Allt um mætingu þingmanna, afstöðu og það sem þeir töluðu um

Willum Þór Þórsson mætti best allra þingmanna í atkvæðagreiðslur og tók oftast afstöðu á kjörtímabilinu.
Willum Þór Þórsson mætti best allra þing­manna í atkvæða­greiðslur og tók oft­ast afstöðu á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er með bestu mæt­ingu allra þing­manna í atkvæða­greiðslur á kjör­tíma­bil­inu, eða 98,5 pró­sent mæt­ingu. Willum Þór er meira að segja með betri mæt­ingu en Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, sem er í öðru sæti á mæt­ing­ar­list­anum. Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna, er með verstu mæt­ing­una í atkvæða­greiðslur. Hann tók ein­ungis þátt í 52,5 pró­sent þeirra á kjör­tíma­bil­inu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kemur fast á hæla hans með ein­ungis 56,7 pró­sent mæt­ingu í atkvæða­greiðslur.

Þetta er meðal þess sem kemur fram á vefnum thing­menn.is sem settur hefur verið í loftið. Um er að ræða verk­efni sem Bæring Gunnar Stein­þórs­son hefur unnið. Á vefnum geta kjós­endur, og aðrir áhuga­samir, fundið upp­lýs­ingar og töl­fræði um þing­menn og þing­flokka fyrir kjör­tíma­bilið 2013-2016. Vefurinn sækir gögn af vef Alþingis sjálf­krafa og skiptir þeim niður í tvo meg­in­flokka: atkvæða­skrár og ræður eftir þingum. Með þess­ari aðferð er hægt að vinna úr þeim og setja þau fram á hlut­lausan máta.

Ögmundur tók síst afstöðu

Willum Þór er líka sá þing­maður sem oft­ast tekur afstöðu, eða í 94,3 pró­sent þeirra mála sem hafa komið fyrir þingið til atkvæða­greiðslu á kjör­tíma­bil­inu. Það þarf kannski ekki að koma á óvart en stjórn­ar­þing­menn taka mun frekar afstöðu en stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn, enda sitj­andi rík­is­stjórn með mjög rúman meiri­hluta og í aðstöðu til að koma þeim málum sem hún er sam­mála um í gegn þrátt fyrir and­stöðu ann­arra flokka. Ögmundur Jónasson er sá þing­maður sem í lang fæst skipti tekur afstöðu, eða í 24,8 pró­sent þeirra mála sem greitt var atkvæði um. Ögmundur tók því ein­ungis afstöðu í fjórða hverju máli á kjör­tíma­bil­inu. Hann greiddi sam­tals atkvæði 650 sinnum.

Sá sem tók afstöðu í næst fæst skipti er Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann tók afstöðu í 43,3 pró­sent mála og greiddi atkvæði alls 1.350 sinnum.

Steingrímur talaði mest en Framsókn minnst

Á vefnum er líka hægt að sjá hversu miklum tíma þing­menn eyddu í ræðu­stól og um hvað þeir töl­uðu mest. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, tal­aði mest allra, eða sam­tals í 95,9 klukku­stundir. Hann tal­aði oft­ast um sveit­ar­fé­lag og fjár­mála­ráð­herra. Einungis einn stjórn­ar­liði kemst á topp tíu list­ann yfir þá sem töl­uðu mest. Það er Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem tal­aði sam­tals í 62,5 klukku­stundir á kjör­tíma­bil­inu. Bjarni tal­aði mest um rík­is­sjóð og skatta.

Sjö af þeim sem töl­uðu minnst úr ræðu­stól Alþingis á kjör­tíma­bil­inu eru Fram­sókn­ar­menn. Þórunn Egils­dóttir fer fyrir þeim hópi, en hún tal­aði ein­ungis í 4,7 klukku­stundir á þeim árum sem kjör­tíma­bilið hefur staðið yfir. Þórunn tal­aði því í fimm pró­sent af þeim tíma sem Stein­grímur tal­aði. Hún ræddi oft­ast um ein­stak­linga eða sveit­ar­fé­lög úr pontu.

Talað um heimili, sveitarfélög og þjóðina

Vefurinn býður líka upp á upp­lýs­ingar um hvað hver þing­flokkur gerði á kjör­tíma­bil­inu. Þar má til að mynda sjá að þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar mætti verst í atkvæða­greiðslur en þing­flokkur Pírata, sem telur þrjá aðila, hlut­falls­lega best. Sam­fylk­ingin mætti í 72,9 pró­sent atkvæða­greiðslna á meðan að Píratar mættu í 90,3 pró­sent þeirra.

Þar má einnig sjá hvað þing­flokk­arnir töl­uðu mest um. Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins tal­aði mest um sveit­ar­fé­lög og heim­ili. Hinn stjórn­ar­flokk­ur­inn, Sjálf­stæð­is­flokkur, tal­aði mest um sveit­ar­fé­lög og fjár­lög.

Hjá þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum var mest talað um þjóð. Þ.e. Sam­fylk­ingu, Pírötum og Bjartri fram­tíð. Vinstri grænir skáru sig úr þessum hópi og töl­uðu mest um sveit­ar­fé­lög. En næst mest um þjóð­ina.

Hægt er að sjá vef­inn hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár