Le Pen og félagar biðu ósigur í Frakklandi en „hættan af hægri öfgum er ekki farin neitt“

Marine Le Pen og félagar hennar í hægri öfga­flokknum National Front, eða Þjóð­fylk­ing­unni, náðu ekki völdum í neinu hér­aði Frakk­lands, sam­kvæmt útgöngu­spá. Í dag fór fram seinni umferðin í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í land­inu.

Útgöngu­spáin bendir til þess að Þjóð­fylk­ingin hafi orðið þriðji stærsti flokk­ur­inn í seinni umferð­inni. Flokk­ur­inn fékk flest atkvæði í sex af þrettán héröðum í fyrri umferð­inni fyrir viku síðan.

Le Pen hefur við­ur­kennt ósig­ur­inn og heitir því að halda áfram að berj­ast fyrir sínum mál­stað. „Ekkert getur stöðvað okkur. Lengi lifi franska lýð­veldið! Lengi lifi þjóðin" Lengi lifi Frakk­land!" sagði hún við stuðn­ings­menn sína í kvöld.

Bæði Le Pen og frænka hennar Marion Marachal-Le Pen höfðu fengið yfir 40% atkvæða í sínum héröðum í fyrri umferð­inni, en nú í seinni umferð­inni virð­ist sem fólk sem kaus sós­í­alista í fyrri umferð­inni hafi komið á kjör­stað til að kjósa repúblikana­flokk Nicolas Sarkozy.

Xavier Bertrand, sem er leið­togi repúblik­ana í Nord-Pas-de-Calais-Picardie, sagði í kvöld að Frakkar hefðu kennt sam­stöðu og hug­rekki. „Hér stöðv­uðum við fram­gang Þjóð­fylk­ing­ar­innar.“

En for­sæt­is­ráð­herr­ann Manuel Valls var ekki eins jákvæður. Hann var­aði við því að „hættan sem stafar af hægri öfgum er ekki farin neitt, langt því frá.“

Og Sarkozy sagði að nú væri tími til þess að fara í djúpa rök­ræðu um það hverju Frakkar hafi áhyggjur af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár