227 stuðningslán fyrir tæpa 2,2 milljarða

Alls hafa fyr­ir­tæki hér á landi sótt um 227 stuðn­ings­lán fyrir tæpa 2,2 millj­arða króna síðan opnað var fyrir umsóknir þann 9. júlí.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Hundrað sjö­tíu og eitt fyr­ir­tæki hefur sótt um grunn­lán fyrir allt að 10 millj­ónir króna með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð en umsókn um stuðn­ings­lán var virkjuð á ísland.is þann 9. júlí síð­ast­lið­inn.

Þar af hafa 56 fyr­ir­tæki til við­bótar sótt um auka­stuðn­ings­lán, allt að 40 millj­ónir króna með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð. Samtals gera þetta 227 lán fyrir tæpa 2,2 millj­arða, eða 2.176.000.000.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Stuðn­ings­lán eru hluti af við­spyrnu­að­gerðum stjórn­valda og er ætlað að styðja við smærri og með­al­stór fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir miklu tekju­falli, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

Ýmis skil­yrði eru sett fyrir veit­ingu stuðn­ings­láns. Til að mynda þurfa tekjur lán­taka að hafa dreg­ist saman um að minnsta kosti 40 pró­sent á sam­felldu 60 daga tíma­bili frá 1. mars til 30. sept­em­ber miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá þurfa lán­takar að hafa haft tekjur á bil­inu níu til 1.200 millj­ónir á síð­asta rekstr­ar­ári. Þá þarf launa­kostn­aður á síð­asta ári að hafa numið tíu pró­sentum af rekstr­ar­kostn­að­i.

Lán­tak­andi stuðn­ings­láns má ekki hafa greitt út arð eða óum­samda kaupauka, keypt eigin hluta­bréf, greitt af víkj­andi láni eða veitt nákomnum aðilum lán frá 1. mars 2020. Þá mega lán­tak­endur ekki vera í van­skilum við lána­stofnun sem hafa staðið lengur í 90 daga né í van­skilum með opin­ber gjöld.

Tekið er á móti umsóknum um stuðn­ings­lán á Ísland.is en stjórn­völd hafa samið við Arion banka, Íslands­banka, Kviku, Lands­bank­ann og Spari­sjóð­ina um fram­kvæmd lán­anna. Fyr­ir­tæki fá því lán afgreidd hjá sínum við­skipta­banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár