Stökkvandi túnfiskar og hoppandi kátur líffræðingur

Í eina tíð voru tún­fiskar algengir við Danmörku. En fyrir hálfri öld hurfu þeir. Núna eru þeir komnir aftur sem er ein af fáum jákvæðum fréttum af sjáv­ar­líf­rík­inu við landið lengi.

Á flugi
Á flugi Tún­fiskar geta orðið mörg hund­ruð kíló en þeir synda hratt upp af tölu­verðu dýpi og ná þannig að svífa upp yfir haf­flöt­inn. Mynd: The Øresund Aquarium

Ég á bágt með að trúa því að ég sé virki­lega staddur í Danmörku,“ segir sjáv­ar­líf­fræð­ing­ur­inn Jens P. Jeppesen í sam­tali við danska rík­is­út­varpið, DR. Ástæðan er sú að annað sum­arið í röð hefur sést til tún­fiska í Eyr­ar­sundi milli Dan­merkur og Sví­þjóðar. Og í ár eru þeir fleiri en í fyrra og leika þar að því er virð­ist listir sínar, rétt eins og höfr­ungar. Þeirra helstu heim­kynni eru í Mið­jarð­ar­haf­inu og því hafa þeir komið um nokkuð langan veg.

„Ég hélt að þetta gæti ekki orðið ótrú­legra en í fyrra,“ segir Jeppesen upp­num­inn. Hann segir að sést hafi til að minnsta kosti 200 tún­fiska að stökkva upp úr sjónum síð­ustu daga. 

Nokkrar teg­undir tún­fiska eru til en þeir sem nú svamla um í Eyr­ar­sundi eru ýmist kenndir við Atl­ants­hafið eða bláan bakugg­ann sem þeir skarta. Full­vaxnir eru þeir á bil­inu 200-400 kíló en dæmi eru um allt að 700 kílóa Atl­ants­hafs-tún­fiska. Þetta eru mjög hrað­skreið dýr og því er ekki víst að ferða­lagið frá Mið­jarð­ar­haf­inu í Eyr­ar­sundið hafi tekið mjög langan tíma. Þeir geta nefni­lega synt á um 75 kíló­metra hraða á klukku­stund.

Fyrir rúm­lega hálfri öld hefði eng­inn rekið upp stór augu að sjá tún­fisk í Eyr­ar­sundi. En fyrir um 55 árum hvarf hann að mestu þaðan. 

Þekkt var að þeir syntu frá Mið­jarð­ar­haf­inu, með vest­ur­strönd Englands og inn í Skagerak og Kattegat til þess að veiða í Eyr­ar­sundi að hausti. Í byrjun vetrar, þegar þeir hafa étið nægju sína synda þeir aftur suður á bóg­inn. 

Eyr­ar­sundið er góð fæðu­lenda fyrir þá á þessum árs­tíma því þar er að finna nóg af síld, mak­ríl og öðrum smærri fiskum. Það er af því að í tugi ára hefur svæðið verið friðað fyrir tog­veiðum. 

Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að sjá þessa stór­vöxnu fiska stökkva upp úr sjónum, hvort sem er í Mið­jarð­ar­haf­inu eða ann­ars staðar. Og þótt það líti út fyrir að þeir séu að leika sér eiga þessi til­þrif sér aðrar skýr­ingar sem tengj­ast sér­stöðu Eyr­ar­sunds­ins. 

Í fyrsta lagi, rekur Jeppesen í sam­tali við DR, eru þungir straumar í Eyr­ar­sund­inu. Vegna frið­unar fyrir tog­veiðum er líf­ríkið ein­stak­lega marg­breyti­legt. Plöntu­svif dafnar og er fæða fyrir smáa fiska og hefur þannig áhrif á allt vist­kerfið. Á þessum árs­tíma er svo ógrynni af síld og mak­ríl í sund­inu eftir hrygn­ingar á leið út á dýpri mið Atl­ants­hafs­ins. Allt saman er þetta að eiga sér stað í sund­inu sem er sums staðar aðeins örfáir kíló­metrar á breidd og til verður sann­kallað veislu­borð fyrir tún­fiska.

Jens Jeppesen segir fisk­ana hrein­lega ekki þurfa að gera annað en að bíða með opinn kjaft­inn á um 10-15 metra dýpi. Stökkin má svo rekja til þess að ein eft­ir­læt­is­fæða þeirra, horn­fisk­ur­inn, syndir rétt við yfir­borðið. Þess vegna kemur tún­fisk­ur­inn á mik­illi ferð til yfir­borðs­ins til að gleypa hann í sig. 

„Svo í um 90 pró­sent til­fella sem þú sérð tún­fisk stökkva þá er hann með horn­fisk í kjaft­inum,“ segir Jeppesen.

Veiða á daginn

Tún­fiskar nota sjón­ina við veiðar og veiða því mest þegar sólin er hæst á lofti. Í Eyr­ar­sundi eru þeir oft að gæða sér á smá­fiski og stökkva hátt upp úr sjónum í aðeins um 50-100 metra frá landi.

Jeppesen brýnir fyrir löndum sínum að veiða ekki tún­fisk­ana. Þeir hafi verið ofveiddir í marga ára­tugi en vera þeirra í Eyr­ar­sundi eftir 55 ára fjar­veru kunni að vera til marks um að stofn­inn í Atl­ants­hafi sé loks far­inn að rétta úr kútnum. Einnig er ólög­legt að veiða þá á þessum slóðum. 

Að tún­fiskur sé aftur kom­inn að ströndum Dan­merkur er að sögn Jeppesen ein af fáum jákvæðum fréttum af sjáv­ar­líf­rík­inu við landið síð­ustu ár. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár