Forsætisráðherra vill leggja niður siðanefnd stjórnsýslunnar

Sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferði­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una verður lögð niður sam­kvæmt frum­varpi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um Stjórn­ar­ráð Íslands. Í stað­inn fyrir nefnd­ina stendur til að for­sæt­is­ráðu­neytið sjálft gefi stjórn­völdum ráð um túlkun siða­reglna þegar eftir því er leitað.

Í siða­nefnd­inni áttu sæti sjö ein­stak­lingar og hún er skipuð til þriggja ára. For­sæt­is­ráð­herra hefur ekki skipað nefnd­ina eftir að síð­asta skipun rann út haustið 2013. Í des­em­ber síð­ast­liðnum hvatti Rík­is­end­ur­skoðun til þess að ráðu­neytið skip­aði nýja nefnd í sam­ræmi við ákvæði laga. Það var gert í tengslum við könnun Rík­is­end­ur­skoð­unar á þekk­ingu starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins á siða­reglum fyrir starfs­fólk Stjórn­ar­ráðs Íslands. Í könn­un­inni kom fram að stór hluti starfs­manna taldi sig ekki þekkja siða­regl­urnar vel.

Samkvæmt núgild­andi lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands á sam­hæf­ing­ar­nefndin meðal ann­ars:

a. að stuðla að því að sið­ferði­leg við­mið séu í hávegum höfð í opin­berum störfum og veita stjórn­völdum ráð­legg­ingar um ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra og spill­ingu,

b. að veita umsögn um drög að siða­reglum á grund­velli laga þess­ara og laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins og gefa stjórn­völdum ráð um túlkun þeirra,

c. að beita sér fyrir upp­lýs­inga­öflun og fræði­rann­sóknum á mál­efna­sviði nefnd­ar­innar,

d. að stuðla að því að brugð­ist sé með sam­hæfðum hætti við ábend­ingum eft­ir­lits­emb­ætta Alþingis og öðrum til­tækum upp­lýs­ingum um brot á siða­reglum eða hættu á spill­ingu hjá rík­inu.

Tveir gagnrýnt í þinginu


Í frum­varp­inu sem nú til umfjöll­unar á Alþingi er þessi nefnd lögð niður sem fyrr segir. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að „með hlið­sjón af feng­inni reynslu verður vart talin þörf á sér­stakri lög­bund­inni nefnd til að sinna því hlut­verki sem sam­hæf­ing­ar­nefnd­inni hefur verið ætlað.“ Í stað­inn sé þessu hlut­verki betur sinnt innan ráðu­neyt­is­ins, en í nánu sam­ráði við eft­ir­lits­stofn­anir Alþingis, félaga­sam­tök, stofn­anir og emb­ætti sem vinna gegn spill­ingu.

Þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son mælti fyrir frum­varp­inu í þing­inu í lok nóv­em­ber sagði hann að aðeins fáein erindi hafi borist sam­hæf­ing­ar­nefnd­inni þegar hún var við störf og að for­sæt­is­ráðu­neytið hefði sinnt þeim erindum eftir að skip­un­ar­tími hennar rann út.

Bæði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, vara­þing­kona Vinstri grænna, hafa vakið athygli á mál­inu í umræðum um frum­varp Sig­mundar Davíðs í þing­inu und­an­farna daga.

„Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ætlar sér sjálfur að leggja mat á sið­ferði­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una og þar með leggja mat á sið­ferði­leg við­mið ráð­herra sinnar eigin rík­is­stjórnar. Ég get ekki skilið það öðru­vísi en svo að með þessu sé for­sæt­is­ráð­herra að taka sér nán­ast ein­ræð­is­vald um túlkun siða­reglna sem eiga við alla stjórn­sýsl­una,“ sagði Rósa Björk meðal ann­ars í sinni ræðu í gær.

„Mér finnst þarna verið heldur mikið tekið út og frekar ein­falt vald sett í stað­inn,“ sagði Helgi Hrafn. Hann sagð­ist ekki annað en munað eftir leka­mál­inu, þar sem spurn­ingar hafi vaknað um siða­reglur, gildi þeirra og svo fram­vegis. „Sömu­leiðis þykir mér óþægi­legt, svo meira verði ekki sagt, að það sé for­sæt­is­ráðu­neytið sjálft sem sé ein­fald­lega í því að túlka þetta, ef ég skil þetta rétt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár