Vísindamenn uggandi vegna nýrra afbrigða veirunnar

Þó að litlar rann­sóknir á rann­sókn­ar­stofum bendi til þess að mótefni fyrri sýk­inga af völdum kór­ónu­veirunnar og að vörn sem bólu­efni eiga að veita dugi minna gegn suð­ur­a­fríska afbrigð­inu en öðrum er ekki þar með sagt að sú yrði nið­ur­staðan „í raun­heimum”.

Ungur drengur bíður eftir mataraðstoð í Jóhannesarborg. Útbreiðsla faraldursins í Suður-Afríku hefur valdið því að öll þjónusta er í hægagangi.
Ungur drengur bíður eftir mat­ar­að­stoð í Jóhann­es­ar­borg. Útbreiðsla far­ald­urs­ins í Suður-Afríku hefur valdið því að öll þjón­usta er í hæga­gangi. Mynd: EPA

Vís­bend­ingar eru um að bólu­efni sem þegar hafa verið þróuð gegn COVID-19 veiti ekki vörn gegn sýk­ingu af afbrigði kór­ónu­veirunnar sem fyrst greind­ist í Suður-Afríku. Óvissa um ónæmi sem bólu­efni veita sem og fyrri sýk­ingar af COVID-19 hefur einnig vaknað vegna ann­arra stökk­breyttra afbrigða veirunnar. Vís­inda­menn víða um heim vinna nú hörðum höndum að því að kom­ast að hinu sanna með því að fara yfir gögn sem streymt hafa inn um nýju afbrigðin síð­ustu daga.

„Sum gögnin sem ég hef séð und­an­farna daga hafa valdið mér miklum ótta,“ hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir Daniel Altmann, ónæm­is­fræð­ingi við Imperial College í London. Hann segir mögu­legt að nýju bólu­efnin gegn COVID-19 veiti ekki full­nægj­andi vörn gegn sumum hinna nýju afbrigða.

Gögnin sem hann vísar til eru nið­ur­stöður úr blóð­rann­sóknum á litlum hópi fólks sem annað hvort hefur þegar fengið COVID-19 eða bólu­setn­ingu gegn sjúk­dómnum. Í rann­sókn­inni var aðeins kannað hvort að mótefni fólks­ins væru nægj­an­leg til að hindra að veiran sýkti frumur lík­am­ans en ekki hver áhrif ann­arra þátta í ónæm­is­kerfi þeirra gætu verið. Enn er því mikil vinna fyrir höndum áður en hægt er að slá nokkru föstu. „Skipta þessar breyt­ingar [á veirunni] ein­hverju máli? Ég veit það satt best að segja ekki,“ hefur Nature eftir Paul Bieniasz, veiru­fræð­ingi við Rockefeller-háskóla í New York-borg, en hann kom að einni blóð­rann­sókn­inni.

Þó að mörg afbrigði veirunnar sem hafa litið dags­ins ljós síð­ustu vikur veki áhyggjur þar sem þau eru talin meira smit­andi en önnur er það sér­stak­lega stofn­inn sem upp­götv­að­ist í Suður-Afríku sem vís­inda­menn ótt­ast.

Afbrigðið, sem hefur fengið nafnið 501Y.V2 í heimi vís­ind­anna, er talið hafa orðið til þess að mik­ill far­aldur breidd­ist hratt út í aust­ur­hluta Suður-Afríku í nóv­em­ber og hefur síðan þá beiðst út um allt landið og nú til ann­arra landa. Það var Tulio de Oliveira, líf­tækni­fræð­ingur við KwaZulu-Natal-háskóla í Durban sem greindi afbrigðið fyrst og komst teymi hans að því að miklar stökk­breyt­ingar eru að finna í gadda­próteini hennar frá flestum öðrum afbrigðum. Það er gadda­próteinið sem kór­ónu­veirur draga nafn sitt af og er það sem veldur því að veiran getur fest sig við frumur manns­lík­am­ans og kom­ist inn í þær.

Fólk að sýkjast aftur

Héraðið Austur-Höfði varð illa úti í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins og þegar hann bloss­aði upp að nýju í sama hér­aði í nóv­em­ber og nýja afbirgðið greind­ist fóru að vakna spurn­ingar um hvort ónæmi af fyrri afbrigðum veitti ekki vörn gegn sýk­ingu af völdum þess nýja.

Í kjöl­farið hófust rann­sóknir byggðar á blóð­sýnum úr fólki sem hafði sýkst af öðrum afbrigðum og nið­ur­staðan hingað til er sú að mótefni sem þar er að finna verst suð­ur­a­fríska afbrigð­inu verr en öðrum. „Þetta er mikið áhyggju­efni,“ hefur Nature eftir Oliveira.

Í frétta­skýr­ingu tíma­rits­ins kemur fram að dæmi séu um að fólk sem fengið hefur COVID-19 hafi sýkst aftur vegna suð­ur­a­fríska afbrigð­is­ins. Oliveira segir því mögu­legt að afbrigðið hafi eig­in­leika til að kom­ast í gegnum þær varnir sem mótefni gegn fyrri afbrigðum veita.

Vís­inda­menn í Suður-Afríku og víðar eru nú að hefja frek­ari rann­sóknir vegna máls­ins og verður þeim m.a. sér­stak­lega beint að því hvort að bólu­efni sem þegar hafa verið þróuð gegn COVID-19 virki gegn nýja afbrigð­inu. Frum­nið­ur­stöður slíkra rann­sókna hafa þegar sýnt að virkni bólu­efna Pfizer og Moderna minnkar aðeins lít­il­lega þegar ákveðnar stökk­breyt­ingar suð­ur­a­fríska afbrigð­is­ins eiga í hlut. Þó að vís­inda­menn segi þetta góðs viti á enn eftir að fara dýpra ofan í rann­sóknir. Þar sem rann­sókn­irnar hafa hingað til aðeins verið bundnar við rann­sókn­ar­stofur er ekki hægt að full­yrða að bólu­efnin veiti sam­bæri­lega vörn gegn nýja afbrigð­inu og öðrum „í raun­heimum“.

Ekkert útilokað

Sér­fræð­ingur í RNA-veiru­fræðum við háskól­ann í Bern í Sviss segir of snemmt að segja til um hvort að hin nýju bólu­efni, sem eru sum hver þróuð með svo­kall­aðri mRNA-tækni, dugi. Það er hins vegar alls ekki úti­lokað. „Þó að bólu­efnin ráð­ist aðeins gegn erfða­ein­ingu gadda­próteins­ins þá ættu þau enn að geta fram­kallað ónæm­is­við­brögð gegn þessum nýju afbrigðum.“

Breska afbrigðið svo­kall­aða, sem sumir vilja kenna við Kent-sýslu þar sem það upp­götv­að­ist fyrst, er einnig talið hafa svip­aða eig­in­leika og það suð­ur­a­fríska. Í fyrstu var talið að það væri allt að 70 pró­sent meira smit­andi en fyrri afbrigði en nú þykir ljóst að smit­hættan er lík­lega alls ekki svo mikil heldur nær 35 pró­sent meiri en þekkst hefur.

Óvissa og meiri óvissa

Rannsókn líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins BioNtech, sem kom að þróun bólu­efnis með Pfizer, hefur sýnt að bólu­efnið getur varist sýk­ingu af völdum breska afbrigð­is­ins nægi­lega. Sú rann­sókn var lítil og önnur lítil rann­sókn vís­inda­manna við Háskól­ann í Cambridge leiddi í ljós örlítið minni vörn efn­is­ins gegn afbrigð­inu. Það ætti hins vegar ekki að koma að sök í stóru mynd­inni, segja vís­inda­menn.

Óvissa er því svarið sem vís­inda­heim­ur­inn getur gefið á þess­ari stundu við því hvort að bólu­efnin gagn­ist gegn nýjum afbrigðum veirunnar. Oliveira, sá sem greindi fyrst suð­ur­a­fríska afbrigðið, segir að vís­bend­ingar um að fólk sem fengið hafði COVID-19 sé aftur að sýkj­ast vera stóra áhyggju­efnið og rann­sókn­ar­verk­efnið á næst­unni. „Ef það reyn­ist til­fellið er hug­myndin um hjarð­ó­næmi aðeins fjar­lægur draumur – að minnsta kosti hvað snertir nátt­úru­legt hjarð­ó­næmi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár