áður en kosið verður á ný þann 28. októ­ber.

Hægt að semja við sveitarfélagið

Á vef­síðu NPA mið­stöðv­ar­innar kemur fram að fatlað fólk geti samið við sitt sveita­fé­lag um að sjá um og skipu­leggja sína eigin aðstoð. Ein­stak­ling­ur­inn og sveit­ar­fé­lagið gera þá svo­kall­aðan NPA samn­ing sín á milli. Við gerð NPA samn­inga þarf ein­stak­ling­ur­inn að meta sínar þarfir og vænt­ingar, enda er sjálfs­mat mik­il­vægt atriði í hug­mynda­fræð­inni um sjálf­stætt líf.

Síðan koma sveit­ar­fé­lagið og ein­stak­ling­ur­inn sér saman um þjón­ustu­þörf ein­stak­lings­ins, þar sem sjálfs­matið er lagt til grund­vallar. Út frá því er svo áætlað mán­að­ar­legt fjár­fram­lag sveit­ar­fé­lags­ins til ein­stak­lings­ins svo að hann geti séð um og skipu­lagt þjón­ust­una sjálfur eftir sínum þörfum og henti­semi.

Fjár­magnið sem ein­stak­ling­ur­inn fær skipt­ist í þrjá hluta. Í fyrsta lagi 85% laun og launa­tengd gjöld til aðstoð­ar­fólks. Í öðru lagi 10% umsýslu­kostn­aður sem fer til umsýslu­að­ila og þriðja lagi 5% vegna útlagðs kostn­aðar við aðstoð­ar­fólk.

Einstaklingurinn fær völd og ábyrgð

Þegar ein­stak­lingur er kom­inn með NPA er hann í hlut­verki verk­stjórn­anda aðstoð­ar­fólks síns og fær þar af leið­andi völd og ábyrgð. Einnig hefur hann val um að sjá alfarið um umsýsl­una sjálfur eða leita til umsýslu­að­ila eins og NPA mið­stöðv­ar­innar.

Ætli ein­stak­ling­ur­inn ætlar að taka að sér umsýsl­una sjálfur þá fylgja því mörg verk­efni og mikil ábyrgð, enda ger­ist hann vinnu­veit­andi aðstoð­ar­fólks síns. Hann þarft að kynna sér ítar­lega lög og reglur um vinnu­vernd, skatta­mál, trygg­inga­mál, kjara­mál og annað sem vinnu­veit­andi þarf að vera með á hreinu.

Verk­stjórn­anda­hlut­verk­inu fylgir að ein­stak­ling­ur­inn velur sér aðstoð­ar­fólk sem hentar lífstíl og kröfum hans með því að útbúa aug­lýs­ingu og taka við­töl við umsækj­endur. Aðstoð­ar­fólk vinnur svo sam­kvæmt starfs­lýs­ingu og/eða leið­bein­ingum sem hann semur sjálfur.

Frelsið aukið til muna með NPA

Ákvarð­anir um hvaða verk eru unnin eru algjör­lega í höndum ein­stak­lings­ins sjálfs, hvaða aðstoð er veitt og við hvaða athafnir. Hann ákveður hvar hjálpin fer fram, heima eða hvað sem hann gerir í líf­inu og hefur þannig frelsi til að ákveða hvar hann býr, hvert hann ferð­ast og hvað hann gerir.

Hann stýrir því hvenær hann fer á fætur, að versla, í bað, elda mat, í vinnu eða skóla, stunda áhuga­mál o.s.frv. Þannig skipu­leggur hann aðstoð­ina eftir sínum eigin lífs­stíl með því að skipu­leggja vinnu­fyr­ir­komu­lag og vak­taplan ásamt því að stýra því hvernig hlut­irnir eru fram­kvæmdir.

Frekari upp­lýs­ingar má nálg­ast á vef­síðu NPA mið­stöðv­ar­innar.

Verkefnisstjórn þróaði leiðir til að taka upp NPA

Á vef­síðu Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að verk­efn­is­stjórn, sem skipuð var af vel­ferð­ar­ráð­herra, hafi leitt sam­starfs­verk­efni ríkis, sveit­ar­fé­laga og heild­ar­sam­taka fatl­aðs fólks. Það mið­aði að því að þróa leiðir til að taka upp not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð við fatlað fólk á mark­vissan og árang­urs­ríkan hátt.

Verk­efn­is­stjórnin er skipuð í sam­ræmi við bráða­birgða­á­kvæði í lögum um mál­efni fatl­aðs fólks sem tók gildi 1. jan­úar 2012, sam­hliða ýmsum öðrum breyt­ingum á lög­unum vegna ákvörð­unar um flutn­ing ábyrgðar á þjón­ustu við fatlað fólk frá ríki til sveit­ar­fé­laga.

Hlutverk verk­efn­is­stjórnar var að móta ramma um fyr­ir­komu­lag NPA. Í því skyni áttu sveit­ar­fé­lög, í sam­ráði við verk­efn­is­stjórn­ina, að leit­ast við að bjóða fólki með fatl­anir not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð til reynslu í til­tek­inn tíma.

Allir ættu að eiga rétt á NPA

Tabú, femíníska fötl­un­ar­hreyf­ingin, fagnar því að not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð verði lög­fest. Hreyf­ingin gerði þó nokkrar athuga­semdir þegar frum­varpið leit dags­ins ljós við þann lið sem snéri að NPA. Í fyrsta lagi mælti Tabú gegn því að ein­stak­lingur eigi ein­ungis rétt á þessum þjón­ustu­lið ef að hann hefur miklar og við­var­andi þjón­ustu­þarfir. Not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð sé frá­bært tæki til þess að veita þjón­ustu til fólks óháð því hver skerð­ing þess er, hversu mikla aðstoð það þarf, hvar það býr, með hverjum og hvernig það lifir lífi sínu.

Sumar skerð­ingar eru breyti­legar og stundum sívax­andi, segir í umsögn­inni. Jafn­framt sé sumt fatlað fólk með minni stuðn­ings- og þjón­ustu­þarfir en vilji aug­ljós­lega stjórna lífi sínu sjálft og þeirri aðstoð sem að það fær. Hefð­bundin félags­þjón­usta sem er í boði, til dæmis félags­leg heima­þjón­usta, lið­veisla og heima­hjúkrun, sé mjög tak­mark­andi að mörgu leyti. Þessi þjón­usta tak­mark­ist við ákveðnar klukku­stundir, sé ein­ungis veitt á ákveðnum tímum og veiti ein­ungis aðstoð við ákveðna þætti.

Í umsögn­inni kemur fram:

„Það fólk sem hefur barist hvað mest fyrir not­enda­stýrðri per­sónu­legri aðstoð, bæði hér á landi og erlendis, leggur þunga áherslu á að fötl­uðu fólki sé ekki mis­munað á grund­velli teg­undar skerð­ingar þegar það sækir um not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð. Að tak­marka aðgengi þessa hóps fatl­aðs fólks að NPA endar oft með því að aðstand­endur þurfa að hlaupa til síend­ur­tekið að bjarga mál­unum.

Heimili fatl­aðs fólks, líkt og önnur heim­ili í land­inu, eru grið­ar­staðir, staðir þar sem frið­helgi á að ríkja. Því er ekki sæm­andi að bjóða ein­ungis upp á þjón­ustu sem neyðir fólk til að opna heim­ili sín fyrir einum í dag og öðrum í næstu viku, fólki sem það nær aldrei að kynn­ast per­sónu­lega. Per­sónu­leg aðstoð er aug­ljós­lega mik­il­vægt val fyrir þennan hóp fólks.“

Mikilvægt að nýta vinnu verkefnastjórnar

Tabú veltir fyrir einnig fyrir sér hvers vegna ekki sé gerð krafa um að þær leið­bein­ingar og hand­bók sem ráð­herra á að gera skuli byggja á þeirri vinnu sem nú þegar hefur verið unnin af verk­efna­stjórn um not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð. Mikil vinna hefi verið lögð í að skapa ramma utan um þessa þjón­ustu­leið síð­ustu sex árin, þar sem í upp­hafi var mikið sam­ráð haft við fatlað fólk. Mik­il­vægt sé að nýta þá vinnu, í stað þess að finna upp hjólið á ný.

Heyf­ingin bendir á að búið sé að vera að inn­leiða not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð frá árinu 2011. Mikil grunn­vinna liggi fyrir og rann­sókn hafi verið unnin á fram­gangi verk­efn­is­ins. Eru þær því orðnar lang­þreyttar á því að ekki sé búið að lög­festa þessa þjón­ustu­leið og stöðugt sé verið að koma sveit­ar­fé­lögum undan því að veita þjón­ust­una með því að fjalla um til­rauna­verk­efni og inn­leið­inga­verk­efni.

Hvetja ríkisstjórnina til að ganga alla leið

Tabú gerir einnig athuga­semd við að skammta eigi samn­inga næstu fimm árin enda muni það við­halda þeirri gjá sem skap­ast hefur á milli fólks með NPA og ekki, ásamt því að þeir sem hafa sterkasta bak­landið og bestu for­send­urnar til þess að berj­ast fá samn­inga en ekki hinir.

Einnig hvetja þær rík­is­stjórn­ina til þess að ganga alla leið og lög­festa NPA sem jafn­rétt­háa þjón­ustu­leið og allar aðrar. Í umsögn­inni segir að á Norð­ur­lönd­unum sé ásókn í NPA hæg­vax­andi og því sé engin ástæða til þess að halda að annað gildi á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár