Nefndarmenn í endurupptökunefnd víkja sæti í máli Ólafs Ólafssonar

Tveir aðal­menn og einn vara­maður í end­ur­upp­töku­nefnd hafa vikið sæti vegna van­hæfis í máli sem Ólafur Ólafsson, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Al Thani-mál­inu, lagði fyrir nefnd­ina í síð­asta mán­uði. Á meðal þeirra sem vikið hafa sæti er Björn L. Bergsson, for­maður nefnd­ar­innar. Auk hans hafa vikið Þórdís Inga­dóttir og Sigurður Tómas Magn­ús­son, vara­mður Þórdísar í nefnd­inni. Lögmaður Ólafs hefur einnig farið fram á að Krist­björg Steph­en­sen, borg­ar­lög­maður og vara­maður Björns í nefnd­inni, víki sæti. Frá þessu er greint í Við­skipta­blað­inu í dag.

Þar segir að nefnd­ar­menn­irnir víki allir sæti vegna tengsla. Björn vegna þess að hann var settur rík­is­sak­sókn­ari í málum sér­staks sak­sókn­ara á tæp­lega eins og hálfs árs tíma­bili, Þórdís vegna þess að hún er per­sónu­legur vinur Björns Þor­valds­sonar, sak­sókn­ara í Al Thani-mál­inu, og Sigurður Tómas vegna þess að hann hefur starfað sem ráð­gjafi fyrir sér­stakan sakókn­ara frá árinu 2009. Lögmaður Ólafs telur Krist­björgu auk þess van­hæfa vegna þess að hún er vin­kona Bjargar Thoraren­sen, eig­in­konu Markúsar Sig­ur­björns­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara, sem var einn dóm­ar­anna í Al Thani-mál­inu. Enn á eftir að skipa nýjan nefnd­ar­mann í stað Þórdísar og Sigurðar Tómasar og í kjöl­farið verður mögu­legt van­hæfi Krist­bjargar tekið til umfjöll­unar í end­ur­upp­töku­nefnd.

Rangur Óli


Ólafur Ólafsson, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða fyrr á þessu ári fyrir mark­aðs­mis­notkun, óskaði eftir því um miðjan maí við end­ur­upp­töku­nefnd að málið verði tekið til með­ferðar og dóms­upp­sögu að nýju hvað hann varðar. Helsta ástæðan fyrir beiðn­inni er sú að í dómi Hæsta­réttar voru sönn­un­ar­gögn í mál­inu rang­lega metin, að mati Ólafs. Í til­kynn­ingu sem Þórólfur Jónsson, lög­maður Ólafs, sendi frá sér af þessu til­efni segir að þetta atriði hafi haft veiga­mikil áhrif á nið­ur­stöðu dóms­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Að mati Ólafs lagði Hæsti­réttur rangt mat á sím­tal tveggja manna, þar sem annar vísar til sam­tals við ótil­greindan mann sem kall­aður var „Óli“, um til­tekna þætti við­skipt­anna sem málið tók til. Í vitn­is­burðum fyrir hér­aðs­dómi og öðrum sönn­un­ar­gögnum máls­ins kemur skýrt fram að þarna var átt við Ólaf Arin­björn Sig­urðs­son lög­mann. Þrátt fyrir þessa stað­reynd telur Hæsti­réttur að vísað hafi verið til Ólafs Ólafs­sonar.

Um grund­vall­ar­at­riði er að ræða. Af umræddu sím­tali er sú ranga ályktun dregin að Ólafur Ólafsson hafi verið upp­lýstur um til­tekna þætti við­skipt­anna, þrátt fyrir að fyr­ir­liggj­andi gögn sýni annað. Ekkert annað í mál­inu sýnir fram á meinta vit­neskju Ólafs um þessi atriði. Þessi ranga for­senda er horn­steinn­inn að sak­fell­ingu Ólafs í dómi Hæsta­réttar sem telur að á grunni sím­tals­ins sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa að Ólafur Ólafsson skyldi njóta arðs til jafns við Al Thani.

Verj­endur höfðu ekki tæki­færi til þess að leið­rétta þessi mis­tök Hæsta­réttar því sím­talið var ekki tekið til efn­is­legrar með­ferðar í mál­flutn­ingnum, fyr­ir­liggj­andi gögn bentu ekki til þess að vafi ríkti um þetta atriði og ekk­ert gaf til kynna að dóm­ar­arnir skildu efni sím­tals­ins með öðrum hætti en hér­aðs­dómur, ákæru­vald, verj­endur og ákærðu.

Það er grund­vall­ar­at­riði þegar ein­stak­lingur er dæmdur í fang­elsi að það sé gert á réttum for­sendum og for­svar­an­legu mati á gögnum máls­ins. Það var ekki raunin í þessu máli, a.m.k. hvað þetta varðar, og er því beiðst end­ur­upp­töku máls­ins.“

Eiginkonan skrifaði grein


End­ur­upp­töku­beiðnin hefur átt sér nokkurn aðdrag­anda. Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í byrjun apríl þar sem hún sagði að eig­in­maður sinn hafi verið dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða á grund­velli mis­skiln­ings.

Í grein­inni segir að í upp­hafs­for­sendur dóms­ins vísi Hæstiréttir til sím­tals í gögnum máls­ins þar sem ítrekað komi fram að rætt hafi verið við „Óla“ um nákvæma útfærslu við­skipt­anna. „Hæsti­réttur fer manna­villt í rök­stuðn­ingi sínum og ályktar að hér sé átt við eig­in­mann minn, Ólaf Ólafsson, en hið rétta er að um er að ræða lög­fræð­ing með sama for­nafni sem er sér­fræð­ingur í lögum um kaup­hall­ar­við­skipti,“ segir Ingi­björg í grein sinni. Hún full­yrðir að bæði ákæru­valdið og hér­aðs­dómur hafi áttað sig á því að umrætt sím­tal var ekki við Ólaf, eig­in­mann hennar.

Ingi­björg telur þennan mis­skiln­ing vera grafal­var­legan þar sem Hæsti­réttur dragi, að hennar mati, mjög víð­tækar álykt­anir af sam­tal­inu strax í upp­hafi dóms síns.

Misskilningur að um misskilning sé að ræða


Björn Þor­valds­son, sem sótti Al Thani-málið fyrir hönd emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, sagði það hins vegar mis­skiln­ing hjá Ingi­björgu að eig­in­maður hennar hafi verið dæmdur í fang­elsi á grund­velli mis­skiln­ings.

Það sé alveg skýrt að í því sím­tali þar sem rætt hafi verið um „Óla“ sem Hæsti­réttur fjallar um sé verið að ræða Ólaf Ólafsson, ekki lög­fræð­ing með sama for­nafni sem sé sér­fræð­ingur í kaup­hall­ar­við­skiptum. „Ég held að þetta sé mis­skiln­ingur hjá henni. Hún vitnar þarna í sím­tal sem á sér stað og getið er í dómnum. Bæði í ljósi þess sem fram kemur í sím­tal­inu og sam­heng­is­ins þá er í fyrsta lagi alveg klárt mál að það er verið að tala um Ólaf Ólafsson í þessu sím­tali. Í öðru lagi, sem kemur í ljós fyrir öllum sem lesa dóm­inn, þá eru fullt af öðrum gögnum, tölvu­póstar og fram­burðir og annað, sem benda til aðkomu Ólafs. Þannig að ef þessu sím­tali yrði kippt út yrði hann sak­felldur eftir sem áður,“ sagði Björn í sam­tali við Kjarnann í apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár