Bakslag í ferðamannafjölda eftir Ómíkron

Dregið hefur veru­lega úr upp­takt­inum í ferða­manna­fjölda til Íslands á síð­ustu þremur mán­uðum, eftir upp­götvun Ómíkron-afbrigð­is­ins af kór­ónu­veirunni. Erlendir far­þegar í síð­asta mán­uði voru helm­ingi færri en í febr­úar 2019.

Alls fóru um 76 þús­und far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl í febr­úar, sam­kvæmt nýbirtum tölum frá Ferða­mála­stofu, en það er um helm­ingi færri far­þegar en fóru um völl­inn á sama tíma árið 2019. Ekki hefur enn tek­ist að vinna úr því bakslagi í ferða­manna­fjöld­anum sem varð eftir að kór­ónu­veirusmitum tók að fjölga vegna Ómíkron-afbrigð­is­ins, en sér­stak­lega hefur fækkað í hópi Banda­ríkja­manna á síð­ustu þremur mán­uðum.

Ferða­mála­stofa greinir frá því að ferða­manna­fjöld­inn sé gjör­breyttur frá því á síð­asta ári, þegar brott­farir voru um þrjú þús­und tals­ins. Í ár voru þær álíka margar og árið 2015, en um og yfir helm­ingi færri en í febr­úar árin 2019 og 2020. Nærri tvær af hverjum fimm brott­förum voru til­komnar vegna Breta. [adspot]

Myndin hér að neðan sýnir far­þega­fjöld­ann í hverjum mán­uði frá upp­hafi far­ald­urs­ins, ef miðað er við sama mánuð árið 2019. Samkvæmt henni dró veru­lega úr mun­inum í fyrra, en í októ­ber síð­ast­liðnum var fjöldi ferða­manna orð­inn 63 pró­sent af þeim fjölda sem fór um Kefla­vík­ur­flug­völl í nóv­em­ber 2019.

Í kjöl­far upp­götv­unar á Ómíkron- afbrigð­inu hefur þó orðið við­snún­ingur á þess­ari þróun. Á síð­ustu þremur mán­uðum hafa erlendir far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl verið um helm­ingi færri en á sama tíma fyrir þremur árum síðan.

Mest hefur fækkað í hópi banda­rískra ferða­manna, en heild­ar­fjöldi þeirra í síð­asta mán­uði nam aðeins 40 pró­sentum af sam­svar­andi fjölda í febr­úar árið 2019. Fyrir Ómíkron-bylgj­una var fjöldi þeirra þó næstum því kom­inn aftur í eðli­legt horf, en í októ­ber var hann 90 pró­sent af sam­svar­andi fjölda þeirra fyrir þremur árum síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár