Sigmundur Davíð hefur ekki staðfest siðareglur ráðherra

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur litið svo á að siða­reglur sem síð­asta rík­is­stjórn setti sér giltu áfram um hans rík­is­stjórn. Umboðs­maður Alþingis er ekki sam­mála.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki und­ir­ritað siða­reglur fyrir hönd rík­is­stjórnar sinnar og birt þær. Á meðan svo er hafa siða­reglur, sem síð­asta rík­is­stjórn setti og núver­andi rík­is­stjórn hefur sagst líta til, ekki stjórn­sýslu­legt gildi. Umboðs­maður Alþingis, sem á að gæta þess sam­kvæmt lögum að stjórn­sýslan fari fram í sam­ræmi við siða­regl­urnar, getur því ekki látið í ljós álit sitt á því hvort brotið hafi verið gegn siða­reglum. Það breytir því þó ekki að í siða­regl­unum koma fram við­mið sem eru í sam­ræmi við ólög­festar reglur um starfs­hætti í stjórn­sýslu eða vönd­uðum stjórn­sýslu­háttum.

„Það er afstaða mín að umboðs­maður Alþingis geti ekki byggt á því að siða­reglur fyrir ráð­herra nr. 360/2011 gildi um störf ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn nema til komi form­legt sam­þykki rík­is­stjórn­ar­innar á þeim reglum,“ skrif­aði Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, í bréfi til Sig­mundar Davíðs fyrir rúmu ári síðan. Umboðs­maður geti því ekki haft eft­ir­lit með því að stjórn­sýsla starfi í sam­ræmi við siða­reglur nema reglur hafi verið settar með réttum og form­legum hætti. Orða­lagið í lög­unum sé ekki skýrt og það sé ekki ljóst hvort siða­reglur fyrri rík­is­stjórnar gildi.

Samkvæmt siða­regl­unum eiga ráð­herrar að forð­ast hags­muna­á­rekstra. Þeir eiga einnig að upp­lýsa um fjár­hags­leg hags­muna­tengsl eða önnur slík tengsl sem valdið geta hags­muna­á­rekstrum. Þessu hefur verið velt upp í kjöl­far þess að Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar, upp­lýsti í vik­unni að hún ætti félag erlendis til að halda utan um eignir hennar. Í kjöl­farið hafa fjöl­miðlar greint frá því að félagið er skráð á Tortóla, og lýsti kröfum upp á hálfan millj­arð í þrotabú gömlu bank­anna. Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sóknar, við­ur­kenndi í Viku­lok­unum í gær að það væri „form­lega rétt“ að Sig­mundur Davíð hefði brotið gegn siða­reglum.

Tryggvi benti á skort á staðfestingu í Lekamálinu

Þegar sá þáttur leka­máls­ins sem snéri að Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, stóð sem hæst skrif­uð­ust Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, og Sig­mundur Davíð á. Tryggvi sendi Sigmundi Davíð bréf þar sem hann benti á að siða­reglur síð­ustu rík­is­stjórnar hafi aðeins átt að gilda út starfs­tíma hennar, og ekki verði séð að rík­is­stjórn Sig­mundar hefði sam­þykkt nýjar siða­reglur eftir að hún tók við völdum. Tryggvi óskaði eftir því að Sig­mundur Davíð upp­lýsti hann um það hvort búið væri að sam­þykkja reglur, og óskaði eftir afriti ef svo væri. Ef ekki væri búið að sam­þykkja siða­reglur var óskað eftir afstöðu Sig­mundar til þess hvort siða­reglur síð­ustu rík­is­stjórnar giltu áfram í hans rík­is­stjórn.

Sig­mundur Davíð svar­aði bréf­inu skömmu síðar og sagði að rík­is­stjórnin hefði litið svo á að siða­regl­urnar frá árinu 2011 ættu við um störf ráð­herra. Þeir hafi fengið kynn­ingu á regl­unum í upp­hafi starfs­tíma rík­is­stjórn­ar­innar, og þær hafi verið hluti af hand­bók sem þeir fengu allir. Sig­mundur Davíð sagði líka að siða­reglur ráð­herra og hugs­an­legar breyt­ingar á þeim hafi komið til umræðu í rík­is­stjórn, og ekki væri ólík­legt að ráð­ist yrði í breyt­ingar þannig að þær yrðu skýrðar og ein­fald­aðar. Það hefur ekki verið gert. Hins vegar var greint frá því í des­em­ber 2014 að rík­is­stjórnin hygð­ist auka vægi og eft­ir­fylgni með siða­reglum innan Stjórn­ar­ráðs­ins, meðal ann­ars í sam­ráði við umboðs­mann Alþingis og Rík­is­end­ur­skoðun. Í því skyni voru lagðar til breyt­ingar á lögum um Stjórn­ar­ráðið.

Þegar umboðs­maður Alþingis hafði lokið athugun sinni á Leka­mál­inu sendi hann for­sæt­is­ráð­herra bréf með ábend­ingum, meðal ann­ars um sam­þykkt siða­reglna.

„Þegar það kemur í hlut umboðs­manns Alþingis að leggja mat á hvort til­teknar reglur sem hann á að hafa eft­ir­lit með hafi gilt um athafnir stjórn­valds þarf að huga að því hvort þær hafi verið settar með réttum hætti […] Ég til hins vegar vafa leika á því hvort þær hafi verið settar með réttum hætti,“ skrif­aði Tryggvi meðal ann­ars. Hann teldi sig því ekki hafa for­sendur til að leggja til grund­vallar að siða­regl­urnar hafi verið í gildi um sam­skipti Hönnu Birnu við Stefán Eiríks­son þáver­andi lög­reglu­stjóra. Þar sem siða­reglur hafa ekki enn verið stað­festar með form­legum hætti er því vænt­an­lega það sama uppi á ten­ingnum þegar kemur að máli Sig­mundar Davíðs og eig­in­konu hans.

Tryggvi sagði orða­lagið ekki skýrt í lög­unum um Stjórn­ar­ráðið og benti á að „eft­ir­lit umboðs­manns með því að stjórn­sýsla starfi í sam­ræmi við siða­reglur getur ekki komið til nema slíkar reglur hafi verið settar með réttum og form­legum hætti.“

Siðanefnd lögð niður og færð undir forsætisráðuneytið

Meðal þess sem kveðið var á um þegar síð­asta rík­is­stjórn breytti lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var skipun sam­hæf­ing­ar­nefndar um sið­ferði­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una. Nefndin átti sam­kvæmt þágild­andi lögum meðal ann­ars að stuðla að því að „sið­ferði­leg við­mið séu í hávegum höfð í opin­berum störfum og veita stjórn­völdum ráð­legg­ingar um ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra og spill­ingu.“

Núver­andi rík­is­stjórn ákvað að breyta lög­unum aftur árið 2014. Sig­mundur Davíð lagði fram frum­varpið sem varð að lögum síð­ast­liðið sumar og sið­ferð­is­nefndin var með því lögð niður. Þess í stað var sett inn ákvæði um að for­sæt­is­ráðu­neytið gefi stjórn­völdum ráð um túlkun siða­reglna þegar eftir því er leitað. For­sæt­is­ráðu­neytið á að standa fyrir fræðslu um siða­reglur innan Stjórn­ar­ráðs­ins og fylgj­ast með því að þær nái til­gangi sínum.

Í siða­nefnd­inni áttu sæti sjö ein­stak­lingar, og nefndin var skipuð til þriggja ára í senn. Sig­mundur Davíð skip­aði aldrei í nefnd­ina eftir að skip­unin rann út haustið 2013. Í des­em­ber 2014 hvatti Ríkisendurskðoun til þess að ráðu­neytið skip­aði nýja nefnd í sam­ræmi við lög um Stjórn­ar­ráð Íslands. Hvatn­ingin var í tengslum við könnun Rík­is­end­ur­skoð­unar á þekk­ingu starfs­manna stjórn­ar­ráðs­ins á siða­reglum fyrir starfs­fólk þess. Stór hluti starfs­manna taldi sig ekki þekkja siða­regl­urnar vel.

Þegar Sig­mundur Davíð mælti fyrir frum­varp­inu þar sem þessu var breytt, í lok nóv­em­ber 2014, sagði hann að aðeins fáein erindi hefðu borist sam­hæf­ing­ar­nefnd­inni þegar hún var að störfum, og for­sæt­is­ráðu­neytið hefði sinnt þeim erindum eftir að skip­un­ar­tími hennar rann út.

Því er það þannig að for­sæt­is­ráðu­neytið, undir stjórn for­sæt­is­ráð­herra, á að veita for­sæt­is­ráð­herr­anum ráð­legg­ingar um það hvernig eigi að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra og spill­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár