Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í Mosfellsbæ og Þorgerður Arna Einarsdóttir framkvæmdastjóri Blikastaðalands ehf. við undirritun samningsins í síðustu viku.
Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka, Haraldur Sverr­is­son bæj­ar­stjóri í Mos­fellsbæ og Þor­gerður Arna Ein­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri Blika­staða­lands ehf. við und­ir­ritun samn­ings­ins í síð­ustu viku.

Styr um samningagerð við Arion í bæjarstjórn Mosfellsbæjar

Níu dögum fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar und­ir­rit­aði Mos­fells­bær sam­komu­lag við félag í eigu Arion banka um upp­bygg­ingu Blika­staða­lands­ins. Minni­hlut­inn í bæj­ar­stjórn sat ýmist hjá eða greiddi atkvæði gegn samn­ingnum og taldi þörf á meiri umræðu.

Samn­ings­gerð Mos­fells­bæjar við Blika­staða­land ehf., félag sem í end­an­legri eigu Arion banka, vegna upp­bygg­ingar sam­nefnds lands, er umdeild á meðal bæj­ar­full­trúa í Mos­fellsbæ. Einungis full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna, sem saman mynda fimm manna meiri­hluta í níu manna bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæjar, sam­þykktu samn­ing­inn er hann var afgreiddur í bæj­ar­stjórn 4. maí.

Tilkynnt var á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku að samn­ingar hefðu náðst um að byggja upp á bil­inu 3.500-3.700 íbúðir fyrir um 9.000 íbúa í áföngum á næstu 15-20 árum á rúm­lega 80 hekt­ara land­svæði. Gengið er út frá því að hægt verði að hefja fram­kvæmdir við fyrsta áfanga árið 2024.

Stefán Ómar Jónsson bæj­ar­full­trúi Vina Mos­fells­bæjar var eini bæj­ar­full­trú­inn sem greiddi atkvæði gegn sam­þykkt samn­ings­ins í bæj­ar­stjórn, en full­trúar Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Mið­flokks sátu auk þess hjá. Á bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum, degi fyrir und­ir­ritun sam­komu­lags­ins, lögðu full­trúar Vina Mos­fells­bæjar, Sam­fylk­ingar og Mið­flokks sam­eig­in­lega fram til­lögu um að afgreiðslu samn­ings­ins yrði frestað, en sú til­laga var felld af meiri­hlut­anum.

Bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn sam­þykkti samn­ing­inn sem áður segir og telur „mjög eðli­legt“, í ljósi þess að málið hafi verið í vinnslu stóran hluta kjör­tíma­bils­ins, að ljúka því með gerð samn­ings um upp­bygg­ingu lands­ins, sem þau segja að sé hag­stæður fyrir Mos­fellsbæ.

„Hjúpað trúnaði“ fram á síðustu stundu

Í sam­tali við Kjarnann segir Stefán Ómar and­stöðu sína við sam­þykkt samn­ings­ins fyrst og fremst stafa af því hvernig málið bar að, en bæj­ar­full­trúar höfðu eina viku til þess að kynna sér efni samn­ings­ins áður en hann var tek­inn til afgreiðslu í bæj­ar­stjórn. Á þeim tíma, segir Stefán Ómar, og sökum þess að trún­aður þurfti að ríkja um samn­ings­drögin vegna þess að Arion banki er skráð félag, gafst hvorki tími til þess að rýna samn­ing­inn á dýpt­ina né leita álits sér­fræð­inga um efni hans.

„Þetta var alveg hjúpað trún­aði og þagn­ar­skyldu fram að setn­ingu fund­ar­ins á mið­viku­dag­inn var,“ segir Stefán Ómar við Kjarnann. Hann seg­ist einnig ekki hafa fengið skýr svör frá sér­fræð­ingum bæj­ar­ins við þeim spurn­ingum sem hann hafði um efni samn­ings­ins; til dæmis um það hver nið­ur­staðan yrði ef raunin yrði sú að fram kæmu skipu­lags­til­lögur frá land­eig­and­anum sem bær­inn gæti með engu móti fellt sig við. Samkvæmt samn­ingnum skal allur ágrein­ingur á milli samn­ings­að­ila fara fyrir Gerð­ar­dóm Við­skipta­ráðs Íslands.

„Samviska mín bauð mér ekk­ert annað, á þessu stigi máls­ins, með þessum aðdrag­anda og þess­ari pressu annað en að segja: „Því miður, ég get ekki tekið þátt í þessu“. Ég vil frekar gera það og vera þá und­an­skil­inn því að bera ábyrgð, sem ein­stak­lingur í vinnu fyrir sam­fé­lagið mitt,“ segir Stefán Ómar.

Hann kallar með­ferð máls­ins í stjórn­sýslu bæj­ar­ins hrein­lega dóna­lega og segir það vera á skjön við lýð­ræð­is­stefnu Mos­fells­bæjar að bera ekki stóra ákvörðun eins og þessa fram til meira sam­tals við bæj­ar­búa. „Það var ekki bara verið að sýna mér sem bæj­ar­full­trúa dóna­skap heldur fleiri hund­ruðum kjós­enda sem greiddu götu mína þarna inn,“ segir Stefán Ómar, sem ítrekar að málið hefði þurft meiri umræðu áður á lýð­ræð­is­legum vett­vangi áður en samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður.

Aðrir fulltrúa minnihlutans sammála

Fleiri bæj­ar­full­trúar voru á því máli. Valdimar Birg­is­son bæj­ar­full­trúi Við­reisnar lét bóka harða gagn­rýni á vinnu­brögð bæj­ar­yf­ir­valda og sagði samn­inga­við­ræð­urnar við land­eig­endur staðið yfir um tíma án þess að bæj­ar­full­trúar hefðu verið kall­aðir til og upp­lýstir um gang mála.

„Eðli­legra hefði ver­ið að upp­lýsa bæj­ar­full­trúa um gang mála og skapa þannig sam­stöðu með­al bæj­ar­full­trúa,“ sagði í bókun við­reisn­ar­manns­ins Valdi­mars, en hann sagði þó fagn­að­ar­efni að samn­ingur um upp­bygg­ingu lands­ins væri í höfn og fagn­aði sömu­leiðis sterkri aðkomu land­eig­enda að inn­viða­upp­bygg­ingu í fyr­ir­hug­uðu hverfi.

Anna Sigríður Guðna­dóttir full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar sagð­ist sitja hjá við afgreiðsl­una „vegna skorts á að­komu kjör­inna full­trúa og upp­lýs­inga­flæð­is til þeirra“ í að­drag­anda samn­ings­ins. „Sá trún­að­ur sem hef­ur ríkt um samn­ing­inn frá því kjörn­ir full­trú­ar fengu hann í hend­ur hef­ur kom­ið í veg fyr­ir að hægt væri að leita álits ut­an­að­kom­andi sér­fræð­inga á samn­ingn­um sem er flók­inn og snýst um mjög mikla hags­muni Mos­fells­bæj­ar til langr­ar fram­tíð­ar,“ sagði einnig í bókun Önnu Sigríðar.

Sveinn Óskar Sig­urðs­son full­trúi Mið­flokks­ins sagði að samn­ing­inn þyrfti að meta og greina af óháðum aðilum og vís­aði til þess að sam­kvæmt 66. grein sveit­ar­stjórn­ar­laga bæri sveit­ar­fé­lag­inu að gera það. „Það hef­ur ekki ver­ið gert. Máls­með­ferð og af­greiðsla þessa máls hef­ur reynst afar óheppi­leg,“ sagði í bókun Sveins Óskars á fund­inum.

Spurningar um þéttleika og slagkraft til annarra verka

Stefán Ómar er gagn­rýn­inn á fleira sem samn­ing­inn varðar en ein­ungis máls­með­ferð­ina í bæj­ar­stjórn­inni. Hann bendir til dæmis á að þétt­leiki byggð­ar­innar sem Mos­fells­bær sé nú orð­inn skuld­bund­inn til þess að skipu­leggja á land­inu sé mun meiri en áður hafi verið lagt upp með, eða um 50 íbúðir á hekt­ara að með­al­tali.

Í bænum hafa verið gerðar athuga­semdir við þetta, en Mos­fells­bær hefur löngum haft þá áherslu að vera „sveit í borg“. Í minn­is­blaði stýri­hóps bæj­ar­ins og upp­bygg­ing­ar­að­ila um verk­efnið segir að þétt­leiki svæð­is­ins sé „tölu­vert meiri en gengur og ger­ist í Mos­fellsbæ til þess að fylgja vænt­ingum um sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins“. Með þessum orðum er átt við að fyr­ir­huguð lega Borg­ar­línu um Blika­staða­landið kalli á ákveð­inn þétt­leika byggðar, um tvö­falt meiri en þann sem var fyr­ir­hug­aður í fyrri skipu­lags­til­lögum um landið.

Svona gæti Blikastaðalandið mögulega orðið uppbyggt, samkvæmt þeim hugmyndum að skipulagi sem teiknaðar hafa verið upp fyrir hönd landeiganda.
Svona gæti Blika­staða­landið mögu­lega orðið upp­byggt, sam­kvæmt þeim hug­myndum að skipu­lagi sem teikn­aðar hafa verið upp fyrir hönd land­eig­anda.

Stefán Ómar seg­ist velta því fyrir sér og hafa áhyggjur af því að þetta stóra upp­bygg­ing­ar­verk­efni geti tekið of mik­inn kraft frá öðrum fjár­fest­ing­ar­verk­efnum innan bæj­ar­ins. „Við skuldum að mínu viti sam­fé­lag­inu okkar að fara í gagn­gera end­ur­nýjun á íþrótta­svæð­inu að Varmá, bæði bygg­ingum og fót­bolta­vell­inum, ráð­ast í stúku­bygg­ingu og ýmis­legt og svo sinna menn­ing­ar­geir­anum okkar,“ segir bæj­ar­full­trú­inn og bætir við að eng­inn tón­listar- né leik­list­ar­salur sé undir tón­list­ar­hópa og rót­gróið leik­fé­lag bæj­ar­ins.

„Við skuldum nær­sam­fé­lag­inu að kíkja á það og bæta það áður en við förum í risa­fram­kvæmdir,“ segir Stefán.

Félag Arion banka mun sam­kvæmt samn­ingnum koma að borð­inu með 6 millj­arða króna greiðslu bygg­ing­ar­rétt­ar­gjalds sem á að fara upp í kostnað við upp­bygg­ingu sam­fé­lags­legra inn­viða í hverf­inu og svo einn millj­arð króna til við­bótar sem sér­stak­lega á að fara upp í bygg­ingu íþrótta­mann­virkja sem Mos­fells­bær ætlar að byggja. Auk þess gerir bær­inn ráð fyrir því að geta fengið þrjá millj­arða fyrir sölu lóða á þeim reitum sem hann fær til eignar með sam­komu­lag­inu.

Um fjárhagslegar forsendur samningsins.
Um fjár­hags­legar for­sendur samn­ings­ins.

Þá er vert að taka fram að Blika­staða­land ehf. mun sam­kvæmt samn­ingi ann­ast á eigin ábyrgð og kostnað und­ir­bygg­ingu gatna, gang­stétta og göngu­stíga, lagn­ingu frá­veitu, dreifi­kerfi vatns­veitu og hita­veitu, bund­ins slit­lags á götur og göngu- og hjóla­stíga auk upp­setn­ingar götu­lýs­ingar og lýs­ingar göngu­stíga og frá­gang leik­valla og opinna svæða.

Stefán Ómar spyr þó hver heild­ar­inn­viða­kostn­aður bæj­ar­ins á land­inu verði, og segir það vera eitt af því sem hann fékk ekki full­kom­lega á hreint áður en samn­ing­ur­inn var tek­inn til afgreiðslu í bæj­ar­stjórn, heldur hafi verið settar fram „grófar hug­myndir um svona marga skóla og svona mikið af hinu og þessu“ sem „gæti kostað hitt og kostað þetta“. Samkvæmt gögnum frá bænum er gert ráð fyrir tveimur skóla­bygg­ingum sem þyrftu hvor um sig að vera yfir 7.000 fer­metrar, íþrótta­mann­virki og nýrri sund­laug.

„Mjög eðlilegt“ að bæjarstjórnin klári málið með samningi eftir tveggja ára vinnu

Á fundi bæj­ar­stjórn­ar­innar fyrir rúmri viku svör­uðu full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna þeim athuga­semdum minni­hlut­ans sem lagðar voru fram í bók­unum og röktu form­legan feril máls­ins, sem hófst með því að félag Arion banka leit­aði til bæj­ar­ins í apríl árið 2020 með beiðni um að þró­un­ar­vinna vegna lands­ins yrði hafin. Hug­myndir félags­ins voru svo kynntar bæj­ar­stjórn og skipu­lags­nefnd á fundi í maí 2020.

Á haust­dögum 2020 voru svo skip­aðir stýri­hópur og tveir rýni­hópar vegna und­ir­bún­ings­vinn­unnar, með aðilum frá bænum og land­eig­end­unum. Í fund­ar­gerð kemur fram að í stýri­hópnum hafi setið þeir Haraldur Sverr­is­son bæj­ar­stjóri ásamt for­stöðu­manni þjón­ustu- og sam­skipta­deildar bæj­ar­ins og lög­manni bæj­ar­ins eftir atvikum. Í öðrum rýni­hópum tóku svo sæti fram­kvæmda­stjóri umhverf­is­sviðs bæj­ar­ins og skipu­lags­full­trúi bæj­ar­ins og í hinum hópnum voru fram­kvæmda­stjóri fræðslu- og frí­stunda­sviðs, skóla­full­trúi bæj­ar­ins og fram­kvæmda­stjóri fjöl­skyldu­sviðs, eftir atvikum.

Þessir rýni­hópar skil­uðu af sér minn­is­blaði sum­arið 2021 sem fór fyrir bæj­ar­ráð og þaðan vísað áfram til frek­ari úrvinnslu í skipu­lags­nefnd bæj­ar­ins. Í því minn­is­blaði var meðal ann­ars lagt til að nýjar íbúðir innan Blika­staða­lands­ins yrðu á bil­inu 3.500 til 3.700 tals­ins, eins og á end­anum varð nið­ur­staðan í þeim samn­ingi sem und­ir­rit­aður var í síð­ustu viku. Bæj­ar­full­trúar ættu því ekki að hafa komið af fjöllum hvað fyr­ir­hugað bygg­ing­ar­magn á land­inu varðar.

„Eins og sjá má hef­ur þetta mik­il­væga mál ver­ið í vinnslu stór­an hluta kjör­tíma­bils­ins og kom­ið með ýms­um hætti inn í stjórn, ráð og nefnd­ir bæj­ar­ins. Það er því mjög eðli­legt að bæj­ar­stjórn ljúki þessu máli með gerð samn­ings um upp­bygg­ingu lands­ins. Hann ligg­ur nú fyr­ir og er hag­stæð­ur fyr­ir Mos­fells­bæ,“ bók­aði meiri­hluti bæj­ar­stjórnar á fund­inum.

Kjarninn hafði sam­band við Bjarka Bjarna­son bæj­ar­full­trúa Vinstri grænna vegna upp­bygg­ing­ar­á­for­manna á Blika­staða­land­inu og hann segir í skrif­legu svari að upp­bygg­ingin muni „draga úr lóða­skorti og flýta því að Borg­ar­línan verði lögð upp í Mos­fellsbæ“.

Hann segir að á svæð­inu verði fjöl­breytt og blönduð byggð þar sem hægt verði að sinna erindum sínum fót­gang­andi innan hverf­is­ins, sem sé umhverf­is­vænt. Auk þess verði nátt­úruperlur og úti­vist­ar­svæði í seil­ing­ar­fjar­lægð, til dæmis Úlf­ars­fellið, Úlfarsá og Leiru­vogur.

Um inn­viða­upp­bygg­ingu bæj­ar­ins á Blika­staða­land­inu segir Bjarki að rýni­hópar hafi á und­an­förnum miss­erum skil­greint þá upp­bygg­ingu sem sé nauð­syn­leg á land­inu sam­fara þéttri íbúa­byggð.

„Þetta á meðal ann­ars við um skóla- og íþrótta­mann­virki. Í tengslum við þær áætl­anir skiptir það mjög miklu máli að sam­kvæmt nýund­ir­rit­uðum samn­ingi mun land­eig­andi leggja fram veru­lega fjár­muni til inn­viða­upp­bygg­ingar, hann mun greiða fyrir gatna­gerð og auk þess leggja fram háar fjár­hæðir til bygg­ingar á öðrum innviðum, auk þess sem Mos­fells­bær mun fá allt landið til eignar í fyll­ingu tím­ans. Að þessu leyti er þessi samn­ingur eins­dæmi,“ segir Bjarki í svari til Kjarnans.

Jafn­framt segir for­seti bæj­ar­stjórnar það fagn­að­ar­efni að gömlu úti­hús kúa­bús­ins sem var á Blika­stöðum verði end­ur­gerð og þeim fundið nýtt hlut­verk í nýja hverf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár