Skoski þjóðarflokkurinn fengi öll sæti Skotlands í breska þinginu

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn SNP fær öll 59 sæti Skotlands í breska þing­inu ef marka má nýj­ustu skoð­ana­kann­anir nú þegar aðeins rúm vika er til kosn­inga. Könnunin, sem skoska sjón­varps­stöðin STV lét gera, er sú síð­asta sem gerð verður fyrir sjón­varps­stöð­ina fyrir kosn­ingar.

Samkvæmt könn­un­inni styðja 54 pró­sent kjós­enda SNP, og stuðn­ingur við Verka­manna­flokk­inn hefur minnkað niður í 20 pró­sent. Skotland hefur lengi verið vígi Verka­manna­flokks­ins, en svo er aldeilis ekki lengur. Miðað við þessa könnun bætir Íhalds­flokk­ur­inn við sig fimm pró­sentum, en aukn­ing flokks­ins eru líka tíð­indi þar sem hann hefur löngum verið mjög óvin­sæll í Skotlandi. Frjáls­lyndir demókratar bæta við sig einu pró­senti og fá fimm pró­senta stuðn­ing og græn­ingjar tapa tveimur pró­sentum og fá tvö pró­sent. UKIP, breski sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, fær eitt pró­sent.

Samkvæmt könn­un­inni munu um 80 pró­sent kjós­enda í Skotlandi mæta á kjör­stað, það er sextán pró­sentum meira en í síð­ustu þing­kosn­ingum árið 2010, en fimm pró­sentum minna en kjör­sóknin var í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skota síð­ast­liðið haust.

„Þessar kann­anir eru frá­bærar og ynd­is­legt les­efni fyrir SNP en þær eru samt bara kann­anir. Það eru atkvæði og kjör­kassar sem telja og ég og SNP munum halda áfram að taka engu sem sjálf­sögðum hlut og berj­ast fyrir hverju atkvæði,“ segir Nicola Sturgeon leið­togi flokks­ins. „Okkar skila­boð eru ein­föld - ef Skotland vill að rödd þess heyr­ist hærra í Westminster en nokkru sinni fyrr, og að sú rödd verði notuð til fram­sæk­inna stjórn­mála eins og að binda endi á nið­ur­skurð, þá því fleiri sæti sem SNP vinnur því hærra mun heyr­ast í þeirri rödd.“

Jim Murphy, leið­togi Verka­manna­flokks­ins í Skotlandi, segir við STV og Sky að könn­unin sé aug­ljós­lega slæm fyrir flokk­inn. Hún væri mjög góð fyrir SNP en enn betri fyrir David Cameron og Íhalds­flokk­inn. „David Cameron getur ekki sigrað Verka­manna­flokk­inn í Skotlandi, svo ein­hver annar verður að gera það fyrir hann. Ef þessi könnun gengur eftir mun David Cameron opna kampa­vínið vegna þess að hann nær að halda völdum. Líkur eru á því að hann haldi áfram að vera for­sæt­is­ráð­herra, ekki af því að Skotland fór á kjör­stað og kaus íhalds­menn, heldur af því að Skotland kaus gegn Verka­manna­flokknum fyrir SNP og minnk­aði líkur Verka­manna­flokks­ins á því að mynda rík­is­stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár