Kemur í ljós í haust hvort ríkið ætli að setja meira fé í reksturinn

Bæði Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Strætó segja að ríkið þurfi að stíga inn í fjár­mögnun rekstrar almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu af auknum þunga. Ráð­herrar í rík­is­stjórn hafa ekki verið á þeim bux­unum, en við­ræður standa þó yfir um nákvæm­lega þetta. Í haust má búast við nið­ur­stöðu.

Almenningssamgöngur
Almenn­ings­sam­göngur Regína Ásvalds­dóttir for­maður stjórnar SSH og bæj­ar­stjóri í Mos­fellsbæ, Páll Björgvin Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri SSH, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Heimildin Tómas

Samn­inga­við­ræður hafa staðið yfir und­an­farin miss­eri um það hvernig fjár­magna skuli rekstur almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til fram­tíðar. Við samn­inga­borðið sitja full­trúar Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) og rík­is­ins. Lítið hefur heyrst af gangi þess­ara við­ræðna, en nið­ur­staðan ætti að liggja fyrir núna með haustinu. 

Af hálfu SSH hefur um nokk­urt skeið verið skýrt að það þurfi aukið fram­lag frá rík­inu til rekst­urs almenn­ings­sam­gangna á þétt­býlasta svæði lands­ins, en af hálfu full­trúa rík­is­ins hefur tónn­inn verið allt annar. 

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra voru í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins ein­huga um að engin áform væru uppi um aukna aðkomu rík­is­ins að rekstri almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem bæði SSH og Strætó bs. höfðu þá kallað eftir í umsögnum við svo­kalla Grænbók um sam­göngu­mál.

Í drögum að sam­göngu­á­ætlun, sem hefur legið frammi til kynn­ingar í sumar, er ekki gert ráð fyrir öðru en að fram­lög rík­is­ins til …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár