Lögleiðing kannabis er hráki á gröf blómabarnsins

Í nýliðnum kosn­ingum í Banda­ríkj­unum kusu íbúar Kali­forníu um hvort lög­leiða ætti kanna­bis í rík­inu. Hvaða áhrif mun þetta hafa?

Í Humboldt-sýslu í Kali­forníu er sagt að síð­asti hipp­inn hafi gefið upp önd­ina þegar verðið á pundi af mari­júana fór yfir 1.000 dali. Ef það er satt gætu sumir litið á nið­ur­stöðu kosn­ing­anna síð­ast­lið­inn þriðju­dag sem hráka á gröf blóma­barns­ins.

Þar er þó ekki átt við kjörið á nýjum for­seta. Í Kali­forníu, líkt og í öðrum ríkjum, var kosið um margt annað sama dag, bæði menn og mál­efni. Eitt þess­ara mál­efna var full lög­leið­ing mari­júana, sem sett var fram með Tillögu 64 (e. Proposition 64), en í ár eru liðin 20 ár frá því notkun plönt­unar í lækn­inga­skyni var lög­leidd. Humboldt varð hins vegar að gras-Mekka Banda­ríkj­anna löngu áður, á tímum hipp­anna, og nú bygg­ist efna­hagur sýsl­unnar að miklu leyti á ólög­legum kanna­bis-lendum.

Þegar nið­ur­stöð­urnar urðu ljósar hopp­aði útvarps­konan Kerry Reynolds spennt á svið skynörvandi skemmti­stað­ar­ins Area 101 í nágrenni Humboldt sýslu og til­kynnti sal fullum af rækt­endum og starfs­fólki þeirra að kjós­endur hefðu sam­þykkt Tillögu 64. Sumir við­staddra klöpp­uðu eins og af skyldu­rækni, fáeinir börðu lóf­unum saman af meiri krafti og gáfu frá sér fagn­að­aróp. Margir voru hins vegar þöglir með öllu.

„Ég veit að það studdu það ekki allir,“ sagði Reynolds í hljóð­nem­ann, örlítið minna spennt en augna­bliki áður. „Þetta er ekki full­komið fram­tak, en þetta er byrjun.“

Reynolds hefur verið gras-frétta­maður í Humboldt í fimm ár. Í þætt­inum sínum Cannabis Consciousness News fjallar hún ein­vörð­ungu um mál­efni sem tengj­ast kanna­bis og hefur barist ötul­lega fyrir lög­leið­ingu. Margur myndi ætla að flestir rækt­end­urnir á svæð­inu tækju því fagn­andi að starf­semi þeirra væri gerð lög­leg en flestir eru hins vegar annað hvort efins eða alfarið mót­fallnir nýju lög­unum. Þeir búast við að þau hafi í för með sér gríð­ar­legt verð­hrun auk stórra utan­að­kom­andi fyr­ir­tækja sem munu setja smá­bænd­urna í Humboldt á haus­inn.

Ekki fyrir litla manninn

Tveimur dögum fyrir kjör­dag hugs­aði Reynolds um þennan ótta í skraut­legu hús­næði útvarps­stöðv­ar­innar KMUD, skammt frá smá­bænum Gar­berville.

„Fyrir Humboldt sýslu snýst kanna­bis um stolt og það eru svo margir ótrú­legir rækt­endur hér, en það hefur einnig haft í för með sér myrk­ari hliðar eins og fólk sem er bara hér til að græða pen­ing,“ sagði hún.

„Kannabis hefur séð fyrir svo mörgu fólki í Humboldt,“ hélt hún áfram. „Ef þú hefur haldið þig í þessum óhefð­bundna lífs­stíl mest alla þína ævi og svo skyndi­lega eru ekki nægir pen­ingar fyrir þig að lifa á lengur, hvert ferðu þá?“

Þessu hefur Karl Witt, kanna­bis­rækt­andi til 28 ára, einnig velt fyrir sér. Hann sér nýju lögin sem til­raun hinna ríku til að sölsa undir sig stjórn á iðn­að­inum.

„Þessi til­laga var búin til af fáeinum ein­stak­lingum sem létu eins og þeir væru góðu gæj­arnir og ég trúi því að þetta muni verða versta ákvörðun sem Kali­fornía hefur nokkurn tíma tekið,“ sagði hann, alvar­legur í bragði, umkringdur plönt­unum sínum.

Hann telur að upp muni spretta heilu akrarnir af gróð­ur­húsum í nágrenni Los Angeles og að mark­að­ur­inn fyrir upp­skeru frá Humboldt muni skreppa saman. Ljóst sé að kanna­bis sýsl­unnar muni enda í kanna­bis­olíu- og mat­vöru­iðn­að­inum fremur en sem aðdrátt­ar­afl fyrir „bud & break­fast“ ferða­mennsku sem margir von­ast til að muni þró­ast.

Witt er einnig efins um að rækt­end­urnir fari lög­legu leið­ina eftir allt saman.

„Í lög­legu mark­aðsum­hverfi vinn ég fyrir 25 til 30 pró­sent af því sem ég fékk á svarta mark­að­inum,“ sagði hann. Á meðan hætta er á að það kom­ist upp um svarta­mark­aðs­brask og að hann verði kærður fyrir lít­il­fjör­leg afbrot „græðir maður samt tvær millj­ónir dala auka­lega.“

Sunshine Johnston, sem sér um útvarps­þátt­inn Ganja Tree á KMUD, von­ast til að byggja upp vöru­merki til að hjálpa henni að lifa af yfir­vof­andi breyt­ingar. Þar sem hún hefur ræktað mari­júana frá barn­æsku á hún þegar langa sögu. Að deila henni er hins vegar ekki svo auð­velt.

„Manni líður eins og maður sé að bera sig á svo margan hátt,“ sagði hún. „Þegar sjálf þitt hefur alfarið snú­ist um að fela þig og nú þarf að snúa því við.“

Kosið gegn eigin hagsmunum

Sumir hafa þó þegar látið breyt­ing­arnar virð­ast þess virði. Kevin Jodrey, eig­andi og rækt­un­ar­stjóri gróðr­ar­stöðv­ar­innar Wonderland, var hand­tek­inn fyrir ræktun á níunda ára­tugnum 16 ára gam­all. Hann sneri sér að lækna­gras­ræktun fyrir fáeinum árum að eigin sögn þar sem hann gerði sér grein fyrir að full lög­leið­ing væri ekki langt undan.

„Ef allur þessi heimur átti að breyt­ast þá ætti ég að breyt­ast með honum,“ sagði hann, rót­andi í laufa­hrúgu á gólfi gróðr­ar­stöðv­ar­innar með skónum.

Hann kaus með Tillögu 64 en sagði hana þó „hræði­lega“ og hann­aða til þess að Síli­kondal­ur­inn geti tekið yfir allt heila klabbið. Hann sagð­ist þó ein­fald­lega aldrei myndu kjósa gegn lög­leið­ingu, jafn­vel þó það gengi gegn hans eigin hags­munum.

„Ég valdi ólög­legan feril. Ég kaus að ganga til liðs við ólög­lega fram­kvæmd sem krakki og ég yfir­gaf hana aldrei. Svo ég hafði engar vænt­ingar, á nokkrum tíma­punkti, um að ég myndi fá ein­hvers­konar trygg­ingu frá rík­inu,“ sagði hann.

„Ég held að það sé vanda­málið. Margir hafa verið að gera þetta svo lengi með óraun­hæfum vænt­ingum.“

Skuggahliðarnar ekki þess virði

Eins og Jodrey sjá flestir rækt­endur og gras­verka­menn í Humboldt ekki hug­mynda­fræði­legan vanda við að vinna þeirra sé ólög­leg. Raunar er gras­menn­ing sýsl­unnar hreint ekki falin heldur er henni hampað af ein­stak­lingum, fyr­ir­tækjum og fjöl­miðlum á svæð­inu eins og KMUD.

KMUD er ekki bara með fleiri en einn útvarps­þátt sér­stak­lega til­eink­aðan gras­rækt heldur sendir stöðin einnig út aug­lýs­ingar um lög­fræði­að­stoð fyrir rækt­endur. Þá hefur hún sent út við­var­anir þegar lag­anna verðir gera áhlaup á kanna­bis­bændur í sýsl­unni og sumar skreyt­ingar á veggjum hennar, eins og banda­ríski fán­inn á hvolfi yfir bak­dyra­gætt­inni, und­ir­strika anda upp­reisnar og borg­ara­legrar óhlýðni.

Jafnvel þar sem Reynolds sat, umvafin þessum áminn­ingum um hvernig Humboldt sýsla varð hipp­a­r­íki, fannst henni samt að skugga­hlið­arnar væru ekki lengur þess virði. Verð myndu vissu­lega lækka en henni finnst mik­il­væg­ara að áhættan, leyndin og mis­notkun vinnu­afls og umhverfis minnki að sama skapi.

Hún er sér­stak­lega von­góð um að laga­breyt­ingin gæti bjargað fjöl­skyldum rækt­enda frá því að vera sundrað með hand­tökum og afskiptum barna­vernd­ar­yf­ir­valda. Tillaga 64 gæti verið fyrsta skrefið í átt að því að „frelsa þjóð­ina úr helj­ar­g­reipum óhóf­legrar fang­els­unar.“

„Öll stríð hafa áhrif og það hefur verið stríð hér, stöð­ugur leikur kattar að mús,“ sagði hún. „Enginn ætti að fara í fang­elsi fyrir plöntu.“

Tveimur dögum síðar, í kosn­ingap­artýi Area 101, var Reynolds fljót að ná sér af hálf­volgum við­brögðum skar­ans. Hún steig af svið­inu faðm­andi fólk í kringum sig og augu hennar blik­uðu af nýrri von þegar hún sagði að nið­ur­stöður kosn­ing­anna í Kali­forníu myndu berg­mála um allan heim.

Hún varð örlítið hokn­ari við til­hugs­un­ina um mann­inn sem nokkrum klukku­stundum síðar yrði útnefndur til­von­andi for­seti Banda­ríkj­anna, enda telur hún hann ekki vin­veittan mál­staðnum. Hún hristi hann þó snöggt af sér og sagði að ára­löng vinna hefði nú verið gerð rétt­mæt.

„Ég held ég muni bera höf­uðið aðeins hærra á morgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár