Þó það sé ef til vill framtíðarmúsík að Borgarlína aki um land Blikastaða er búið að vinna mikla skipulagsvinnu. Landeigendur vilja fá að vita hvernig þeir eigi að hanna göturnar undir sérrými Borgarlínunnar.
Þó það sé ef til vill fram­tíð­ar­músík að Borg­ar­lína aki um land Blika­staða er búið að vinna mikla skipu­lags­vinnu. Land­eig­endur vilja fá að vita hvernig þeir eigi að hanna göt­urnar undir sér­rými Borg­ar­lín­unnar. Mynd: Teikning úr skipulagstillögu Arkís fyrir Reiti.

Blikastaðaland á teikniborðinu með borgarlínuleið sem forsendu

Þrátt fyrir að enn sé rúmur ára­tugur í að Borg­ar­lína eigi að aka um land Blika­staða í Mos­fellsbæ hefur bær­inn kallað eftir því að verk­efna­stofa Borg­ar­línu skil­greini hvernig skuli hanna götur á fyr­ir­hug­uðum upp­bygg­ing­ar­svæðum með til­liti til Borg­ar­línu.

Verk­efna­stofa Borg­ar­línu ætlar að kapp­kosta við að skil­grein­ing á legu Borg­ar­línu um Keldur, Keldna­holt og Blika­staða­land liggi fyrir næsta vor, ásamt frum­til­lögum að gatna­s­niðum. Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem verk­efna­stofan sendi Mos­fellsbæ í októ­ber­mán­uði.

Mos­fells­bær hafði þá óskað eftir skýrum leið­bein­ingum frá verk­efna­stofu Borg­ar­línu, sem heyrir undir Vega­gerð­ina, um hvernig ætti að hanna þær götur sem Borg­ar­línan mun fara eftir í Blika­staða­landi, sem liggur á milli Graf­ar­vogs og Mos­fells­bæjar.

Meira en áratugur í að Borgarlína aki þarna um

Tilefnið að þess­ari beiðni Mos­fells­bæjar var yfir­stand­andi skipu­lags­vinna land­eig­enda sitt­hvoru megin við Korp­úlfs­staða­veg, en ekki er gert ráð fyrir því að Borg­ar­lína byrji að þjóna Mos­fell­ingum fyrr en undir lok þess tíma­bils sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem upp­bygg­ing alls borg­ar­línu­kerf­is­ins á að taka, eða eftir árið 2030.

Þrátt fyrir að langt sé í að fram­kvæmdir við þessa sjöttu og síð­ustu lotu Borg­ar­línu hefj­ist er nán­ari grein­ing á akst­ur­leið Borg­ar­línu um Blika­staða­land, Keldna­holt og Keldur sam­kvæmt minn­is­blað­inu þó komin á dag­skrá í tengslum við þessa skipu­lags­vinnu í Mos­fellsbæ og athug­anir Betri sam­gangna ohf. á þróun Keldna­lands­ins.

„Í dag eru þetta óbyggð svæði og þó svo að dregnar hafa verið fram ákveðnar tengi­brautir má búast við að lega þeirra kunni að taka ein­hverjum breyt­ingum þegar skipu­lags­vinna og hönnun byggðar fer af stað. Það þarf einkum að huga að útfærslum sem hafa jákvæð­ust áhrif á akst­urs­tíma Borg­ar­lín­unnar til Mos­fells­bæjar þar sem við­bót­ar­stopp með nýrri byggð munu lengja ferða­tím­ann,“ segir í minn­is­blað­inu frá verk­efna­stof­unni.

Þar segir einnig að mik­il­vægt sé að góð sam­vinna verði um þetta á milli allra aðila, verk­efna­stofu Borg­ar­línu, land­eig­anda og svo sveit­ar­fé­lag­anna sem fara með skipu­lags­valdið. Sér­stakur verk­efna­stjóri verður skip­aður á verk­efna­stofu Borg­ar­línu sem á að kapp­kosta við að tryggja góða sam­ræm­ingu á milli ólíkra skipu­lags­reita og á milli sveit­ar­fé­laga.

Fari bak við Korputorgið

Í minn­is­blað­inu til Mos­fells­bæjar er ann­ars vísað til þeirrar vinnu sem fór fram fyrir nokkrum árum á vett­vangi sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, varð­andi grein­ingu á bestu legu Borg­ar­línu.

Þar er lega borg­ar­línu­leið­ar­innar sem tengja mun Reykja­vík og Mos­fellsbæ teiknuð upp í gegnum Keldur, Keldna­holtið og svo sem leið liggur um veg­inn sem er við bak­hlið iðn­aðar- og versl­un­ar­kjarn­ans Korpu­torgs.

Þaðan er svo stefnan sett á beina línu yfir Blika­staða­landið og inn í núver­andi þétt­býli Mos­fells­bæjar í grennd við Lága­fells­laug, en gert er ráð fyrir borg­ar­línu­stöð þar í þeim áætl­unum sem þegar hafa verið settar fram um þessa lotu Borg­ar­lín­unnar.

Skipulagning landsins í fullum gangi

Blika­staða­landið skipt­ist í tvennt og eru þró­un­ar­að­ilar beggja vegna Korp­úlfs­staða­vegar að vinna að hug­myndum sínum um upp­bygg­ingu atvinnu­hús­næð­iskjarna ann­ars vegar og íbúða­byggðar hins­vegar, í sam­vinnu við bæj­ar­yf­ir­völd í Mos­fellsbæ.

Sá hluti lands­ins sem liggur vestan Korp­úlfs­staða­vegar er í eigu fast­eigna­fé­lags­ins Reita, sem ætlar sér að byggja upp atvinnu­kjarna á svæð­inu og hefur kynnt skipu­lags­hug­myndir sínar á sér­stökum vef.

Gula brotalínan sýnir hér mögulega legu Borgarlínuleiðar um land Blikastaða. Skyggða svæðið á myndinni markar svæðið þar sem Reitir eru að skipuleggja.
Gula brota­línan sýnir hér mögu­lega legu Borg­ar­línu­leiðar um land Blika­staða. Skyggða svæðið á mynd­inni markar svæðið þar sem Reitir eru að skipu­leggja.

Þar er því lýst hvernig Borg­ar­línan komi til með að marka miðju atvinnu­hverf­is­ins og í skipu­lags­til­lögu, sem unnin var af Arkís, er gert ráð fyrir því að aðal­gatan í þessu nýja atvinnu­hverfi verði ein­ungis ætluð undir umferð borg­ar­línu­vagna og svo gang­andi og hjólandi, á meðan að bíla­um­ferð verði ýtt út í jaðar hverf­is­ins.

Hinn helm­ingur lands­ins er svo í eigu fast­eigna­þró­un­ar­fé­lags sem heitir Landey, en það félag ætlar sér að skipu­leggja íbúða­byggð á 95 hekt­ara svæði sem liggur nær Mos­fellsbæ.

Fjallað var um áform félags­ins í bæj­ar­blað­inu Mos­fell­ingi í fyrra og sagði frá því þar að full­trúar Land­eyjar hefðu kynnt fyrstu hug­myndir sínar fyrir bæj­ar­full­trúum og óskað eftir því að hefja í sam­ein­ingu vinnu með sveit­ar­fé­lag­inu að þró­unar-, skipu­lags og upp­bygg­ing­ar­vinnu.

Í beiðni frá fast­eigna­þró­un­ar­fé­lag­inu sem tekin var fyrir í bæj­ar­ráði á snemm­sum­ars í fyrra sagði að mikil tæki­færi fælust í upp­bygg­ingu „mann­vænnar og sjálf­bærrar byggðar á Blika­staða­landi sem yrði í takti við inn­leið­ingu á borg­ar­línu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Í Mos­fell­ingi var haft eftir bæj­ar­stjór­anum Haraldi Sverris­syni að Borg­ar­lína væri for­senda fyrir byggð­inni í Blika­staða­land­inu. „Þetta er auð­vitað lang­tíma­verk­efni og upp­bygg­ingin myndi eiga sér stað næsta ald­ar­fjórð­ung­inn og þá í takti við upp­bygg­ingu Borg­ar­línu sem er í raun for­senda fyrir bæði byggð­inni og því að Borg­ar­lína liggi að miðbæ Mos­fells­bæjar,“ sagði bæj­ar­stjór­inn.

Verðmætt land sem rataði úr hlutaeigu ríkisins fyrir slikk

Saga Blika­staða­lands­ins er um margt áhuga­verð. Það var í eigu Íslenskra aðal­verk­taka (ÍAV) fram til árs­ins 2008 er það var selt á heila 11,8 millj­arða króna, til félags sem síðar fór á haus­inn með þeim afleið­ingum að landið rataði í eigu Arion banka.

Einungis fimm árum áður en ÍAV seldi landið, eða árið 2003, höfðu helstu stjórn­endur ÍAV keypt 40 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í ÍAV á ein­ungis tæpa tvo millj­arða króna.

Eigendur ÍAV greiddu rík­inu þannig ein­ungis einn sjötta hluta af sölu­verði einnar af helstu eignum fyr­ir­tæk­is­ins þegar þeir keyptu um 40 pró­sent hlut í því fimm árum áður. Morg­un­blaðið sagði frá þessu árið 2009.

Í dóms­máli sem var höfðað vegna útboðs rík­is­ins vegna sölu ÍAV, sem fór alla leið upp í Hæsta­rétt þar sem einka­væð­ing­ar­ferli félags­ins var dæmt ólög­mætt, sök­uðu stefn­endur eig­endur ÍAV um að hafa vís­vit­andi van­metið virði Blika­staða­lands­ins.

Samkvæmt því sem kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins létu eig­endur ÍAV end­ur­meta Blika­staða­landið eftir að þeir keyptu hlut rík­is­ins og var það þá metið á um þrjá millj­arða króna. Í kjöl­farið greiddu nýju eig­end­urnir sér 2,3 millj­arða króna í upp­safn­aðan arð. Sú arð­greiðsla var þannig hærri en upp­hæðin sem þeir greiddu fyrir allan hlut rík­is­ins ári áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár