Ban Ki-Moon: „Er harmi sleginn“ - Kallar eftir samstöðu ríkja

Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, seg­ist harmi sleg­inn vegna þessa mikla fjölda fólks sem nú flýr stríðs­á­tök, meðal ann­ars í Sýrlandi, og leggur í hættu­för til þess að freista þess að öðl­ast betra og örugg­ara líf. Í við­tali við breska rík­is­út­varpið BBC, kallar hann eftir sam­stöðu ríkja til þess að takast á við þann mikla vanda sem millj­ónir manna séu í. Ríki heims­ins, ekki síst í Evrópu, verði að leggja sitt af mörkum. Stækka þurfi örygg­is­net sem aðstoði flótta­menn og efla þurfi alla þjón­ustu sem dregið geti úr vand­anum.

„Stærstur hluti þessa fólks sem er á flótta, og leggur upp í hættu­för til þess að kom­ast til Evrópu, er á flótta vegna stríð­á­stands í ríkjum eins og Sýrlandi, Írak og Afganistan [...] Alþjóða­sam­fé­lagið verður einnig að beita sér með afger­andi hætti til þess að binda endi á átökin sem eru rót vand­ans,“ sagði Ban Ki-Moon.

Fjöldi flótta­manna sem fór yfir landa­mæri til Evr­ópu­ríkja þre­fald­að­ist í síð­asta mán­uði, miðað við sama mánuð í fyrra, og fóru 107.500 manns yfir landa­mærin. Stærstur hluti þeirra dvelur nú í flótta­manna­búðum, einkum tjald­búðum, sem komið hefur verið upp víða. Stærstu búð­irnar eru á Ítalíu og Grikk­landi, en yfir­völd í Aust­ur­ríki og Þýsklandi, ásamt fleiri ríkjum, vinna nú að því að koma upp búðum til þess að geta tekið á móti tugum þús­unda til við­bótar við þann fjölda sem þegar dvelur í búðum í lönd­unum.

Talið er að rúm­lega tutt­ugu millj­ónir manna séu nú á flótta vegna stríðs­á­taka í Sýrlandi, Írak og Afganistan, og einni í Norður-Afríku. Fjölg­unin verið hröð á und­an­förnum sex mán­uðum, og ótt­ast Sam­ein­uðu þjóð­irnar að hóp­ur­inn muni stækka hratt eftir ekk­ert verið gert, sem bundið getur enda á átökin sem fólkið er að flýja.

Þá hafa þjóðir heims­ins verið hvattar til þess að leggja sitt af mörkum til þess að aðstoða þá sem eru á flótta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár