Innrásin gæti dregið úr ferðavilja Bandaríkjamanna

Flug­bók­anir banda­rískra ferða­manna dróg­ust tölu­vert saman í öllum Evr­ópu­löndum, að Íslandi, Belgíu og Serbíu und­an­skildu, í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu. Erlendir sér­fræð­ingar segja stríðið geta hægt á við­spyrnu evr­ópskrar ferða­þjón­ustu.

Ísland var eitt þriggja Evr­ópu­landa sem varð ekki fyrir miklum sam­drætti í bók­unum banda­rískra ferða­manna eftir að Rúss­lands­her réðst inn í Úkraínu. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu fyr­ir­tæk­is­ins ForwardKeys.

13 prósenta samdráttur milli vikna

Samkvæmt grein­ing­unni hefur virki­lega dregið úr ferða­vilja Banda­ríkja­manna í álf­unni, en flug­bók­anir þeirra dróg­ust saman um allt að helm­ing í aust­ur­hluta hennar í síð­ustu viku febr­ú­ar­mán­aðar, miðað við vik­una þar á undan.

Að Úkraínu og Hvíta-Rúss­landi und­an­skildu var sam­drátt­ur­inn mestur í Moldóvu, þar sem hann nam yfir 50 pró­sentum. Einnig dróg­ust flug­bók­anir saman um allt að helm­ing í Eystra­salts­lönd­unum, Póllandi, Slóvakíu, Ung­verja­landi, Slóveníu, Króatíu og Búlgaríu.

Í flestum hinum Evr­ópu­lönd­unum nam sam­drátt­ur­inn á milli vikna hins vegar á bil­inu tíu til 30 pró­sentum. Í Serbíu, Belgíu og á Íslandi fækk­aði bók­unum einnig, en þó um ekki meira en tíu pró­sent. Að með­al­tali dróg­ust bók­an­irnar saman um 13 pró­sent.

Financial Times fjall­aði um minnk­andi ferða­vilja Banda­ríkja­manna vegna inn­rás­ar­innar fyrr í dag. Samkvæmt þeirri umfjöllun búast evr­ópskir hót­el­keðju­eig­endur við miklum sam­drætti í bók­unum í allri álf­unni, þar sem banda­rískir ferða­menn gætu ótt­ast að heim­sækja hana vegna stríðs­ins.

Samkvæmt fram­kvæmda­stjóra evr­ópsku ferða­þjón­ustu­sam­tak­anna (ETOA) er þetta mikið högg fyrir evr­ópska ferða­þjón­ustu, sem reiðir sig venju­lega mikið á ferða­menn frá Banda­ríkj­unum. Þar að auki hefur skuld­setn­ing margra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja orðin íþyngj­andi eftir far­ald­ur­inn, til við­bótar við að eft­ir­spurn eftir ferða­löngum frá Asíu­ríkjum hefur ekki náð sér á strik þar sem strangar sótt­varnir eru enn í gildi þar.

Líkt og Kjarninn hefur áður greint frá jókst fjöldi banda­rískra ferða­manna hratt hér­lendis í fyrra, en í ágúst og sept­em­ber var hann orð­inn 90 pró­sent af fjölda þeirra í sama mán­uði árið 2019. Eftir að kór­ónu­veirusmitum byrj­aði aftur að fjölga í fyrra­haust dró þó hratt úr fjölda þeirra, en í síð­asta mán­uði var fjöldi þeirra aðeins 40 pró­sent af sam­svar­andi fjölda þeirra í febr­úar fyrir þremur árum síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár