Auknar strandsiglingar „óraunhæfur og óhagkvæmur“ kostur að mati Eimskips

Talið er ólík­legt að auknar strand­sigl­ingar hefðu jákvæð sparn­að­ar­á­hrif á flutn­ings­kostnað sam­kvæmt umsögn Eimskips við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um efnið. Félagið kallar eftir inn­viða­upp­bygg­ingu fyrir vist­væna flutn­inga­bíla og aukna fjár­fest­ingu í vegum.

Í umsögn Eimskips er sagt að líklega sé ófýsilegt að flytja stóran hluta þeirra vara sem nú eru fluttar í landflutningum með sjófrakt um landið.
Í umsögn Eimskips er sagt að lík­lega sé ófýsi­legt að flytja stóran hluta þeirra vara sem nú eru fluttar í land­flutn­ingum með sjó­frakt um landið. Mynd: Eimskip

Breytt fyr­ir­komu­lag á strand­sigl­ingum með tíð­ari sigl­ingum á hafnir lands­byggð­ar­innar mun ekki skila þeim árangri sem stefnt er að í nýrri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um auknar strand­sigl­ingar að mati Eimskips. Þetta kemur fram í umsögn Eimskips við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um könnun á hag­kvæmni strand­flutn­inga sem birt var í gær. Kallað er eftir því að frekar verði und­ir­bún­ingur fyrir vist­væna flutn­inga­bíla haf­inn með við­eig­andi inn­viða­upp­bygg­ingu og fjár­fest­ing í vega­kerf­inu aukin.

Í sam­an­tekt umsagn­ar­innar kemur fram að Eimskip telji það ólík­legt að auknir sjó­flutn­ingar hefðu jákvæð áhrif á flutn­ings­kostnað þegar á heild­ina sé litið. Nauð­syn­legt sé að meta ávinn­ing af strand­flutn­ingum með til­liti til allra þátta sem hafa áhrif og að meta þurfi raun­veru­lega eft­ir­spurn eftir strand­flutn­ingum og hvaða magn fær­ist úr vega­flutn­ingum yfir í strand­skip. Þá segir í umsögn­inni að stór hluti flutn­inga í land­flutn­inga­kerf­inu sé flutn­ingur ferskra afurða sem kallar á hraða og tíða þjón­ustu. Að mati Eimskips mun frek­ari grein­ing leiða í ljós að auknir strand­flutn­ingar óraun­hæfur og óhag­kvæmur kostur.

Strandsiglingar dragi úr sliti á vegum og minnki kolefnisspor

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan sem um ræðir fjallar um að könnuð verði hag­kvæmni þess að halda úti tveimur strand­flutn­inga­skipum til að flytja vörur um landið. Með auknum strand­flutn­ingum megi minnka vöru­flutn­inga á þjóð­vegum lands­ins og draga þannig úr sliti á vega­kerf­inu. Einnig er lagt til að skoð­aður verði sá mögu­leiki á að nýta skipin til sorp­flutn­inga og sem björg­un­ar­skip í neyð­ar­til­fellum.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni er það sagt umhverf­is­vænt að flytja þunga­flutn­inga af vega­kerf­inu því þannig megi minnka kolefn­is­spor í flutn­ingum. Þar að auki vega þunga­flutn­ingar þyngst þegar kemur að sliti þjóð­vega. „Talið er að áhrif þyngdar hafi fjórða veldis áhrif á nið­ur­brot veg­anna. Þetta þýðir að öxull sem er 10 tonn að þyngd hefur 10 þús­und sinnum meiri áhrif á nið­ur­brot vega en öxull sem er 1 tonn,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Nútímalegri og umhverfisvænni kostur

Strand­sigl­ingar eru sagðar nútíma­legri og umhverf­is­vænni kostur en land­flutn­ingar í grein­ar­gerð­inni, þar sem sigl­ing­arnar losi minni koltví­sýr­ing. Þar segir einnig að flutn­ingur, losun og urðun sorps verði eitt stærsta og mest krefj­andi verk­efni sveit­ar­fé­laga í nán­ustu fram­tíð og flutn­ings­þörf á sorpi muni aukast.

Stærstan hluta land­flutn­inga, fyrir utan ferskar afurðir, megi færa í strand­sigl­ingar með til­heyr­andi sparn­aði fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga, að mati flutn­ings­manna til­lög­unnar. „Góðar líkur eru á því að sjó­flutn­ingar yrðu mun ódýr­ari en land­flutn­ingar. Því gæti end­ur­vakn­ing strand­flutn­inga haft bein áhrif á afkomu heim­ila og fyr­ir­tækja um land allt,“ segir í grein­ar­gerð. Þó þurfi að skoða hafn­ar­gjöld við rekstur strand­ferða­skipa en þau eru sögð mun hærri en sá kostn­aður sem leggst á land­flutn­inga.

Lítil eftirspurn vegna langs flutningstíma

Eimskip gerir nokkrar athuga­semdir við til­lög­una og grein­ar­gerð hennar í umsögn sinni. Þar er tekið undir þau sjón­ar­mið að hag­kvæmara sé að flytja ýmsa vöru í gámum eða þunga­vöru með skipum frá Reykja­vík til hafna á lands­byggð­inni frekar en með bílum. Eft­ir­spurn eftir þeim flutn­inga­máta hafi hins vegar verið lítil vegna of langs flutn­ings­tíma. Tekið er fram að gáma­flutn­ingar séu hins vegar í lág­marki á þjóð­vegum lands­ins og að við­skipta­vinir félags­ins nýti sér skipa­sigl­ingar vel í gáma­flutn­ingum.

Í umsögn­inni er sagt að breytt fyr­ir­komu­lag með tíð­ari sigl­ingum muni ekki skila þeim árangri sem stefnt er að í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni. Ástæðan sé sú að margt sem flutt er út á lands­byggð­ina, til að mynda öll neyslu­vara, kalli á tíðar ferðir. Þá séu engir mið­lægir vörulagerar á lands­byggð­inni og sam­kvæmt Eimskip hafa við­skipta­vinir félags­ins ekki áhuga á að byggja upp slíka lag­era. Lagerinn sé því stöðugt á ferð­inni: „Það má því segja að í núver­andi fyr­ir­komu­lagi sé vörulager lands­byggð­ar­innar í raun á leið­inni þangað um þjóð­vega­kerfið á degi hverjum.“

Fiskur, bæði nýveiddur og úr eldi, kalli á hraðan flutning

Ferskur fiskur á leið í vinnslu er sagður uppi­staðan í land­flutn­ingum hér á landi. Lönduðum fiski þarf að skila í vinnslu áður en vinna hefst að morgni næsta dags og þaðan er hann fluttur ferskur í útflutn­ings­skip eða í flug. Þetta kalli á dag­lega þjón­ustu, fimm til sjö daga vik­unnar. Það sama gildi um fisk­eldið en sam­kvæmt grein­ar­gerð­inni er gert ráð fyrir að umsvif í fisk­eldi eigi eftir að aukast umtals­vert á næstu miss­erum.

Að mati fyr­ir­tæk­is­ins myndi því óveru­legur hluti sem nú er í land­flutn­inga­kerf­inu fær­ast þaðan í strand­sigl­ingar. Með því að færa vöru­flutn­inga af vegum lands­ins yfir í skip væri verið að fara aftur til for­tíðar að mati fyr­ir­tæk­is­ins, þvert á skoðun flutn­ings­manna þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar. Þá segir í umsögn­inni að ekki liggi fyrir neinar upp­lýs­ingar eða for­sendur til að meta hvaða áhrif sú þjón­usta sem lýst er í til­lög­unni muni hafa á kolefn­is­spor flutn­ings.

Kalla eftir innviðauppbyggingu

Það er nefnt í umsögn­inni að þess er ekki langt að bíða flutn­inga­bílar verði farnir að ganga fyrir umhverf­is­vænni orku­gjöfum er nú tíðkast, ef til vill vetni, og því þurfi að búa inn­viði undir slík orku­skipti. „Ef vetni yrði fram­tíð­ar­orku­gjaf­inn til að nota á flutn­inga­bíla sem keyra á lengri leiðum þá vantar að koma á fót vetn­is­fram­leiðslu og byggja upp inn­viða­kerfi landið um kring til að hægt væri að nota slíka bíla hvar sem er á land­inu,“ segir í umsögn­inni.

Einnig er vikið að upp­safn­aðri fjár­fest­inga­þörf í vega­kerfi lands­ins og það sagt vera bæði bráð­nauð­syn­legt og þjóð­hags­lega hag­kvæmt að styrkja og end­ur­bæta vega­kerfið. Vísað er inn­viða­skýrslu Samtaka iðn­að­ar­ins og Félag ráð­gjaf­ar­verk­fræð­inga í umsögn­inni en sam­kvæmt skýrsl­unni er upp­söfnuð fjár­fest­inga­þörf í vega­kerf­inu um 110 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár