Talið er að heildarfjöldi látinna í Brussel sé kominn í 23, eftir sprengjuárásir í Brussel í morgun. Það eru þó enn óstaðfestar fréttir. Fjölmiðillinn VTM hefur sagt að tíu séu látnir eftir sprengingu á neðanjarðarlestarstöð, en VRT segir að enginn hafi látist en margir séu særðir.
Búið er að staðfesta að sprengjur sem sprungu á Zaventem flugvellinum í Brussel á háannatíma í morgun voru sjálfsmorðsárásir. Belgískir fjölmiðlar segja að allt að þrettán séu látnir og tugir alvarlega særðir eftir sprengingarnar.
Um klukkustund síðar bárust svo fregnir af því að sprengja hefði sprungið í neðanjarðarlestarstöðinni Maelbeek í borginni. Maelbeek-stöðin og hverfið eru mjög nálægt stórum byggingum Evrópusambandsins. Lestin var að fara frá Maelbeek stöðinni að Schuman stöðinni þegar sprengingin varð, að sögn fólks sem var um borð í lestinni.
Bæði flugvellinum og neðanjarðarlestarkerfinu öllu hefur verið lokað og borgin er nánast lokuð, að sögn Hallgríms Oddssonar, fréttaritara Kjarnans í Brussel.
Búið er að hækka viðbúnaðarstig í Brussel vegna árásanna. Öll söfn verða lokuð í dag og fólk er beðið um að halda sig heima við eða innan dyra ef það er í vinnu.
Öllu flugi hefur verið frestað til og frá flugvellinum í Brussel. Icelandair-flugi sem átti að fara til Brussel í morgun var aflýst og Icelandair segir að innritun í flugið til Íslands, sem átti að fara eftir hádegi í dag, hafi ekki verið hafin. Engar upplýsingar séu um að farþegar hafi verið komnir á flugvöllinn.
Hér að neðan er hægt að horfa á útsendingu Sky News frá Brussel.
Fréttin hefur verið uppfærð. Fréttir um dauðsföll eru mjög á reiki.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir