Meirihluti fjárlaganefndar segir embættismann hafa hótað æru- og eignamissi

Þing­mönnum í meiri­hluta fjár­laga­nefndar hefur verið hótað vegna skýrslu Vigdísar Hauks­dóttur, „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“. Þetta kemur fram í bókun meiri­hluta nefnd­ar­innar sem var sam­þykkt á fundi hennar í morgun.

Skýrslan er nú aðeins í nafni Vigdísar, og segir Vigdís við mbl.is að það hafi verið ákveðið vegna þess að hún hafi unnið skýrsl­una að mestu leyti ein þó fjár­laga­nefnd hafi komið að því að kalla eftir upp­lýs­ingum. Skýrslan var afgreidd úr fjár­laga­nefnd í morgun, og ákvað hún að vísa skýrsl­unni til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar með þeirri ósk að þar verði hún tekin til með­ferðar. 

„Und­ir­rit­aðir þing­menn ít­reka mik­il­vægi þess að stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd hrindi af stað rann­sókn og að leynd á gögn­un­um er varða málið verði aflétt. Þingmenn innan stjórn­ar­meiri­hluta fjár­laga­nefndar hafa fengið beinar hót­anir um æru- og eigna­missi frá hátt­settum emb­ætt­is­manni eftir að skýrslan hafði verið kynnt. Kvörtun vegna þess verður sett í við­eig­andi far­veg. Í ljósi þeirra við­bragða telja und­ir­rit­aðir enn frekar mik­il­vægt að rann­sókn fari fram,“ segir í bókun þeirra.

Vigdís skrif­aði ekki undir þá bókun, en það gerðu aðrir full­trúar meiri­hlut­ans, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Bene­dikts­son, Páll Jóhann Pálsson og Val­gerður Gunn­ars­dóttir.

Val­gerður birtir bók­un­ina á Facebook-síðu sinni, og segir einnig þar að umræddur emb­ætt­is­maður, sem þing­menn­irnir segja að hafi hótað æru- og eigna­missi, verði nafn­greindur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár