Tíu manna fjöldatakmarkanir næstu vikur

Hertar sótt­varna­ráð­staf­anir taka gildi strax á mið­nætti og eiga að gilda til 17. nóv­em­ber. Einungis 10 mega koma saman, nema í útförum, mat­vöru­versl­unum, apó­tekum og almenn­ings­sam­göngum. Skólar verða áfram opnir.

Frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.
Frá blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag. Mynd: Bára Huld Beck

„Við erum alls staðar að sjá ríki grípa til hertra aðgerða,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Hörpu í dag, þar sem hertar sótt­varna­ráð­staf­anir voru kynntar.

Þær taka gildi strax á mið­nætti og munu gilda um land allt næstu vikur, eða til 17. nóv­em­ber, sam­kvæmt reglu­gerð Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, sem rædd var og sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag.

Hvað breytist?

Helstu breyt­ingar eru þær að ein­ungis 10 manns mega koma saman í stað 20 áður, aukin áhersla verður á grímunotkun, íþrótta­starf leggst alveg af og sviðs­listir sömu­leiðis.

Einungis apó­tek og mat­vöru­versl­anir eru und­an­þegnar þessum fjölda­tak­mörk­unum, en þar mega 50 manns vera innan sama rýmis og að hámarki 100 ef versl­anir eru mjög stórar. Tíu manna fjölda­tak­mark­anir gilda um aðrar versl­anir.

Sund­laugar verða áfram lok­aðar og krár og skemmti­staðir einnig og öll þjón­usta sem krefst nálægðar og hefur verið bönnuð und­an­farnar vikur er áfram bönnuð.

Veit­inga­staðir þurfa að loka dyrum sínum kl. 21 á kvöldin. Börn fædd 2015 og síðar eru þau einu sem verða und­an­þegin reglum um grímu­skyldu, fjölda­tak­mörk­unum og tveggja metra reglu.

Skólar áfram opnir – nánar útfært síðar

Skólar verða áfram opnir, en von er á nán­ari útfærslu á sér­stakri reglu­gerð um skóla­starf eftir helgi. Búast má við því að eitt­hvað rask verði á skóla­starfi, sér­stak­lega í elstu bekkjum grunn­skóla, sam­kvæmt því sem ráð­herrar sögðu á blaða­manna­fund­inum.

Farið eftir tillögum sóttvarnalæknis

Heil­brigð­is­ráð­herra sagði á blaða­manna­fund­inum í dag að ein­ungis væri vikið að einu leyti frá til­lögum Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis um hertar ráð­staf­anir – hann lagði til að 20 manns að hámarki mættu vera við­stödd útfarir en rík­is­stjórnin sam­þykkti að 30 manns mættu koma til útfara.

Katrín Jak­obs­dóttir sagði aðspurð í við­tali við RÚV eftir blaða­manna­fund­inn að full sam­staða hefði verið um aðgerð­irnar innan rík­is­stjórnar, en auk hennar og Svan­dísar voru þær Lilja Alfreðs­dóttir mennta­mála­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag.

Frekari efnahagsaðgerðir ræddar

For­sæt­is­ráð­herra sagði ljóst að þessar hertu aðgerðir myndu kalla á frek­ari efna­hags­leg við­brögð af hálfu stjórn­valda og rík­is­stjórnin hefði meðal ann­ars rætt útvíkkun tekju­falls­styrkja á fundi sínum í dag, en að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra myndi nánar fara yfir þau mál síðar í dag.

Helstu takmarkanir

  • 10 manna fjölda­tak­mörk er meg­in­regla, en þó er heim­ild fyrir 30 manns í útförum en 10 að hámarki í erfi­drykkjum. 50 manna hámarks­fjöldi í lyfja- og mat­vöru­versl­unum en reglur um auk­inn fjölda með hlið­sjón af stærð hús­næð­is­ins. Í öðrum versl­unum mega mest 10 koma saman.
  • Fjölda­tak­mark­anir gilda ekki um almenn­ings­sam­göngur, hóp­bif­reiðar, inn­an­lands­flug eða störf við­bragðs­að­ila.
  • Fjölda­tak­mark­anir gilda ekki um störf rík­is­stjórnar, rík­is­ráðs, Alþingis og dóm­stóla.
  • 10 manna fjölda­tak­mörk eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heim­ili.
  • Íþróttir óheim­ilar.
  • Sund­laugum lokað.
  • Sviðs­listir óheim­ilar.
  • Krám og skemmti­stöðum lokað.
  • Veit­inga­staðir með vín­veit­inga­leyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00.
  • Grímu­skylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægð­ar­mörk milli ein­stak­linga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Börn fædd 2015 og síðar und­an­þegin 2 metra reglu, fjölda­mörkum og grímu­skyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að ráð­herra geti veitt und­an­þágu frá tak­mörk­unum vegna félags­lega ómissandi inn­viða sem mega ekki stöðvast. Þar undir fellur m.a. heil­brigð­is­starf­semi og félags­þjón­usta. Ráðherra getur einnig veitt und­an­þágu við banni frá íþrótta­starfi fyrir ein­staka við­burði, til dæmis alþjóð­legra keppn­i­s­leikja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár