Cameron hættir sem forsætisráðherra Bretlands eftir ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslunni

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, ætlar að hætta störfum eftir að ljóst varð í morgun að hans mál­staður varð undir í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni um áfram­hald­andi veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu. Bretar kusu með því að yfir­gefa sam­bandið með 52% gegn 48%. Cameron barð­ist fyrir áfram­hald­andi veru rík­is­ins í ESB.

Cameron hélt blaða­manna­fund rétt í þessu þar sem hann sagði að Bretar ættu að vera stoltir af því að í Bret­landi væri almenn­ingi treyst fyrir því að taka ákvörðun af þessu tagi. Það yrði að virða vilja meiri­hlut­ans, og nú ættu allir að leggj­ast á eitt til að láta þetta ganga upp. Hann óskaði and­stæð­ing­unum til ham­ingju með vel heppn­aða kosn­inga­bar­áttu og þakk­aði þeim sem unnu að bar­átt­unni fyrir því að vera áfram í ESB.

Þá gerði hann líka til­raun til að róa mark­aði og sagði efna­hag Breta mjög sterkan og það hefði ekki breyst. Pundið hefur fallið veru­lega það sem af er morgni og sömu sögu er að segja af hluta­bréfa­verði. Hann reyndi líka að róa ein­stak­linga sem eru í óvissu með sína stöðu, Breta sem búa í öðrum Evr­ópu­sam­bands­ríkjum og Evr­ópu­búa sem búa í Bret­landi, og sagði að á næst­unni yrði engin breyt­ing á þeirra högum.

Cameron sagði nauð­syn­legt að fá nýja for­ystu til þess að fylgja eftir þess­ari breyttu stöðu Bret­lands. Hann ætli þó að starfa áfram í milli­tíð­inni og muni fara á fund Evr­ópu­sam­bands­ins í næstu viku. Miða ætti við að nýr for­sæt­is­ráð­herra sé kom­inn til starfa eftir nokkra mán­uði, helst fyrir lands­fund Íhalds­flokks­ins í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár