Stór mál hjá skattrannsóknarstjóra setið föst síðan í maí og ekki færst til héraðssaksóknara

Lög sem lögðu niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra og gerðu það að deild innan Skatts­ins voru sam­þykkt í apríl og tóku gildi nokkrum dögum síðar. Setja þarf verk­lags­reglur svo hægt sé að færa rann­sóknir til hér­aðs­sak­sókn­ara. Þær hafa enn ekki verið settar.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði fram frumvarpið sem lagði niður embætti skattrannsóknarstjóra í þeirri mynd sem það var.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varpið sem lagði niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra í þeirri mynd sem það var. Mynd: Bára Huld Beck

Í nóv­em­ber í fyrra var lagt fram frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að leggja niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem sjálf­stæða stjórn­sýslu­ein­ingu og færa verk­efni þess ann­ars vegar til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara og hins vegar til Skatts­ins.

[links]Rann­sóknir á stærri skattsvika­málum áttu með þessu að fær­ast yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara en það emb­ætti sak­sótti áður slík mál sem rann­sökuð voru innan skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Það sem eftir stóð af skatt­rann­sókn­ar­stjóra átti að verða ein­ing innan Skatts­ins. Samhliða átti að gera minni skatta­laga­brot refsi­laus og leysa þau með sektum.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra gagn­rýndi frum­varpið í athuga­semd sem það skil­aði inn á meðan að það var til með­ferðar á Alþingi kom fram að það teldi frum­varpið ganga gegn til­gangi sínum, sem var að koma í veg fyrir tvö­falda refs­ingu og tvö­falda máls­með­ferð í skatta­málum.

Þá var bent á að hér­aðs­sak­sókn­ari hefði ekki aðgang að upp­lýs­inga­kerfum skatta­yf­ir­valda, sem væri ómissandi verk­færi við rann­sóknir á skatta­málum. Í umsögn­inni sagði: „Aðgangur að þessum kerfum er aðeins fyrir hendi hjá skatt­yf­ir­völdum. Eigi frum­rann­sókn mála að fara ann­ars staðar en hjá skatt­yf­ir­völdum er óheftur aðgangur að þeim kerfum lyk­il­for­senda þess að slíkar rann­sóknir reyn­ist mögu­legar.“

Aðgengi að þessum gagna­bönkum er bundið heim­ild í tekju­skattslögum. Þeim þarf að breyta til að veita öðrum en Skatt­inum og skatt­rann­sókn­ar­stjóra aðgang. Í lög­unum sem lögðu niður skatt­rann­sókn­ar­stjóra er aðgengi hér­aðs­sak­sókn­ara að gagna­bönkum ekki tryggt.

Lögin tóku gildi nokkrum dögum eftir samþykkt

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar tók ekki til­lit til þess­ara athuga­semda og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sagði þær byggðar á mis­skiln­ingi. Þann 20. apríl síð­ast­lið­inn varð frum­varpið sam­þykkt. Lögin tóku svo nokkrum dögum síðar, eða 1. maí 2021. Því gafst ekki langur tími til að skipta þeim verk­efnum sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra var með á sinni könnu milli þeirra aðila sem áttu að taka við þeim.

[adspot]Fyrir lá að stærri rann­sóknir sem voru í gangi ættu að flytj­ast yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara. Til þess að það yrði hægt, án þess að rann­sókn­irnar yrðu fyrir skaða, þá þurfti að setja verk­lags­reglur um hvaða skil væru á milli emb­ætt­anna tveggja. Í ljósi þess að ell­efu dagar liðu frá því að lögin voru sam­þykkt og þangað til að þau tóku gildi blasti við að ekki var mik­ill tími til aðlög­unar.

Rík­is­sak­sókn­ara var falið það verk­efni að setja verk­lags­regl­urnar. Þær reglur liggja enn ekki fyrir, rúmum fjórum mán­uðum eftir að lögin voru sam­þykkt. Því hafa, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, stærri rann­sóknir staðið fastar mán­uðum saman og hafa ekki flust yfir til emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara líkt og lögin gerðu ráð fyrir.

Stærri mál sitja föst

Hjá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara feng­ust þær upp­lýs­ingar að Sigríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari hafi sent tölvu­póst til hlut­að­eig­andi með drögum að reglum fyrr í sumar, nánar til­tekið í jún­í­byrjun. Samhliða hafi hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra verið gefin heim­ild til að hefja flutn­ing mála í sam­ræmi við drögin. Hvorugt emb­ættið hefur hins vegar hætt á að gera það fyrr en verk­lags­regl­urnar liggja form­lega fyrir, svo að rann­sókn mála skemmist ekki á tækni­legum for­sendum. Því er til staðar mis­mun­andi skiln­ingur á því hvort óhætt sé að styðj­ast við drögin við til­færslu mála eða hvort að bíða þurfi eftir form­legum verk­lags­legum. Á meðan sitja stærri málin sem eru í rann­sókn föst, og kom­ast ekki yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara.

Heim­ildir Kjarnans herma að búið sé að funda um málið síð­ustu daga til að reyna að koma verk­lags­regl­unum form­lega á. Embætti rík­is­sak­sókn­ara hefur kallað eftir upp­lýs­ingum frá báðum aðilum um hvaða skatt­rann­sókn­ar­mál séu í píp­unum, hvert eðli og umfang þeirra sé, hvaða upp­hæðir séu undir og svo fram­vegis. Þær upp­lýs­ingar eru komnar frá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara en ekki skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Kjarninn leit­aði eftir svörum um stöðu mála hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra en fékk svar frá sér­fræð­ingi á skrif­stofu rík­is­skatt­stjóra. Í því sagði að eðli máls­ins sam­kvæmt kalli sam­ein­ing stofn­ana á yfir­ferð og eftir atvikum breyt­ingar á verk­lagi og verk­ferlum sem geti tekið ein­hvern tíma. „Í því ljósi þykir ekki óeðli­legt að ein­hverjar tafir kunni að hafa verið á málum fyrst um sinn eftir sam­ein­ing­una en þó má segja að tafir hafi ekki verið meiri en búast mátti við. Miðað við aðstæður þykir því fram­vindan eðli­leg.“

Stærsta rannsóknin snýr að Samherja

Það mál sem hefur verið fyr­ir­ferða­mest, og sýni­leg­ast í opin­berri umræðu, á meðal þeirra sem voru til rann­sóknar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra er rann­sókn á meintum skatta­laga­brotum Samherja. Embættið hefur verið að rann­saka hvort raun­veru­legt eign­ar­hald á allri Sam­herj­a­sam­stæð­unni sé hér­lendis og hvort að ákvörðun um að greiða skatta ann­ars staðar en hér sé þar með stór­felld skatta­snið­ganga.

Í minn­is­blaði sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra sendi til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins 18. nóv­em­ber 2019, sex dögum eftir að umfjöllun fjöl­miðla um starfs­hætti Samherja í Namibíu hófst, kom fram að í ljósi „mik­il­vægi máls­ins og umfangs þess“ teldi emb­ættið rétt að fara þess á leit við ráðu­neytið að emb­ætt­inu yrði „gert kleift að auka mann­afla emb­ætt­is­ins tíma­bundið til að geta sinnt þessu afmark­aða verk­efni á sem skjótastan og far­sælastan hátt.“ Í kjöl­farið var við­bót­ar­fjár­magni veitt til skatt­rann­sókn­ar­stjóra úr rík­is­sjóði.

[adspot]Það sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra er meðal ann­ars að rann­saka er hvernig töku ákvarð­ana var háttað innan sam­stæðu Samherja. Upp­haf­s­punktur þeirrar rann­sóknar er skýrsla sem KPMG, þáver­andi end­ur­skoð­andi Samherja, vann um starf­semi Samherja á árunum 2013 og 2014.

Umrædd skýrsla KPMG fyrir Samherja, eða öllu heldur drög að henni, var meðal ann­ars til umfjöll­unar í bók­inni Ekkert að fela eftir Helga Seljan, Aðal­stein Kjart­ans­son og Stefán A. Drengs­son sem kom út í nóv­em­ber 2019. Skýrslan er eins konar grein­ing á því hvernig skipu­lag Sam­herj­a­sam­stæð­unnar var á þessum tíma.

Samkvæmt mati sér­fræð­inga KPMG, sem byggði m.a. á við­tölum við starfs­fólk Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, var for­stjór­inn og stjórn­ar­for­mað­ur­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son nær ein­ráður í fyr­ir­tæk­inu og með alla þræði í hendi sér. Engin form­leg fram­kvæmda­stjórn var sögð innan Samherja hf., sam­kvæmt þessum drögum sér­fræð­inga KPMG.

Athuga­semdir voru gerðar við ýmis­legt af því sem fram kom í mati KPMG af hálfu Samherja og í síð­ari drögum að skýrsl­unni var búið að draga úr umfjöllun um hlut­verk og áhrif stjórn­ar­for­manns­ins. Bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur talið að vert sé skoða þessa skýrslu­gerð sér­stak­lega.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur tekið skýrslur af lyk­il­fólki innan Samherja við rann­sókn máls­ins, meðal ann­ars Þor­steini Má.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár