3.500-3.700 nýjar íbúðir verði byggðar á Blikastaðalandinu í Mosfellsbæ

Samn­ingar voru í dag und­ir­rit­aðir um mikla hús­næð­is­upp­bygg­ingu á Blika­staða­land­inu, sem er í end­an­legri eigu Arion banka, og Mos­fells­bæjar. Fjöldi þeirra íbúða sem fyr­ir­hug­aðar eru slagar lang­leið­ina upp í þann fjölda íbúða sem eru í Mos­fellsbæ í dag.

Blikastaðalandið er stærsta óbyggða svæðið innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins.
Blika­staða­landið er stærsta óbyggða svæðið innan vaxt­ar­marka höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Mynd: Aðsend

Stefnt er að því að byggja 3.500 til 3.700 nýjar íbúðir á Blika­staða­land­inu í Mos­fellsbæ, en samn­ingar þessa efnis voru und­ir­rit­aðir á milli bæj­ar­yf­ir­valda í Mos­fellsbæ og Blika­staða­lands ehf., félags sem er í end­an­legri eigu Arion banka, fyrr í dag.

Fjöldi íbúða í þessu nýja hverfi slær nærri fjölda allra íbúð­ar­ein­inga sem eru í Mos­fellsbæ í dag, en sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá eru full­búnar íbúðir í bænum rúm­lega 4.400 tals­ins. Þetta er þó lang­tíma­verk­efni og ætla má með að upp­bygg­ing hverf­is­ins taki 15-20 ár, sam­kvæmt því sem haft er eftir Þorgerði Örnu Ein­ars­dóttur fram­kvæmda­stjóra Blika­staða­lands ehf. í frétt RÚV.

Í mark­aðstil­kynn­ingu frá Arion banka kemur fram að vonir standi til þess að aðal­skipu­lags­vinna klárist á þessu ári og að deiliskipu­lag fyrsta áfanga upp­bygg­ing­ar­innar liggi fyrir innan tveggja ára.

Stefnt er að því að um 20 pró­sent nýrra íbúða í hverf­inu verði sér­býli og einnig er stefnt að upp­bygg­ingu 66 þús­und fer­metra atvinnu­hús­næðis. Sá fer­metra­fjöldi kann þó að minnka ef ákveðið verður að byggja upp fleiri íbúðir sem sér­stak­lega verða hugs­aðar fyrir 55 ára og eldri, en í dag er gert ráð fyrir að þær verði um 150 tals­ins.

Blika­staða­landið er stærsta óbyggða svæðið innan vaxt­ar­marka höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, en skipu­lags­svæðið sem hér um ræðir er alls um 90 hekt­arar og gert er ráð fyrir að landið sem hægt verði að nýta til fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar nýs íbúða­svæðið sé um 80 hekt­arar.

Borgarlína í gegnum mitt skipulagssvæðið

Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu Blika­staða­lands ehf. og Mos­fells­bæjar segir að hverfið verði hannað frá grunni sem fjöl­breytt og blönduð byggð þar sem fólk eigi að geta sinnt helstu erindum fót­gang­andi eða með almenn­ings­sam­göngum, en fyr­ir­huguð lega Borg­ar­línu er þvert í gegnum Blika­staða­landið og hefur verið kölluð for­senda fyrir upp­bygg­ingu lands­ins, meðal ann­ars af bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæjar.[links]

Landið er á sveit­ar­fé­laga­mörkum við Reykja­vík og afmarkast af Hlíð­ar­golf­velli í norðri, Korp­úlfs­staða­vegi og Vest­ur­lands­vegi í suðri, núver­andi byggð í Mos­fellsbæ í austri og Úlfarsá í vestri. Kjarninn fjall­aði á síð­asta ári um vest­ari hluta Blika­staða­lands­ins, vestan Korp­úlfs­staða­vegar, þar sem fast­eigna­fé­lagið Reitir er að skipu­leggja mikla upp­bygg­ingu á atvinnu­hús­næði.

Greiða sex milljarða byggingaréttargjald

Blika­staða­land ehf., félagið sem er í end­an­legri eigu Arion banka, mun taka þátt í kostn­aði við inn­viða­upp­bygg­ingu í nýja hverf­inu með bæði beinum fjár­fram­lögum og afhend­ingu eigna.

Samkvæmt til­kynn­ingu greiðir félagið Mos­fellsbæ um 6 millj­arða króna bygg­ing­ar­rétt­ar­gjald sem deilist hlut­falls­lega niður á heild­ar­fjölda íbúð­ar­ein­inga á svæð­inu við útgáfu bygg­ing­ar­leyfis í hverjum áfanga fyrir sig og mun félagið einnig leggja bænum til um 1 millj­arð króna vegna þátt­töku í upp­bygg­ingu íþrótta­mann­virkis á svæð­inu, sem deilist niður á fram­kvæmda­tíma þess mann­virkis.

Þá mun félagið afhenda Mos­fellsbæ til eignar 40 ein­býl­is­húsa­lóðir og einnig afhenda bænum 80 pró­sent af sölu­verði til­tek­inna lóða fyrir atvinnu­hús­næði og 60 pró­sent af sölu­verði lóða fyrir íbúðir sem hugs­aðar eru fyrir 55 ára og eldri. Að öðru leyti mun allur bygg­inga­réttur ásamt til­heyr­andi lóða­rétt­indum til­heyra Blika­staða­landi ehf., sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu Arion banka.

[adspot]

Gömlu húsin á Blika­staða­býl­inu munu áfram standa þar og mun Blika­staða­land ehf. ann­ast stand­setn­ingu þeirra eins og mögu­legt er „til hags­bóta fyrir íbúa svæð­is­ins og Mos­fells­bæjar.“

Í samn­ingnum er kveðið á um Mos­fells­bær muni eign­ast allt landið end­ur­gjalds­laust til eignar eftir því sem þróun svæð­is­ins miðar áfram, þar með talið grunn­eign­ar­rétt allra lóða. Einnig var samið um að Blika­staða­land ehf. muni ann­ast fram­kvæmdir við gatna­gerð, opin svæði, leik­velli, götu­lýs­ingar, hol­ræsi og vatns­lagnir í sam­starfi við bæj­ar­fé­lagið. Félagið hefur þó heim­ild til að falla ein­hliða frá þeirri skuld­bind­ingu og mun þá greiða gatna­gerð­ar­gjöld til Mos­fells­bæjar eftir skil­málum sem nánar er kveðið á um í samn­ingnum.

Í frétta­til­kynn­ingu er haft eftir Haraldi Sverris­syni bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæjar að það sé fagn­að­ar­efni að þetta mik­il­væga upp­bygg­ing­ar­verk­efni sé nú leitt til far­sælla lykta.

„Ég veit ekki til þess að stærri samn­ingur um upp­bygg­ingu íbúða­hverfis hafi verið gerður hér á landi, enda er um að ræða tíma­móta­samn­ing sem skiptir núver­andi og verð­andi Mos­fell­inga og Blika­staða­land afar miklu máli. Samn­ing­ur­inn tryggir far­sæla upp­bygg­ingu hér í Mos­fellsbæ, upp­bygg­ingu sem er til þess fallin að efla þjón­ustu og lífs­gæði Mos­fell­inga og efla sam­fé­lag okkar á alla lund. Þá verður ekki fram­hjá því litið að upp­bygg­ing á landi Blika­staða verður lyk­il­þáttur í að tryggja gott lóða­fram­boð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem mætir þeirri eft­ir­spurn eftir hús­næði sem við höfum fundið svo vel fyrir í okkar vexti síð­ustu ár. Blika­staðir eru mik­il­vægur hluti bæj­ar­ins okkar og það verður mjög ánægju­legt að sjá nýtt og skemmti­legt hverfi byggj­ast upp á þessu fal­lega landi milli fella og fjöru á næstu árum,“ er einnig haft eftir bæj­ar­stjór­anum.

Verð­mætt land sem rataði úr hluta­eigu rík­is­ins fyrir slikk

Saga Blika­staða­lands­ins er um margt áhuga­verð. Það var í eigu Íslenskra aðal­verk­taka (ÍAV) fram til árs­ins 2008 er það var selt á heila 11,8 millj­arða króna, til félags sem síðar fór á haus­inn með þeim afleið­ingum að landið rataði í eigu Arion banka.

Ein­ungis fimm árum áður en ÍAV seldi land­ið, eða árið 2003, höfðu helstu stjórn­endur ÍAV keypt 40 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í ÍAV á ein­ungis tæpa tvo millj­arða króna.

Eig­endur ÍAV greiddu rík­inu þannig ein­ungis einn sjötta hluta af sölu­verði einnar af helstu eignum fyr­ir­tæk­is­ins þegar þeir keyptu um 40 pró­sent hlut í því fimm árum áður. Morg­un­blaðið sagði frá þessu árið 2009.

Í dóms­máli sem var höfðað vegna útboðs rík­is­ins vegna sölu ÍAV, sem fór alla leið upp í Hæsta­rétt þar sem einka­væð­ing­ar­ferli félags­ins var dæmt ólög­mætt, sök­uðu stefn­endur eig­endur ÍAV um að hafa vís­vit­andi van­metið virði Blika­staða­lands­ins.

Sam­kvæmt því sem kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins létu eig­endur ÍAV end­ur­meta Blika­staða­landið eftir að þeir keyptu hlut rík­is­ins og var það þá metið á um þrjá millj­arða króna. Í kjöl­farið greiddu nýju eig­end­urnir sér 2,3 millj­arða króna í upp­safn­aðan arð. Sú arð­greiðsla var þannig hærri en upp­hæðin sem þeir greiddu fyrir allan hlut rík­is­ins ári áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár