Segir ekki tímann til að auka ríkisútgjöld

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að enn og aftur hafi hag­stjórnin brugð­ist á Íslandi, launa­hækk­anir séu langt umfram fram­leiðni­aukn­ingu og allt of lítið aðhald hafi verið sýnt í rík­is­fjár­málum. „Við þessar kring­um­stæður verður þingið að sýna mikla ábyrgð í umræðu um fjár­lög. Þetta er ekki tím­inn til að auka enn frekar í rík­is­út­gjöldin, þó verk­efnin séu vissu­lega brýn. Nú reynir ein­fald­lega á for­gangs­röðun.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook sem Þor­steinn birti í morgun.

Tilefnið var for­síðu­frétt í Morg­un­blaðs­ins í morgun þar sem sagt var frá vax­andi áhyggjum innan ferða­þjón­ust­unnar af styrk­ingu krón­unnar og áhrifum þeirrar þró­unar á grein­ina. Í þeirri frétt var haft eftir Friðriki Pálssyni, hót­el­stjóra Hótels Rangár, að ef ekk­ert verði að gert gæti mögu­lega stefnt í annað hrun hér á landi. Kjarninn fjall­aði ítar­lega stöð­una í íslensku hag­kerfi í frétta­skýr­ingu í gær.

Viðreisn tekur sem stendur þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fimm flokka undir stjórn Pírata. Aðrir flokkar sem þátt taka eru Sam­fylk­ing, Björt fram­tíð og Vinstri græn. Líkt og Kjarninn greindi frá því gær vilja Vinstri græn ráð­ast í fjár­fest­ingar í vel­ferð og innviðum fyrir allt að 50 millj­arða króna og fjár­magna þær fjár­fest­ingar með nýjum sjálf­bærum tekjum. Samkvæmt þeim kröfum þarf að ráð­ast í ýmiss konar skatta­hækk­anir til við­bótar við hækkun á gjöldum sem tekin yrðu vegna nýt­ingar á auð­lindum og nýrra gjalda sem hægt yrði að leggja á ferða­þjón­ust­una.

Tillögur Vinstri grænna um skatta­hækk­anir eru ekki ein­ungis til þess fallnar að auka tekjur rík­is­sjóðs heldur vill flokk­ur­inn einnig nota skatta­hækk­anir til að stuðla að auknum jöfn­uði á Íslandi. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði á Alþingi í gær: „Við sjáum að færri Íslend­ingar eiga stærri hluta fjár­magns­ins í sam­fé­lag­inu. Þrír fjórðu hlutar fjár­magns­ins liggja hjá rík­istu tíu pró­sent­unum og það er það sem við ættum að vera að ræða hér. Við ættum að vera að ræða hér hvernig við ætlum að skatt­leggja þá sem eiga mest. Hvort sem er í gegnum ein­hvers konar stór­eigna­skatt eða í gegnum hækk­aðan fjár­magnstekju­skatt til að taka á þess­ari sam­þjöppun auðs og til að tryggja tekjur til að standa undir vel­ferð­ar­kerf­inu; háskól­unum, sjúkra­hús­unum, fram­halds­skól­unum sem eru það mik­il­væga jöfn­un­ar­tæki sem við rekum saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár