Ingibjörg kaupir í Högum fyrir 600 milljónir

Félag í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, eig­in­konu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og langstærsta hlut­hafa fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, hefur keypt tæp­lega eitt pró­sent hlut í Högum, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins á um 600 millj­ónir króna. Kaupin fóru fram í gegnum félagið SM Invest­ments, en eini hlut­hafi þess er annað félag á vegum Ingi­bjargar. Frá þessu er greint íDV í dag.

Krúnu­djásnin í Högum eru ann­ars vegar Bónus-keðjan og hins vegar Hagkaup. Jón Ásgeir og fjöl­skylda hans stofn­uðu Bónus á sínum tíma og faðir Ingi­bjargar stofn­aði Hagkaup. Fyr­ir­tækin tvö runnu svo saman á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Fyrir banka­hrun voru Hagar í eigu Baugs, sem aftur var í eigu fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums. Það félag var í eigu Jóns Ásgeirs og fjöl­skyldu. Baugs­sam­stæðan var ein sú skuld­settasta á Íslandi þegar hrunið reið yfir haustið 2008. Þann 11. mars 2009, nítján árum og ell­efu mán­uðum eftir opnun fyrstu Bón­usversl­un­ar­innar, synj­aði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Baugi um áfram­hald­andi greiðslu­stöðvun og í kjöl­farið var óskað eftir því að félagið yrði tekið til gjald­þrota­skipta. Við gjald­þrot Baugs tap­að­ist stærsti hluti veld­is­ins sem þeir feðgar, Jón Ásgeir og Jóhannes Jónsson faðir hans, höfðu byggt upp. Högum, sem héldu á inn­lendum versl­un­ar­rekstri fjöl­skyld­unnar, hafði reyndar verið skotið út úr Baugi sum­arið 2008 og fyr­ir­tækið fært inn í Gaum.

Á end­anum yfir­tók Arion banki fyr­ir­tækið og seldi nýjum eig­endum. Hagar urðu svo fyrsta fyr­ir­tækið sem skráð var á markað á Íslandi eftir banka­hrunið. Í dag er það að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem eiga um helm­ing hluta­fjár. Hagar keyptu nýverið lyfja­sölu­fyr­ir­tækið Lyfju af íslenska rík­inu á 6,7 millj­arða króna.

Í DV í dag kemur fram að eini stjórn­ar­maður SM Invest­ments sé Jón Skafta­son. Hann er nán­asti sam­starfs­maður Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og starfar fyrir fjár­fest­inga­fé­lagið South Molton Capital, sem áður hét Guru Capital. Það félag kom fyrir í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu, en Kjarninn greindi frá því í aprílað félagið Guru Invest S.A. sem skráð er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, og er með heim­il­is­festi í Panama, hafi fjár­magnað fjölda­mörg verk­efni í Bret­landi og á Íslandi eftir hrun. Jón Ásgeir var skráður með pró­kúru í félag­inu og teng­ist mörgum verk­efn­anna sem það hefur fjár­magnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár