Stórar hindranir í vegi fyrir ríkisstjórnarmyndun

Þeir þrír flokkar sem reyna nú myndun rík­is­stjórnar eiga enn eftir að kom­ast að mála­miðlun í risa­stórum málum. Mikil ólga er í bak­landi, og á meðal kjós­enda, Vinstri grænna þótt um minni­hluta sé að ræða. Ef næst saman verður stjórnin kynnt í næstu viku.

Líklegt er talið að gerð stjórn­ar­sátt­mála og skipt­ing ráðu­neyta í verð­andi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur klárist í lok viku og að útkoman verði lögð fyrir flokks­stofn­anir Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks um helg­ina. Verði hún sam­þykkt mun stjórn­ar­sátt­mál­inn og ráð­herra­skipan verða kynnt almenn­ingi í byrjun næstu viku.

Heim­ildir Kjarnans herma þó að enn eigi eftir að lenda nokkrum stórum málum í við­ræð­unum. Þannig sé enn tek­ist á um hvernig eigi að afla tekna en þar ber mjög á milli Vinstri grænna, sem vilja nota skatt­kerfið til þess, og Sjálf­stæð­is­flokks, sem vill það ekki í sama magni. Þá er einnig ágrein­ingur um hver stefna vænt­an­legrar stjórnar í útlend­inga­málum eigi að vera og þótt að búið sé að skrifa kafla um loft­lags­mál í stjórn­ar­sátt­mál­ann eru önnur umhverf­is­mál enn óaf­greidd, þar á meðal álagn­ing grænna skatta og ramma­á­ætlun. Auk þess er ekki talið að þær hug­myndir sem séu uppi um hvernig eigi að halda á vinnu við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár muni þykja ásætt­an­legar hjá verð­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokkum, sem leggja mikla áherslu á það ferli. Því máli þarf að lenda ef alvara er á bak­við öll gíf­ur­yrðin um bætt vinnu­brögð á þingi og meiri sam­vinnu.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að til hafi staðið að vinnan myndi klár­ast síð­asta föstu­dag. Hluta þing­manna flokk­anna hefði verið til­kynnt um það og að til stæði að láta Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, vita að rík­is­stjórn væri lík­ast til mynduð. Af því varð þó ekki.

Vinstri græn vilja skipa seðlabankastjóra

Ef myndun rík­is­stjórn­ar­innar tekst verður Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, að öllum lík­indum fjár­mála­ráð­herra. Tekist hefur verið á um hvar mál­efni Seðla­banka Íslands eigi að vera. Þegar síð­asta rík­is­stjórn var mynduð voru þau flutt úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu yfir í for­sæt­is­ráðu­neytið, og fylgdu þannig Bjarna. Sjálf­stæð­is­menn hafa viljað að þau myndu fylgja honum aftur til baka en Vinstri græn hafa ekki tekið það í mál. Ástæðan er ein­föld: nýr seðla­banka­stjóri verður skip­aður á kjör­tíma­bil­inu og Katrín vill skipa hann, eða hana.

Ráð­herra­emb­ættum verður ekki fjölgað frá því sem nú er og því verða þeir ell­efu. Þrír ráð­herra­stólar fara til Vinstri grænna, þrír til Fram­sókn­ar­flokks og fimm til Sjálf­stæð­is­flokks. Hug­myndir eru uppi um að bjóða stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum for­mennsku í ein­hverjum af fasta­nefndum þings­ins til að reyna að stuðla að bættum vinnu­brögðum. Ljóst er þó að áhrifa­miklir odd­vitar flokk­anna sem munu ekki fá sæti í rík­is­stjórn munu sækja það fast að fá nefnd­ar­for­mennsku í stað­inn. Nægir þar að nefna Harald Bene­dikts­son og Pál Magn­ús­son hjá Sjálf­stæð­is­flokki og Ásmund Einar Daðason hjá Fram­sókn­ar­flokki, verði hann ekki ráð­herra. Auk þess er lík­legt að aðrir odd­vitar sem fái ekki ráð­herra­emb­ætti muni gera sam­bæri­lega kröfu. Þá á eftir að koma finna áhrifa­stöðu fyrir starf­andi vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þá sem mögu­lega detta út úr ráð­herra­liði hans. Því er ekki víst að margar nefndir verði eftir til skiptana fyrir stjórn­ar­and­stöð­una.

Mikil óánægja á meðal kjósenda Vinstri grænna

Litlar líkur eru taldar á því að vænt­an­legum stjórn­ar­sátt­mála verði mót­mælt mikið þegar hann verður lagður fyrir við­eig­andi flokks­stofn­anir Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks til sam­þykktar. Innan beggja flokka er nokkuð almenn ánægja með fyr­ir­liggj­andi stjórn­ar­sam­starf og sér­stak­lega að í því felist ekki neinar til­raunir til stór­tækra kerf­is­breyt­inga t.d. á sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­kerfum lands­ins. Kjós­endur beggja flokka virð­ast líka ánægðir með til­hög­un­ina. Í könnun MMR, sem birt var á föstu­dag, kom fram kjós­endur flokk­anna setja sig ekki upp gegn því að Vinstri græn verði í rík­is­stjórn. Tvö pró­sent Fram­sókn­ar­manna nefndu flokk­inn sem þann sem þeir myndu síst vilja í rík­is­stjórn og sex pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks.

Það er hins vegar ljóst að and­staðan er meiri á meðal kjós­enda Vinstri grænna. Í áður­nefndri könnun kom fram að 57 pró­sent þeirra sem kusu Vinstri græn í síð­ustu kosn­ingum vildi síst vilja hafa Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn. Það þýðir að tæp­lega sex af hverjum tíu kjós­endum flokks­ins myndu frekar vilja hafa ein­hvern alla hinna flokk­anna, líka Mið­flokk­inn eða Flokk fólks­ins, í rík­is­stjórn en Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Óánægjan með vænt­an­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf er ekki ein­ungis til staðar á meðal kjós­enda Vinstri grænna, heldur líka á meðal þeirra sem taka virkan þátt í flokks­starf­inu. Yfir 110 manns hafa sagt sig úr flokknum frá því að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk hófust, og heim­ildir Kjarnans herma að fleira lyk­il­fólk ætli sér að yfir­gefa flokk­inn um helg­ina verði stjórn­ar­sátt­máli vænt­an­legrar rík­is­stjórnar sam­þykktur í flokks­ráði hans.

Brottför Drífu blóðtaka

Mesta athygli vakti ákvörðun Drífu Snædal, fram­kvæmda­stjóra Starfs­greina­sam­bands­ins og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Vinstri grænna, sem til­kynnti í síð­ustu viku að hún hefði sagt sig úr flokknum. Drífa hafði verið í hreyf­ing­unni frá upp­hafi og mjög áhrifa­mik­ill. Á tíma sínum sem fram­kvæmda­stjóri átti hún stóran þátt í að móta allt innra starf Vinstri grænna. Auk þess er hún náin mörgum lyk­il­mönnum í flokknum, meðal ann­ars for­manni hans.

Í pistli sem Drífa birti til hund­ruð stuðn­ings­manna Vinstri grænna vegna úrsagnar sinnar sagði hún að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fagna vænt­an­legum stjórn­ar­sátt­mála, fara inn í sín ráðu­neyti og haga sér nákvæm­lega eins og valda­stofn­unin hann hafi alltaf hagað sér. „Við og við vellur gröft­ur­inn upp í formi frænd­hygli, inn­herj­a­við­skipta, skatta­skjóla, auð­valds­dek­urs, útlend­ing­ar­andúðar eða skjald­borgar um ofbeld­is­menn. Þá verður VG í þeirri stöðu að verja sam­starfs­flokk­inn og mörkin munu sífellt fær­ast til í sam­starf­inu líkt og í ofbeld­is­sam­bandi. Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil, ef stjórnin end­ist svo lengi. Með ákvörð­un­inni um stjórn­ar­við­ræður setti flokk­inn niður, trú­verð­ug­leik­inn laskað­ist veru­lega og vinstrið á Íslandi mun eiga erfitt upp­dráttar næstu árin og ára­tug­ina.“

Það var einnig athygl­is­vert að Drífa virt­ist gagn­rýna þá ráð­gjöf sem for­ysta flokks­ins er að fá. Í nið­ur­lagi pistils síns hvatti hún flokks­fé­laga í Vinstri grænum til að ein­angra ekki ákvarð­anir í litlum hópum og velja ráð­gjafa víða að. „Forðist „bön­ker“ stemn­ingu í hreyf­ing­unni, ekki leggja allt á herðar Katrínar, það er ekki sann­gjarnt gagn­vart henni né öðrum. Og alls ekki stilla þessu upp sem „með eða á móti Katrínu“ eða per­sónu­gera á annan hátt, það er ódýrt trikk og verður ekki til að græða sárin.“

Fylgið strax byrjað að dala

Verðandi rík­is­stjórn mun byrja því hefja störf með vind­inn í fangið, verði af myndun hennar. Könnun MMR sýndi að allir flokk­arnir þrír sem nú vinna að því að mynda rík­is­stjórn mæl­ast með lægra fylgi en þeir fengu í kosn­ing­unum. Sam­an­lagt myndu þeir nú fá 46,9 pró­sent atkvæða sem myndi að öllum lík­indum ekki duga þeim fyrir meiri­hluta.

Sá flokkur sem tapar mestu frá kosn­ing­unum,sam­kvæmt könn­un­inni, eru Vinstri græn. Fylgi þeirra fer úr 16,9 pró­sent í 13 pró­sent. Í könn­un­inni kemur fram að ein­ungis 60 pró­sent þeirra sem kusu Vinstri græn í októ­ber myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Það er mun meira brott­fall en á meðal ann­arra flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár