Erfiðleikar við stjórnarmyndun blasa við

Kosið verður eftir rúman mánuð. Sjaldan eða aldrei hefur verið erf­ið­ara að sjá fyrir hvernig rík­is­stjórn verður sam­sett.

Miklar breyt­ingar eru í kort­unum á hinu póli­tíska sviði þegar rúm­lega mán­uður er til kosn­inga. Eins og staða mála er nú, sam­kvæmt kosn­inga­spá Kjarnans sem unnin er í sam­vinnu við dr. Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ing, þá er eng­inn tveggja flokka rík­is­stjórn með meiri­hluta mögu­leg og fyr­ir­sjá­an­legt er að erfitt verði að mynda rík­is­stjórn margra flokka, nema að flokk­arn­arnir komi fram með breyttar áherslur, gerir mála­miðl­anir eða nái saman um fá stefnu­mál.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mesta fylgið sam­kvæmt kosn­inga­spánni, 25,1 pró­sent og Píratar með næst mest, 24,1 pró­sent. Sam­an­lagt fylgi nær ekki meiri­hluta, eða 49,2 pró­sent. Aðrir flokkar hafa tölu­vert minna. Vinstri græn eru með 13,3 pró­sent, Viðreisn með 11 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,1 pró­sent, Sam­fylk­ingin 8,4 pró­sent, Björt fram­tíð 3,2 pró­sent – og næði því ekki 5 pró­sent lág­mark­inu – en aðrir flokkar mæl­ast sam­tals með 4,8 pró­sent.

Guðni gaf tóninn

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sagði í við­tali við Channel 4 á dög­unum, að það gæti reynst Pírötum erfitt að gera mála­miðl­anir við stjórn­ar­myndun, og vís­aði meðal ann­ars til þess að flokk­ur­inn væri í grunn­inn gras­rót­ar­sam­tök þar sem eru margar skoð­anir eru uppi hjá flokks­fólki.

Í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar lagði Guðni ítrekað áherslu á að það gæti reynt á for­set­ann þegar kemur að stjórn­ar­myndun að loknum kosn­ingum, sem síðar var svo ákveðið að yrðu 29. októ­ber.

Erf­ið­ar­leikar við stjórn­ar­myndun eru marg­vís­legir, en einn hluti sem gæti verið snú­inn, ef kosn­ing­arnar fara í takt við það sem kann­anir sýna nú, er að ákveða hver fái umboðið til að mynda stjórn.

Það er ákvörðun sem Guðni þarf að taka. Það er ekki aug­ljóst að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fái umboðið, fari svo að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái mesta fylgið. Má nefna for­dæmi frá kosn­ing­unum 2013 í því sam­hengi, en þá lét Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi for­seti Íslands, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son hafa umboð til stjórn­ar­mynd­unar, eftir glæstan kosn­inga­sigur. Framsókn, sem fékk 24,7 pró­sent í kosn­ing­unum, fékk samt ekki flest atkvæðin í kosn­ing­unum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var með mesta fylgið, tæp­lega 26 pró­sent.

Ástæðan var sú, að Ólafur Ragnar sagði fólkið hafa kallað eftir því að áherslu­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins, meðal ann­ars að ná pen­ingum frá kröfu­höfum hinna föllnu bank­anna til að bæta stöðu heim­il­anna, væru leið­ar­stefið við myndun rík­is­stjórnar. Í kjöl­farið náðu Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur saman um myndun rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem fór fyrir rík­is­stjórn­inni sem for­sæt­is­ráð­herra.

Alls ekki er aug­ljóst hver eigi að fá umboðið, eins og málin standa nú, en fátt virð­ist geta komið í veg fyrir það að rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar falli. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þurfa að bæta við sig meira en 17 pró­sentu­stigum, sé mið tekið af stöðu mála núna. Þó margt geti gerst í póli­tík á stuttum tíma, þá er það fjar­lægt eins og mál standa nú.

Margir flokkar um fá áherslumál?

Píratar, Vinstri græn, Sam­fylk­ingin og Björt fram­tíð, sem nú mynda stjórn­ar­and­stöðu, ná ekki meiri­hluta­fylgi eins og mál standa, en sam­an­lagt er fylgið 49 pró­sent. Innan þeirrar stöðu er fylgi Bjartrar fram­tíðar undir 5 pró­sent lág­mark­inu, eins og áður sagði, sem veikir stjórn­ar­and­stöð­una enn meira.

Viðreisn, sem mælist nú með ríf­lega 11 pró­sent fylgi, er að þessu leyti í lyk­il­stöðu inn á miðj­unni á hinum póli­tíska kvarða. Hún kemur ný inn á sviðið, og virð­ist geta skapað sér sterka stöðu inn í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum.

En hvaða stefnu­mál eru það sem helst gætu reynst erfið? Um hvaða mál mun ný rík­is­stjórn geta mynd­ast?

Þar vand­ast málið.

Píratar hafa lagt höf­uð­á­herslu á að þeirra fram­boð sé til þess fallið að „breyta kerf­inu“ og styrkja þátt­töku almenn­ings við ákvörð­un­ar­töku, með beinu lýð­ræði. Þetta eru stóru áherslu­mál Pírata, eins og Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður flokks­ins hefur ítrekað bent á. Ný stjórn­ar­skrá er í þessu sam­hengi mikið hjart­ans mál Pírata.

Hug­myndin byggir á því að við allar viða­miklar breyt­ingar og stórar ákvarð­anir verði þjóð­ar­vilj­inn virkj­aður svo að þjóðin ráði ferð­inni. Þetta á við um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar, breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu, og ákvörðun um fram­hald á aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið, svo dæmi séu tekin.

Þjóðarviljinn límið?

Sé mið tekið stefnu­skrám Pírata, Sjálfæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna, Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Bjartrar fram­tíðar, þá gæti þetta atriði – frek­ari virkjun þjóð­ar­vilj­ans við ákvarð­ana­töku – verið það mál sem ný rík­is­stjórn verður mynduð um, hvernig sem hún verður skipuð.

Eins konar lím milli flokk­anna virð­ist mögu­legt um þetta stóra atriði. Erfiðara er að meta önnur sér­tæk­ari mál, svo sem á sviði skatta-, heil­brigðis-, mennta-, eða umhverf­is­mála. Þegar margir ólíkir flokkar þurfa að ná saman, þá bein­ast spjótin frekar að fáum stórum málum, ramm­anum um starfið í rík­is­stjórn.

Erfitt er að sjá fyrir sér hvaða flokkar það eru helst, sem muni ná saman. Stjórn þriggja flokka getur aðeins verið mynduð með bæði Pírötum og Sjálf­stæð­is­flokknum, eins og mál standa nú. Viðreisn, Vinstri græn og Sam­fylk­ingin kæmu þar öll til greina, en Björt fram­tíð ekki, sökum þess að hún mælist undir lág­marks­þrösk­uld­inum. Rík­is­stjórn fleiri flokka er svo mögu­leg með nokkrum afbrigðum, en annað hvort Sjálf­stæð­is­flokkur eða Píratar eru þar í þeim öllum.

Guðni for­seti er vafa­lítið á réttum slóðum í sinni grein­ingu á hinu póli­tíska lands­lagi, þegar hann segir að það geti orðið snúið fyrir stjórn­mála­flokk­ana að mynda nýja rík­is­stjórn. Líklega mun hann sjálfur standa frammi fyrir erf­iðri ákvörðun, þegar kemur að því að meta hver sé best til þess fallin að fá umboð til stjórn­ar­mynd­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár