Sigurvegarar og taparar í vel heppnuðu prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Reykjavík

Konur verða í stórum hlut­verkum hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Reykja­vík í kom­andi kosn­ingum. Frjáls­lynd­ari fram­bjóð­endum gekk betur en íhaldsam­ari og ef eitt er öruggt í líf­inu þá er það að Birgir Ármanns­son lendir í sjötta sæti.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson eru oddvitar Sjálfstæðisflokks í Reykjavík.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son eru odd­vitar Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík. Mynd: Kjarninn/Samsett

Prófkjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík um helg­ina skil­aði mörgum eft­ir­tekt­ar­verðum nið­ur­stöðum. Þátttaka í próf­kjör­inu var til að mynda mun betri en hún var árið 2016, þegar síð­ast var ráð­ist í próf­kjör hjá flokknum í Reykja­vík. Nú greiddu 7.493 manns atkvæði en þeir voru ein­ungis 3.430 árið 2016. Þátt­takan í ár var nán­ast sú sama og í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna 2013.

Tveir stjórn­mála­menn sem sækj­ast eftir því að verða fram­tíð­ar­leið­togar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins tók­ust á og komust báðir vel frá próf­kjör­inu. Þá röð­uðu konur sér í þrjú af þeim fjórum sætum sem telja má sem örugg þing­sæti. Ekki bara konur, heldur ungar konur, en elsta konan sem var á meðal efstu átta í próf­kjör­inu er fædd 1978 á meðan að yngsti karl­inn á meðal efstu átta er fæddur 1970.

Þeim fram­bjóð­endum sem hafa staðið fyrir nýfrjáls­hyggju­á­herslum í efna­hags­málum, stjórn­ar­and­stöðu í sótt­varn­ar­málum og tekið þátt virkan þátt í menn­ing­ar­stríði við ætl­aðan auk­inn rétt­trúnað í sam­fé­lag­inu var hafnað í próf­kjör­inu.

Nú er fjórum af sex próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins lokið og nið­ur­staðan úr þeim er heilt yfir allt önnur en 2016, þegar próf­kjör fór fram síð­ast. Þá var konum, sér­stak­lega reynslu­miklum konum sem höfðu verið á þingi og jafn­vel ráð­herrar, hafnað í unn­vörpum. Einungis tvær konur á lista flokks­ins í kosn­ing­unum 2016 voru í sætum á lista sem öruggt var að skila myndi þeim inn á þing. Í þeim fjórum kjör­dæmum þar sem próf­kjörum er lokið eru að minnsta kosti fjórar konur, mögu­lega fimm, nokkuð öruggar inn. Þeim mun vænt­an­lega fjölga um að minnsta kosti tvær þegar Suð­verst­ur­kjör­dæmi og Norð­vest­ur­kjör­dæmi skila sínum próf­kjör­snið­ur­stöðum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að ganga í gegnum umtals­verða end­ur­nýjun.

Sigurvegararnir

Sá fram­bjóð­andi sem kom lík­ast til mest á óvart í próf­kjör­inu í Reykja­vík var Hildur Sverr­is­dóttir. Hún tók líka þátt í próf­kjöri 2016 og lenti þá í sjö­unda sæti. Nú sótt­ist Hildur eftir þriðja til fjórða sæt­inu.

[adspot]Fáir sáu það fyrir að hún myndi ná þannig árangri í próf­kjör­inu að hún myndi klifra yfir þrjá sitj­andi þing­menn og tryggja sér öruggt þing­sæti. En það gerði hún nokkuð örugg­lega og verður í öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks, lík­lega í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður á eftir Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur. Þær til­heyrðu sömu fylk­ingu í próf­kjör­inu.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sigr­aði í próf­kjör­inu þótt það hafi ein­ungis verið með 182 atkvæðum. Hann sótt­ist eftir því að verða leið­togi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og náði því mark­miði.

Guð­laugur Þór sigr­aði Björn Bjarna­son í eft­ir­minni­legri bar­áttu um annað sætið í próf­kjöri flokks­ins árið 2006 og leiddi lista flokks­ins í REykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í þing­kosn­ingum árið eftir. Í kosn­ing­unum 2009 var hann odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í REykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­urs en vegna útstrik­anna á honum féll hann niður um eitt sæti á list­anum og varð annar þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu. Ástæðan var aðal­lega rakin til styrkja­hneyksl­is­ins svo­kall­aða. Guð­laugur Þór náði sér þó á strik og varð aftur í öðru sæti á eftir Ólöfu Nordal í próf­kjöri 2016, sem var það síð­asta sem flokk­ur­inn hefur haldið. Guð­laugur Þór er tal­inn hafa metnað til að verða næsti for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nið­ur­staðan um helg­ina styrkir hann í þeirri veg­ferð, þar sem sýni­leg­ustu mótherj­arnir eru Áslaug Arna og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður flokks­ins. Bjarni Bene­dikts­son hefur verið for­maður í meira en ell­efu ár og leitt flokk­inn í gegnum fjórar af fimm verstu kosn­ingar hans í sög­unni. Fari illa í haust, og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nær ekki inn í rík­is­stjórn, búast margir við því að for­manns­skipti gætu orðið í kjöl­farið.

Diljá Mist Ein­ars­dóttir, aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, vann líka mik­inn sigur. Hún er nýliði í próf­kjöri og náði þriðja sæt­inu með afger­andi hætti, sem þýðir að óbreyttu öruggt þing­sæti fyrir hana. Diljá rak afar umfangs­mikla próf­kjörs­bar­áttu sem hófst með opnu­aug­lýs­ingum í dag­blöðum og var fylgt eftir með miklum úthring­ingum, í sam­starfi við Guðlaug Þór.

Þá er ótal­inn Kjartan Magn­ús­son. Hann var borg­ar­full­trúi í tæp 19 ár en var hafnað með afger­andi hætti í leið­toga­kjöri fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, þar sem hann fékk ein­ungis 480 atkvæði, eða rúm ell­efu pró­sent. Kjör­nefnd hafn­aði því svo að setja hann á lista.

Kjartan bauð sig fram í próf­kjör­inu og fæstir áttu von á miklum árangri hans. Kjartan fékk hins vegar alls 3.777 atkvæði sem skil­aði honum í sjö­unda sætið. Í ljósi þess að Brynjar Níelsson ætlar ekki að þiggja sitt sæti að óbreyttu má ætla að Kjartan fær­ist þar með upp í sjötta sætið, sem er bar­áttu­sæti. Kjartani Magn­ús­syni gæti því skolað inn á þing.

Þau sem töpuðu

Sá sem tap­aði verst var Sigríður Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í síð­ustu kosn­ingum. Hún hóf kjör­tíma­bilið sem ráð­herra en þurfti að segja af sér vegna Lands­rétt­ar­máls­ins vorið 2019. Sigríður rak svo harða and­stöðu við sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda síð­ustu mán­uði. Þessar tvær breytur, Lands­rétt­ar­málið og fram­ganga Sigríðar í umræð­unni um sótt­varn­ar­á­herslur stjórn­valda, eru taldar hafa ráðið úrslitum um slakt gengi hennar, en hún var ekki á meðal níu efstu í próf­kjör­inu.

Brynjar Níelsson sótt­ist eftir því að verða odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Hann hefði getað verið slíkur í kosn­ing­unum árið 2017, eftir frá­fall Ólafar Nordal, en ákvað að skipta um sæti við Sigríði Andersen og verða í öðru sæti á list­anum. Brynjar er afar umdeildur þing­maður og her­skár. Hann hefur náð meiri lagni á því að nýta sam­fé­lags­miðla til að tala við stuðn­ings­menn sína, og espa upp and­stæð­inga, en flestir aðrir og hefur ekki vílað fyrir sér að gagn­rýna menn per­sónu­lega með afger­andi hætti. Hann var ásamt Sigríði í for­grunni í því að gagn­rýna ýmsar sótt­varn­ar­ráð­staf­anir og und­an­farin miss­eri hefur Brynjar komið útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja, sem er til rann­sóknar vegna meintra mútu­greiðslna, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvættis, til varnar með ýmsum hætti. Í maí sagði hann til að mynda að hann sæi ekk­ert athuga­vert við aðgerðir svo­kall­aðrar „skæru­liða­deildar“ Samherja sem Kjarninn og Stundin höfðu greint frá nokkrum dögum áður, og sagði frétta­flutn­ingin ekki eiga neitt erindi til almenn­ings.

Brynjar Níelsson end­aði í fimmta sæti í próf­kjör­inu og hefði setið í bar­áttu­sæti á lista flokks­ins í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu hefði hann þegið sæti á lista. Það ætlar hann ekki að gera og í stöðu­upp­færslu á Facebook á sunnu­dag sagði Brynjar að úrslitin væru „tals­verð von­brigði fyrir mig en skila­boðin eru skýr. Ég trúi því að Sjálftæð­is­flokknum muni vegna vel í kom­andi kosn­ingum. Ég kveð því stjórn­málin sáttur.”

Þá er ljóst að Ingi­björg H. Sverr­is­dótt­ir, for­maður Fé­lags eldri borg­ara í Reykja­vík og ná­grenni (FEB), var óra­langt frá því að ná þeim árangri sem hún stefndi að, sem var fjórða til fimmta sæti, en hún ætl­aði sér að verða rödd eldri borg­ara á fram­boðs­list­anum. Ingi­björg varð ekki á meðal tíu efstu hið minnsta.

Þótt sjálf­stæð­is­menn hafi ekki viljað veita Sigríði og Brynjari það braut­ar­gengi sem þau sótt­ust eftir þá sjá margir utan flokks eftir þeim úr stjórn­mál­unum. Einn þeirra er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Hann birti stöðu­upp­færslu á Facebook í gær þar sem stóð: „Það verður mik­ill sjón­ar­sviptir að Sigríði Andersen og Brynjari Níels­syni á Alþingi.

Maður þurfti ekki að vera sam­mála þeim um allt til að sjá að þau væru alvöru prinsipp­fólk. Sam­fylk­ing­ar­væð­ing allra stjórn­mála­flokka, nema eins, heldur áfram.“

Þau sem geta vel við unað

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra getur verið sátt með árang­ur­inn í próf­kjör­inu. Hún er þrí­tug og hefur tekið stór skref á sínum stjórn­mála­ferli á þessu kjör­tíma­bili, þegar hún stýrði fyrst utan­rík­is­mála­nefnd og tók svo við ráðu­neyti þegar Sigríður sagði af sér. Nú er hún orðin odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður.

Þrátt fyrir að Áslaug Arna hafi ekki náð mark­miði sínu um að verða leið­togi Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík þá fékk hún mik­inn stuðn­ing og tap­aði fyrir Guðlaugi Þór, sem er með vel smurða kosn­inga­vél í Reykja­vík sem hefur verið í upp­bygg­ingu og við­haldi ára­tugum saman, með ein­ungis 182 atkvæðum. Áslaug Arna er því í mjög góðri stöðu til að gera áfram­hald­andi til­kall til ráð­herra­emb­ættis kom­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í rík­is­stjórn og til að blanda sér í næsta for­manns­slag í flokknum, hvenær sem hann á end­anum verður. Þrátt fyrir tap í próf­kjör­inu styrkti hún stöðu sína sem stjórn­mála­leið­togi.

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, getur líka vel við unað, þótt hann hafi sóst eftir öðru eða þriðja sæti. Fyrir lá að sú krafa var aldrei raun­hæf.

Hann hefur gert sjötta sætið að sínu – Birgir lenti í því sæti í próf­kjörum 2013 og 2016 líka – sem þýðir að Birgir verður, enn og aftur, í bar­áttu­sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í kom­andi kosn­ingum. Það er kunn­ug­leg staða. Í fjórða sinn í fjórum kosn­ingum mun Birgir Ármanns­son fara inn í kosn­ingar með þann mögu­leika hang­andi yfir sér að hann verði inn og út alla kosn­inga­nótt­ina.

Þá getur Friðjón R. Frið­jóns­son almanna­tengil verið ágæt­lega sáttur. Hann lenti í átt­unda sæti í próf­kjör­inu en mun fær­ast upp eftir að Brynjar Níelsson ákvað að taka ekki sæti á lista. Friðjón verður því að óbreyttu fyrsti eða annar vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­manna í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár