Íslendingum sem skráðir eru í Þjóðkirkjuna fækkaði mikið í fyrra

Sókn­ar­börnum Þjóð­kirkj­unnar hefur fækkað um átta þús­und á síð­ustu tíu árum, eða um 3,2 pró­sent. Þau eru nú 242.743 en voru 250.759 þús­und árið 2005. Á sama tíma hefur Íslend­ingum fjölgað um 35.523, en sú fjölgun hefur ekki skilað neinni aukn­ingu á sókn­ar­börnum Þjóð­kirkj­unnar. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Hagstofu Íslands um trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög sem birtar voru í morgun.

Í byrjun þessa árs voru 73,8 pró­sent þjóð­ar­innar skráð í Þjóð­kirkj­unni. Hlut­fallið var 85,4 pró­sent árið 2005. Lang­flestar breyt­ingar á trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lagi sem áttu sér stað á árinu 2014 voru vegna þess að Íslend­ingar sögðu sig úr Þjóð­kirkj­unni, eða 2.533. Alls gengu 2.079 fleiri úr Þjóð­kirkj­unni en í hana. Það er tölu­verð aukn­ing frá árinu 2013 þegar brott­skráðir umfram nýskráða í Þjóð­kirkj­unni voru 1.716 tals­ins.

Þeim sem skráðu sig utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga fjölg­aði á síð­asta ári um 1.255. Þeim hefur fjölgað um rúm­lega ell­efu þús­und á ára­tug og erum nú 18.458, eða 5,6 pró­sentAf trú­fé­lögum varð mest fjölgun í Kaþólsku kirkj­unni (469 fleiri skráðu sig en sögðu sig úr) og í Siðmennt (409 fleiri skráðu sig en sögðu sig úr).

Flóttinn varað lengi


Fækkun þeirra sem kjósa að vera í Þjóð­kirkj­unni hefur verið mjög stöðug um nokk­urt langt skeið. Lengi vel var skipu­lag á Íslandi með þeim hætti að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­fé­lag móður. Það þurfti því sér­stak­lega að skrá sig úr trú­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það. Nú er fyr­ir­komu­lagið þannig að nýjum for­eldrum er gert að velja hvaða trú­fé­lagi þau vilja að börn þeirra til­heyri þegar nafn þeirra er skráð, eða hvort þau vilji að börnin standi utan trú­fé­lags, ef for­eldr­arnir eru ekki skráðir í sama trú­fé­lag og eru skráðir í sam­búð eða hjú­skap.

Árið 1992 voru 92,2 pró­sent lands­manna skráðir í Þjóð­kirkj­una. Um ald­ar­mótin var það hlut­fall komið niður í 89 pró­sent og í dag er það 73,8 pró­sent. Þeim íslensku rík­is­borg­urum sem kusu að standa utan Þjóð­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­ustu ald­ar­mót. Í byrjun þessa árs voru þeir 86.357 tals­ins. Þeim hefur því fjölgað um rúm­lega 55 þús­und á 15 árum.

Mun færri börn skráð í Þjóðkirkjuna við fæðingu


Innan við 60 pró­sent þeirra barna sem fædd­ust í fyrra voru skráð í Þjóð­kirkj­una við fæð­ingu. Hlut­fallið hefur lækkað veru­lega frá árinu 2005, þegar það var rúm­lega 80 pró­sent. Á sama tíma­bili hefur börnum sem eru skráð með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­að­ild fjölgað mikið, eða úr tæpum sex pró­sentum barna sem fædd­ust árið 2005 í rúm­lega 26 pró­sent barna sem fædd­ust árið 2014.


Þetta er hægt að sjá út úr tölum sem birt­ust í svari Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar, um skrán­ingu barna í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög. Svarið var lagt fram á Alþingi í lok febr­úar síð­ast­lið­ins.

45.560 lif­andi fædd börn komu í heim­inn á Íslandi á árunum 2005 til 2014. 1.716 börn voru skráð utan trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­laga og 4.774 börn voru skráð með ótil­greinda trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild. Eftir að ný lög tóku gildi í byrjun árs 2013 eru börn skráð með stöð­una „ótil­greind trú­fé­lags- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild“ ef for­eldrar þeirra eru í hjú­skap eða sam­búð en ekki í sama trú­fé­lagi. For­eldrar þurfa þá að taka sam­eig­in­lega ákvörðun um trú­fé­lag en fram að því er barnið skráð með ótil­greinda stöðu.

Traust til kirkjunnar hefur minnkað mikið frá aldarmótum


Traust til Þjóð­kirkj­unnar hefur einnig dalað mjög skarpt frá ald­ar­mótum. Árið 1999 treystu 61 pró­sent lands­manna Þjóð­kirkj­unni sam­kvæmt könnun Þjóð­ar­púlsi Capacent. Traustið hrundi næstu árin og fór lægst í 28 pró­sent í febr­úar 2012. Það hefur síðan auk­ist lít­il­lega og í nýjasta Þjóð­ar­púls­inum sem mældi traust til stofn­ana, sem var fram­kvæmdur í febr­úar 2015, mæld­ist traustið 36 pró­sent. Það er 25 pró­sentu­stigum minna en það var fyrir 16 árum síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár