Flugslysið: Leit hafin á ný og byrjað að nafngreina hin látnu

Flugriti þýsku þot­unnar sem hrap­aði í frönsku ölp­unum í gær er skemmdur og þarfn­ast við­gerða áður en hægt verður að hlusta á upp­töku úr flug­stjórn­ar­klefa vél­ar­innar. Þetta sagði inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, Bernard Cazeneuve, við fjöl­miðla í morgun. Hinn flug­riti vél­ar­innar er enn ófund­inn.

Cazeneuve sagði einnig að litlar líkur væru á því að um hryðju­verk hefði verið að ræða, þótt ekk­ert hefði enn verið úti­lokað. Sak­sókn­ara­emb­ættið í Marseille fer með rann­sókn á til­drögum slyss­ins, þar sem 150 lét­ust, en yfir­völd í Frakk­landi, á Spáni og í Þýska­landi munu koma að málum.

Ein­hverjir flug­menn hjá flug­fé­lag­inu Germanswings neit­uðu að fljúga í morgun vegna slyss­ins. Minnst einu flugi þurfti að aflýsa vegna þess en Germanwings gefur ekki upp fjölda þeirra flug­manna sem vildu ekki fljúga. Tals­maður stétt­ar­fé­lags flug­manna sagði við AFP í morgun að það væri ekki vegna örygg­is­mála sem flug­menn­irnir hefðu ekki mætt til vinnu, heldur hafi það verið af per­sónu­legum ástæðum. Sex starfs­menn Germanwings lét­ust í slys­inu og margir hafi verið í of miklu áfalli til að ráð­legt væri að fljúga.

Leit er hafin á nýjan leik á svæð­inu þar sem vélin fórst. Yfir 300 lög­reglu­menn og 380 slökkvi­liðs­menn munu leita að lík­ams­leifum og vís­bend­ingum við erf­iðar aðstæður. Það rigndi bæði og snjó­aði á svæð­inu í nótt sem gerir aðstæður enn erf­ið­ari. Talið er að það geti tekið marga daga og jafn­vel vikur að ljúka leit á svæð­inu.

Ætt­ingjar hinna látnu eru að tín­ast til þorps­ins Seyne-les-Alpes, sem er mið­stöð aðgerða, og þangað munu leið­togar Frakk­lands, Þýska­lands og Spánar einnig koma í dag og munu hitta ætt­ingj­ana. Íbúar Seyne-les-Alpes munu hýsa ein­hverja þeirra sem komnir eru til þorps­ins þar sem skortur er á gisti­rými. Þá eru um 30 sál­fræð­ingar komnir í þorpið til að taka á móti ætt­ingj­unum.

Nýjustu upp­lýs­ingar herma að minnst þrír Bretar hafi verið um borð í vél­inni. Í gær var komið í ljós að 67 Þjóð­verjar hefðu verið um borð, þar á meðal sextán ung­menni á leið heim úr skóla­ferð. 45 Spán­verjar voru um borð og spænskir fjöl­miðlar höfðu nafn­greint nokkra þeirra í morgun. Þá voru áströlsk mæðgin um borð og tveir Kól­umbíu­menn. Þrír voru frá Kasakstan, tveir frá Argent­ínu, þrír frá Mexíkó og einn frá Ísrael. Tveir voru Japanir, einn var Tyrki, einn Belgi og einn var Hol­lend­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár