Samherji greiddi hærra hlutfall af virði afla í veiðigjöld í Namibíu árið 2018 en á Íslandi

Veiði­gjöld hækk­uðu umtals­vert í Namibíu árið 2018. Fram að þeim tíma hafði Samherji ein­ungis greitt í kringum eitt pró­sent af sölu­and­virði afla í veiði­gjöld. Á Íslandi hefur þró­unin hins vegar verið að mestu öfug.

Á árinu 2018 greiddi Samherji tíu pró­sent af með­al­verði þess hrossa­makríls sem fyr­ir­tækið veiddi í Namibíu í veiði­gjöld þar í landi. Á sama tíma greiddi Samherji 8,4 pró­sent af með­al­verði þess afla sem það veiddi á Íslandi í veiði­gjöld til rík­is­sjóðs Íslands.

Því var staðan þannig á árinu 2018 að Samherji greiddi hlut­falls­lega hærri veiði­gjöld í Namibíu fyrir að veiða ein­vörð­ungu hrossa­makríl en fyr­ir­tækið gerði fyrir að veiða t.d. þorsk, karfa, síld og loðnu sam­kvæmt úthlut­uðum veiði­heim­ildum hér­lendis.

Þetta kemur fram í skýrslu Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um sam­an­burð á greiðslu Samherja fyrir veiði­rétt í Namibíu og á Íslandi. Skýrsl­unni, sem unnin var af Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands, var skilað inn til ráðu­neyt­is­ins 24. júní, enn fyrst birt í gær, 54 dögum síðar.

Ekki hægt að svara beiðninni eins og hún var sett fram

Í skýrslu­beiðn­inni var kallað eftir upp­lýs­ingum að Kristján Þór myndi flytja Alþingi skýrslu um sam­an­burð á greiðslum Samherja fyrir veiði­rétt í Namibíu og á Íslandi á grund­velli upp­lýs­inga frá Fiski­stofu og í þeim skjölum sem RÚV fjall­aði um í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, þar sem meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­ganga fyr­ir­tæk­is­ins þar í landi var opin­beruð. Óskað var eftir því að sam­an­burð­ur­inn yrði gerður á grund­velli upp­lýs­inga frá Fiski­stofu og þeim skjölum sem RÚV hefði fjallað um í þætt­inum, en frum­gögn sem þátt­ur­inn byggði meðal ann­ars á voru birt af Wikileaks í kjöl­far sýn­ingu þátt­ar­ins.

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands taldi sig hins vegar ekki geta svarað skýrslu­beiðn­inni eins og hún væri sett fram, og því var ein­ungis stuðst við opin­berar upp­lýs­ingar og upp­lýs­ingar frá Samherja.

Í inn­gangi skýrsl­unnar segir er þessi afstaða útskýrð með eft­ir­far­andi hætti: „Ásakanir sem komu fram í Kveik um greiðslur til þeirra sem úthlut­uðu veiði­rétti í Namibíu eru til rann­sóknar hjá yfir­völdum á Íslandi og í Namibíu. Rík­is­út­varpið hefur eftir Karli Cloete, einum aðal­rann­sak­anda spill­ing­ar­lög­reglu í Namibíu, í frétt 27. maí, að fjár­hæðin, sem ráða­menn í Namibíu eru kærðir fyrir að hafa þegið til þess að tryggja fyr­ir­tækjum í eigu Íslend­inga veiði­leyfi, sé nú 130 millj­ónir namibískra doll­ara, en það jafn­gildir 1 millj­arði íslenskra króna miðað við gengi 27. maí. Hann gerir ráð fyrir að fjár­hæðin eigi eftir að hækka [...]Meðan beðið er nið­ur­stöðu rann­sókna er vart við hæfi að taka afstöðu til kæru­efn­anna og er því ekki fjallað um þau í skýrsl­unni.“

Veiðigjöldin hækkuðu skarpt árið 2018

Í skýrsl­unni kemur fram að Samherji hafi alls greitt 1,5 millj­arða króna í veiði­gjöld í Namibíu á árunum 2012 til 2018. Verðmæti þess afla sem Samherji veiddi í Namibíu á því tíma­bili var 50,4 millj­arðar króna á tíma­bil­inu. Lang­mestu verð­mætin féllu til árið 2018, þegar virði afla var 11,1 millj­arðar króna og greidd veiði­gjöld voru 1,1 millj­arðar króna. Sam­an­lögð veiði­gjöld fyrir fyrir árin 2012 til 2017, þegar sölu­verð­mæti afla í Namibíu var 39,3 millj­arðar króna, voru 414 millj­ónir króna.

Kristján Þór Júlíusson lét vinna skýrsluna. Hún var tilbúin í júní en var ekki birt fyrr en 54 dögum síðar.
Kristján Þór Júl­í­us­son lét vinna skýrsl­una. Hún var til­búin í júní en var ekki birt fyrr en 54 dögum síðar.

Vert er að taka fram að töl­urnar byggja á upp­lýs­ingum sem Samherji lét Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands í té um afla útgerða sinna í Namibíu.

Ástæða þess að veiði­gjöldin voru svo lág árin 2012 til 2017 er sú að á þeim árum var ákveðið gjald greitt fyrir hvert tonn af veiddum hrossa­makríl í Namibíu, en það gjald var það lágt að greidd veiði­gjöld voru á bil­inu 0,8 til 1,3 pró­sent af með­al­verði afl­ans.

Árið 2018 breytt­ist hins vegar veiði­gjalda­kerfið í Namibíu og veiði­gjöldin voru þá skil­greind sem hlut­fall af afla­verð­mæti. Fyrir skip sem vann fisk­inn um borð og var með bæki­stöðvar í Namibíu, líkt og Samherji seg­ist hafa verið með, var það hlut­fall tíu pró­sent.

Greiddu samtals meira í veiðigjöld á Íslandi

Á sama tíma­bili, 2012 til 2018, greiddi fyr­ir­tækið 4,7 millj­arða króna í veiði­gjöld á Íslandi. Í heild greiddi fyr­ir­tækið því hærri veiði­gjöld hér­lendis á tíma­bil­inu en í Namibíu en hafa ber í huga að starf­semi Samherja var mun umfangs­meiri á Íslandi en í Namibíu á tíma­bil­inu.

Það hlut­fall af með­al­verði sem Samherji greiddi í veiði­gjöld var líka afar mis­jafnt milli ára. Árið 2012 var það til að mynda 12,4 pró­sent af með­al­verði og árið 2013 15,1 pró­sent.

Það ár urðu rík­is­stjórn­ar­skipti og voru veiði­gjöld lækkuð skömmu eftir að ný stjórn tók við.

Síðan þá, á árunum 2014 og út árið 2018, hafa veiði­gjöld Samherja, verið 5,1 til 10,9 pró­sent af með­al­verði afla. Lægst voru þau árið 2016 en árið 2018, líkt og áður sagði, 8,4 pró­sent.

Þörf á góðu sambandi við ráðherra

Í skýrsl­unni er fjallað um þann mun sem er á fyr­ir­komu­lagi afla­heim­ilda á Íslandi og í Namibíu. Þar segir að á Íslandi sé réttur hand­hafa til þess að nýta afla­hlut­deildir ótíma­bund­inn. Rétt­ur­inn gangi kaupum og sölum á mark­aði og skip heldur sinni afla­hlut­deild þar til hún sé færð á annað skip eða seld öðru fyr­ir­tæki. „Í Namibíu er afla­heim­ild ekki eins traust. Þar þurfa fyr­ir­tæki að hafa nýt­ing­ar­rétt fyrir fisk­teg­undir sem þau vilja veiða. Nýt­ing­ar­rétti er úthlutað í 7, 10 eða 15 ár í senn. Ef fyr­ir­tæki á nýt­ing­ar­rétt getur það fengið úthlutað kvóta. Á hverju ári ákveður ráð­herra hvert afla­mark er fyrir hverja teg­und og hann úthlutar kvóta til hand­hafa nýt­ing­ar­réttar eftir henti­semi. Ráðherra má einnig halda eftir hluta kvót­ans og úthluta honum seinna á árinu[...]Þetta gerir ráð­herra kleift að nota kvót­ann sem vald­beit­ing­ar­tæki gegn útgerð­unum. Því er ekki hægt að treysta á að hægt sé að starf­rækja útgerð til langs tíma án þess að vera í góðu sam­bandi við ráð­herra.“

18 þingmenn lögðu fram beiðnina

Skýrslu­beiðnin var lögð fram af 18 þing­mönnum þann 3. febr­úar síð­ast­lið­inn. Fyrsti flutn­ings­maður skýrslu­beiðn­innar var Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ur, for­maður Við­reisn­ar, en með henni voru 17 þing­menn úr Við­reisn, Píröt­um, Sam­fylk­ing­unni og þing­manni utan flokka.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var fyrsti flutningsmaður beiðni um að skýrslan yrði gerð.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, var fyrsti flutn­ings­maður beiðni um að skýrslan yrði gerð.

Í grein­ar­gerð með skýrslu­beiðn­inni sagði að ákvörðun veiði­gjalda hafi lengi verið ágrein­ings­mál í íslenskum stjórn­mál­um. Ekki hafi verið meiri­hluti fyrir því að láta gjald fyrir afnot af sam­eig­in­legri auð­lind lands­manna ráð­ast á mark­aði þar sem til­tek­inn hluti veiði­heim­ilda yrði ár hvert boð­inn til sölu til ákveð­ins tíma.

Þess í stað hafi gjaldið verið ákveðið með lög­um, sem sætt hafa reglu­legum breyt­ing­um. „End­ur­gjald fyrir einka­af­not af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar hefur þannig verið háð póli­tísku mati. Það póli­tíska mat hefur aftur í veru­legum atriðum byggst á áliti þeirra hags­muna­að­ila í útgerð sem eru full­trúar þeirra fyr­ir­tækja sem gjaldið greiða. Með öðrum orðum hafa verið bein tengsl á milli þess sem útgerð­irnar hafa talið sig geta greitt og þess sem meiri­hluti á Alþingi hverju sinni hefur talið að þær gætu greitt.“

Þær upp­lýs­ingar sem fram hafi komið í svoköll­uðum Sam­herj­a­skjöl­um, sem RÚV fjall­aði um í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, hafi gefið til­efni til að bera saman hvað eitt af stærstu og áhrifa­rík­ustu fyr­ir­tækj­unum á þessu sviði væri reiðu­búið til að greiða fyrir veiði­rétt á Íslandi og í Namib­íu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár