Icelandair segir stutt í samkomulag við hagaðila

Tekjur Icelandair á öðrum árs­fjórð­ungi voru 60 millj­ónir dala sam­an­borið við 400 millj­ónir á sama tíma í fyrra. Viðræður við hlut­að­eig­andi aðila eru langt komnar vegna fyr­ir­hug­aðs hluta­fjár­út­boðs í ágúst.

Alls námu tekjur Icelandair á öðrum árs­fjórð­ungi um 60 millj­ónum dala, sem sam­svarar tæp­lega 8,3 millj­örðum króna á gengi dags­ins, sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum fyrir árs­fjórð­ung­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem send var til kaup­hallar í morgun. Á sama tíma í fyrra námu tekjur félags­ins rúm­lega 400 millj­ónum dala, eða um og sam­drátt­ur­inn því um 85 pró­sent.

Rekstr­ar­nið­ur­staða félags­ins fyrir fjár­magnsliði og skatta verður nei­kvæð um 100 til 110 millj­ónir dala á fjórð­ungnum eða sem sam­svarar 13,7 millj­örðum til 15,1 millj­arðs króna, að því er fram kemur í til­kynn­ingu. Þá nemur hand­bært fé og jafn­gildi hand­bærs fjár 154 millj­ónum dala, eða rúmum 21 millj­arði króna. Nið­ur­staða ann­ars árs­fjórð­ungs verður birt 27. júlí næst­kom­andi.

Í gær greindi Frétta­blaðið frá því að félagið ætl­aði að ljúka við­ræðum við lán­ar­drottna, Boeing og stjórn­völd fyrir lok mán­aðar áður en farið verður í hluta­fjár­út­boð. Í kaup­hall­ar­til­kynn­ingu Icelandair segir að við­ræður við hlut­að­eig­andi aðila séu langt á veg komnar. Gert er ráð fyrir að sam­komu­lagi verði náð fyrir lok mán­aðar og stefnir félagið á hluta­fjár­út­boð í ágúst.

Eitt af þeim atriðum sem enn er óleyst fyrir hluta­fjár­út­boð er samn­ingur við flug­freyjur félags­ins. Atkvæða­greiðsla um nýund­ir­rit­aðan kjara­samn­ing milli Icelandair og Flug­freyju­fé­lags Íslands hefst á morgun og stendur til 27. júlí. Nú þegar hafa flug­menn og flug­virkjar skrifað undir nýja samn­inga sem skila sér í rekstr­ar­hag­ræði fyrir félagið.

[links]Í frétta­skýr­ingu Kjarnans frá því í maí kom fram að við­mæl­endur væru sam­mála um að það fé sem sótt verði í hluta­fjár­út­boð­inu yrði ekki sótt til erlendra fjár­festa. Vonir eru helst bundnar við að líf­eyr­is­sjóð­irnir taki þátt í útboð­inu enda fáir aðilar á inn­lendum mark­aði með álíka bol­magn til fjár­fest­inga. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga auk þess stóran hlut í félag­inu.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur sagst munu beita sér fyrir því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna taki ekki þátt í hluta­fjár­út­boð­inu. Í síð­ustu viku beindi stjórn VR þeim til­mælum til þeirra stjórn­ar­manna sem VR skipar í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna að snið­ganga eða greiða atkvæði gegn þátt­töku í vænt­an­legu hluta­fjár­út­boði Icelandair. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er stærsti ein­staki eig­andi Icelandair en sjóð­ur­inn heldur á tæp­lega 12 pró­sent hlut í félag­inu.

Í kjöl­farið sá Unnur Gunn­ars­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits, ástæðu til að minna á sjálf­stæði stjórn­ar­manna og að fylgst væri með fram­göngu verka­lýðs­for­yst­unnar í tengslum við aðkomu Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna að Icelandair.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár